Læknablaðið - 01.03.2023, Qupperneq 3
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 119
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Ritstjórn
Helga Ágústa Sigurjónsdóttir,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Berglind Jónsdóttir
Gunnar Thorarensen
Hulda María Einarsdóttir
Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir
Lilja Sigrún Jónsdóttir
Oddur Ingimarsson
Ólafur Árni Sveinsson
Tölfræðilegur ráðgjafi
Sigrún Helga Lund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@lis.is
Auglýsingar
Ingvar Freyr Ingvarsson
ingvar@lis.is
Umbrot
Margrét E. Laxness
melax@lis.is
Prófarkalestur
Aðalsteinn Eyþórsson
Upplag
1850
Áskrift
23.400,- m. vsk.
Lausasala
2340,- m. vsk.
Prentun og bókband
Litróf
Vatnagörðum 14
104 Reykjavík
Dreifing
Íslandspóstur
Höfðabakka 9
110 Reykjavík
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma
efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar (höfund-
ar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagna-
grunna: Medline (National Library of Medicine),
Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition, Scopus og Hirsluna,
gagnagrunn Landspítala.
The scientific contents of the Icelandic Medical
Journal are indexed and abstracted in Medline
(National Library of Medicine), Science Citation
Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Sci-
ence Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
„Ég fann aldrei á íslenskum læknum að þeir væru skelkaðir eða hræddir.
Mun fremur að heilbrigðisstarfsfólk væri spennt að takast á við nýjan sjúkdóm,“
segir Jóhannes Kr. Kristjánsson, einn þeirra þriggja sem standa að sjónvarpsþáttunum
Stormi, um fyrstu viðbrögðin við COVID-faraldrinum
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Stormur í lífi lækna
„Allir voru að bíða eftir frekari upplýsingum
og það streymdu inn nýjar á hverjum degi. Ég
sat á kaffistofu á gjörgæslunni. Talað var um
fræðigreinar: Varstu búinn að sjá þessa sem
birtist í gær? Vitneskja um veiruna var að þró-
ast. Nýjar og nýjar upplýsingar komu fram og
þá gátu læknar brugðist við á nýjan hátt,“ lýsir
blaðamaðurinn Jóhannes Kr. Kristjánsson.
Alls 375 tökudagar voru fyrir heimilda-
þættina Storm sem sýndir eru á sunnudags-
kvöldum á RÚV. Þættirnir veita einstaka sýn á
störf heilbrigðisstarfsfólks þegar heimsfaraldur
skellur á. Jóhannes er oftar en ekki á hælum
Þríeykisins svokallaða.
„Kvöldin hjá Þórólfi fóru í að lesa skýrslur.
Sara konan hans lýsir þessu vel í þáttunum,“
segir hann en einnig hversu einstakt það var að
vera fyrir vestan í 6 vikur þegar veiran stakk
sér þar niður á hjúkrunarheimilinu Bjargi í Bol-
ungarvík. Þá elti hann Súsönnu Ástvaldsdóttur
umdæmislækni sóttvarna sem skugginn og
lýsir hann því hvernig senda þurfti mjög veika
COVID-sjúka suður.
„Ég fann að henni fannst það erfitt. Hún
þekkti sjúklingana og söguna, en það voru ekki
aðstæður til að sinna þeim fyrir vestan.“ Hann
segir hana mikinn nagla. Henni hafi verið hælt
fyrir atvik sem gengu vel.
„Hún svaraði: Vitiði, að í endurlífgun sem
gengur vel þurfum við samt að fara yfir hvað
við hefðum getað gert betur. Það lýsti þanka-
gangi hennar.“ Öll hafi gert sitt allra besta.
Jóhannes segir þættina sýna hvernig hand-
tökin eru í takti við þekkinguna hverju sinni.
Horfa verði á tímann með réttum augum. „Fólk
er svo fljótt að gleyma í hvaða andrúmslofti við
vorum hérna í mars og apríl 2020.“
Hann segist margoft hafa verið spurður
hvernig hann þyrði að vera á spítalanum á
Ísafirði en þar gisti hann um tíma á þriðju hæð-
inni. „Heilbrigðisstarfsfólk var ekki að spá í
þetta. Það passaði sig og var með grímu,“ segir
hann.
„Ég fann ekki fyrir ótta en ef maður fann
fyrir einhverjum ótta var það tengt því að við-
komandi ætti veika foreldra eða ættingja — en
það óttaðist ekki um sjálft sig.“
Veiran náði svo Jóhannesi sumarið 2022.
„Það var ótrúlegt að hafa sloppið allan þennan
tíma. Ég var mikið í kringum veikt fólk og inni
á stöðum þar sem var smithætta. Ég passaði
mig mjög vel því ef ég hefði smitast hefði ég
dottið út úr tökum. Það gat ég ekki hugsað
mér.“
Jóhannes vann heimildaþættina átta með
Sævari Guðmundssyni og Heimi Bjarnasyni.
Nóg er til af myndefni. „Við erum að skjóta á að
þetta sé 1% af efninu.“
Stoltur? „Veistu, já ég er stoltur,“ segir hann.
„Stoltur af traustinu sem við nutum allir í
þessu. Líka að sjá afraksturinn, nú þegar af-
urðin er tilbúin, því maður sér hvað þetta er
mikilvæg heimild til framtíðar.“
Jóhannes Kr. og Sævar Guðmunds-
son við tökur á Galtarvita. Mynd/
Baldur Kristjánsson
Líta verði til heilsu
heilbrigðisstarfsfólks
„Ég tel að við séum ekki búin að sjá fyrir
endann á því hvernig þessi vinna og álag í
COVID faraldrinum fór með heilbrigðisstarfs-
fólk,“ segir Jóhannes Kr. Kristjánsson blaða-
maður sem fylgdi starfsfólkinu eftir við gerð
þáttanna Storms.
„Ég þekki dæmi um það að læknar og
hjúkrunarfræðingar hafi verið í 30% starfi eftir
svona útkall. Það er rétt að komast í fullt starf.
Þetta er kafli sem við þurfum að gera upp í
framtíðinni,“ segir hann.