Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.03.2023, Side 12

Læknablaðið - 01.03.2023, Side 12
128 L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 R A N N S Ó K N skýr neikvæð tengsl á milli útsetningar fósturs fyrir kvikasilfri í móðurkviði og vitræns þroska,5 sem var greinanlegur allt fram á fullorðinsaldur.6 Svipuð tengsl sáust einnig hjá börnum frá öðrum sjávarsamfélögum, svo sem meðal frumbyggja í Norður-Kanada,7 en veikari tengsl sáust í rannsóknum frá Seychelles-eyjum þar sem neysla sjávarfangs var einnig mikil.8 Ofangreindar rannsóknir5,8 voru meðal annarra lagðar til grundvallar þeim heilsuverndarmörkum sem Matvælaöryggis- stofnun Evrópu (EFSA)2 og Umhverfisstofnun Bandaríkjanna (US-EPA)9,10 hafa lagt fram. Mörk EFSA eru lögð til grundvallar fæðutengdum ráðleggingum um fiskneyslu barnshafandi kvenna sem mörg Evrópulönd hafa gefið út,12 þar með talið Ísland.13 Hér á landi miðast útfærslan við að barnshafandi konur forðist neyslu á hákarli, sverðfiski, stórlúðu og eggjum sjófugla, ásamt því að takmarka neyslu á túnfisksteik og búra við eitt skipti í viku og niðursoðnum túnfiski og hrefnukjöti við tvisvar í viku.13 Takmarkaðar upplýsingar liggja fyrir um útsetningu fólks á Íslandi en mælingar á kvikasilfri í blóði 50 barnshafandi kvenna frá 2014-2015 benda til þess að styrkur kvikasilfurs sé töluvert lægri en í Grænlandi, svipaður og í Noregi, en hærri en í mörgum öðrum Evrópulöndum þar sem fiskneysla er ekki eins algeng.14 Engin athugun hefur farið fram á því hvort styrkur kvikasilfurs í barnshafandi konum sé undir eða yfir heilsuverndarmörkum hér á landi og hefur því ekki verið lagt mat á það hvort fæðutengdar ráðleggingar Embættis landlæknis um fiskneyslu fyrir barnshaf- andi konur frá 201813 hafi tilætluð áhrif. Markmið Tilgangur rannsóknar var að kanna styrk kvikasilfurs í hári hjá barnshafandi konum á höfuðborgarsvæðinu og tengsl hans við fiskneyslu, ásamt því að leggja mat á það hvort núverandi ráð- leggingar um fiskneyslu barnshafandi kvenna þarfnist endur- skoðunar. Efniviður og aðferðir Rannsóknin var hluti af slembidreifðri íhlutandi rannsókn sem gerð var árið 2021 á Íslandi, Spáni, Portúgal, Grikklandi og Kýpur, innan verkefnisins „Human Biomonitoring for Europe (HBM4EU)“ sem styrkt var af Horizon 2020, rannsókna- og ný- sköpunaráætlun Evrópusambandsins (hbm4eu.eu/). Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort ítarleg fræðsla um opin- berar ráðleggingar um fiskneyslu meðal barnshafandi kvenna í löndum þar sem fiskneysla er tiltölulega mikil hefði áhrif á styrk kvikasilfurs sem mældur er í hári. Viðmiðunarhópurinn fékk sömu fræðslu og aðrar konur sem sækja mæðravernd (það er „standard care“). Útreikningar sýndu fram á að 325 þátttakendur þyrfti í hvern hóp til að greina mælanlegan mun milli hópa á styrk kvikasilfurs (eða 650 samtals, 130 frá hverju landi). Áhrifa íhlutunarinnar í heild verða gerð skil annars staðar en þessi grein fjallar um mælingar á kvikasilfri í hári íslensku þátttakendanna og tengsl þess við fiskneyslu. Þátttakendur Rannsóknin náði til heilsuhraustra barnshafandi kvenna á aldr- inum 18-45 ára. Inntökuskilyrði voru einburameðganga og bú- seta á Íslandi síðastliðin þrjú ár. Konurnar voru skráðar til þátt- töku í gegnum mæðravernd Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og tóku 10 af 15 heilsugæslustöðvum þátt. Ljósmæður kynntu rannsóknina við reglulega skoðun í mæðravernd og sáu um öfl- un upplýsts samþykkis. Þær tóku einnig hársýni til greiningar á kvikasilfri tvisvar á meðgöngu: við upphaf rannsóknar, sem mið- aðist við meðgönguviku ≤22, og við lok rannsóknar, sem miðaðist við að sýni væri tekið að minnsta kosti fjórum mánuðum síðar. Rannsóknin var samþykkt af vísindanefnd Heilsugæslu höfuð- borgarsvæðisins og vísindasiðanefnd (VSNb2021020046/03.01). Gagnasöfnun Strax eftir skráningu var íslensku þátttakendunum skipt tilviljun- arkennt í íhlutunarhóp og viðmiðunarhóp (útfært með aðferðinni „proc plan“ í forritinu SAS v9.2: support.sas.com/en/documenta- tion.html). Haft var samband við konur í íhlutunarhópnum nokkrum dögum eftir hársýnatöku og þær beðnar um að panta tíma fyrir viðtal við fyrsta tækifæri. Íhlutunin fólst í viðtalinu sem fór fram á fjarfundarforritinu Zoom með glærukynningu. Farið var yfir ráðleggingar Embættis landlæknis um mataræði á meðgöngu,13 með áherslu á fiskneyslu, sem þátttakendur fengu einnig sendar rafrænt. Kynntar voru forsendur ráðlegginga um fiskneyslu og ástæður þess að hvatt er til takmörkunar á neyslu ákveðinna tegunda sjávarfangs. Til skýringar var farið yfir magn kvikasilfurs í ólíkum fiskitegundum. Konunum gafst einnig færi á að spyrja almennra spurninga um mataræði á meðgöngu. Í heild tók viðtalið um 15 mínútur. Allir þátttakendur voru einnig beðnir um að svara rafrænum spurningalista við upphaf og lok rannsóknar þar sem lögð var áhersla á fiskneyslu með tilliti til tíðni og tegundasamsetningar síðustu fjóra mánuði. Fyrri listinn innihélt einnig almennar spurningar sem sneru að hegðun og umhverfisþáttum sem gætu haft áhrif á styrk kvikasilfurs. Mælingar á kvikasilfri Styrkur kvikasilfurs var mældur í hársýnum sem tekin voru við upphaf og lok rannsóknar. Að meðaltali liðu 150 og 143 dagar á milli fyrri og seinni sýnatöku í viðmiðunar- og íhlutun- arhópnum, og var munur fjölda daga milli hópa ekki marktækur (p=0,77). Notað var hár vegna þess að sú sýnatökuaðferð er ein- föld, er lítið inngrip og er algeng aðferð við eftirlit með fólki.15 Það eykur möguleika á samanburði við aðrar rannsóknir og heilsu- verndarmörk. Klipptur var þunnur hárlokkur upp við rót aftan á hnakka og honum haldið saman með límbandi. Á límbandið var teiknuð ör svo hægt væri að greina rótarendann. Fyrstu þrír cm frá rót voru notaðir við greiningar, sem byggist á þeirri nálgun að hár vex um rúman einn cm á mánuði16 og endurspeglar sá hluti sýnis því útsetningu síðastliðna þrjá til fjóra mánuði, sem er það tímabil sem spurningar okkar um fiskneyslu náðu yfir. Miðað var við að seinni sýnataka færi fram eigi skemur en að fjórum mánuðum liðnum. Mælingar á kvikasilfri voru gerðar með atómgleypnimæl- ingu á rannsóknarstofu Centro Nacional de Sanidad Ambiental (CNSA), Instituto de Salud Carlos III í Madríd á Spáni samkvæmt aðferð sem lýst hefur verið nánar annars staðar.17 Magngrein- ingarmörk voru við 0,01 µg/g af hári og 3 mg af sýni voru notuð

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.