Læknablaðið - 01.03.2023, Síða 13
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 129
R A N N S Ó K N
við hverja greiningu. Vottuð viðmiðunarsýni voru greind með
sýnunum.
Tölfræði
Dreifingu á styrk kvikasilfurs í hári var lýst með meðaltali og
staðalfráviki. Til að auðvelda samanburð við aðrar rannsóknir
var magn kvikasilfurs í hári einnig gefinn upp sem margfeldis-
meðaltal..( ). Notað var T-próf og F-próf til að meta
hvort marktækur munur væri á styrk kvikasilfurs á milli tveggja
eða fleiri hópa. Til að meta réttmæti notkunar þessara stikuðu
prófa voru áhrif hugsanlegra einfara einnig metin með því að
nota óstikuð próf (Mann-Whitney- og Kruskal-Wallis-próf) sem
gáfu í öllum tilvikum sömu niðurstöðu.
Markmið tölfræðigreininganna var í fyrsta lagi að skoða
hvaða bakgrunnur þátttakenda, sér í lagi fiskneysla, hefðu for-
spárgildi fyrir styrk kvikasilfurs í hári. Samhengi fiskneyslu við
styrk kvikasilfurs í hári var sýnt myndrænt með kassaritum (box-
plot).18 Einnig var samband annarra þátta við styrk kvikasilfurs í
hári skoðað, svo sem kvikasilfursfyllinga í tönnum, húðflúra og
reykinga, sem hefur allt verið tengt við magn kvikasilfurs í líf-
sýnum í öðrum rannsóknum.19 Áhrif íhlutunar voru skoðuð með
tilliti til breytinga í styrk kvikasilfurs í hári frá upphafi til loka
meðgöngu.
Styrkur kvikasilfurs í hári þátttakenda var einnig borinn
saman við heilsuverndarmörk sem EFSA og US-EPA hafa lagt
fram. Þau heilsuverndarmörk nefnast í tilviki EFSA „tolerable
weekly intake (TWI)“ sem miðast við að neysla kvikasilfurs
fari ekki yfir 1,3 µg/kg líkamsþyngdar á viku. Í tilviki US-EPA
eru þessi mörk kölluð „reference dose (RfD)“ sem miðast við að
neysla kvikasilfurs fari ekki yfir 0,1 µg/kg líkamsþyngdar á dag
(eða 0,7 µg/kg líkamsþyngdar á viku). Bæði mörk eru ákvörðuð
út frá sömu rannsóknum á tengslum kvikasilfurs í hári eða blóði
barnshafandi kvenna og taugaþroska barna2,9 og svara til styrks í
hári upp á 1,8 μg/g í tilviki EFSA2 og 1,1 μg/g í tilviki US-EPA.9,10 Sá
munur skýrist af því að þessar stofnanir meta misjafnlega óvissu
í kringum þau mörk þar sem skaðleg áhrif sjást í rannsóknum.2,9
Niðurstöður
Alls voru 120 konur á aldrinum 20-42 ára skráðar í rannsóknina
frá 6. maí til 28. september 2021 og luku 106 konur við rannsókn-
ina (88%) með því að gefa hársýni við lok meðgöngu. Allir þátt-
takendur tilgreindu upplýsingar um aldur og meðgöngulengd á
skráningarblaði en aðrar upplýsingar um þátttakendur við upp-
haf rannsóknar fengust með spurningalista sem 101 þátttakandi
svaraði (84%).
Dreifing kvikasilfurmagns í hári þátttakenda er sýnd á mynd
1. Meðalstyrkur (staðalfrávik) kvikasilfurs í þeim 120 þátttakend-
um sem gáfu hársýni við upphaf rannsóknar var 0,48 μg/g (0,33)
og miðgildi (hæsta - lægsta gildi) var 0,41 μg/g (0,01-1,66). Marg-
feldismeðaltal fyrir styrk kvikasilfurs í hári var 0,36 μg/g (95%
öryggisbil 0,31, 0,42). Styrkur kvikasilfurs við upphaf rannsóknar
var í öllum tilfellum undir heilsuverndarmörkum EFSA en hár-
sýni 6 kvenna (5%) voru yfir heilsuverndarmörkum US-EPA.
Bakgrunnur þátttakenda við upphaf rannsóknar og tengsl
þeirra við styrk kvikasilfurs í hári eru sýnd í töflu I. Styrkur
kvikasilfurs í hári hækkaði marktækt með aldri (p=0,03) en engin
Mynd 1. Stuðlaritið sýnir dreifingu á styrk kvikasilfurs í hári þátttakenda (µg/g) við
upphaf rannsóknar (n=120), miðað við þau kvikasilfursgildi í hári sem heilsuverndar-
mörk EFSA og US-EPA byggja á.
Tafla I. Bakgrunnur þátttakenda við upphaf rannsóknar (n=101-120)1 og
tengsl þeirra við styrk kvikasilfurs í hári.
Meðaltal (SF)
eða fjöldi (%)
Hg í hári (μg/g) P gildi
Aldur (ár) (SF) 29,8 (5,2) 0,43 (0,32)
20-25 22 (26) 0,39 (0,31) 0,032
26-30 37 (45) 0,43 (0,32)
>30 41 (49) 0,57 (0,34)
Menntun
Lokið grunn- og/eða
framhaldsskóla
27 (22) 0,42 (0,31) 0,272
Iðn- eða
tækniskólapróf
9 (8) 0,53 (0,33)
Háskólanám 63 (53) 0,53 (0,36)
Ekki svarað 21 (17) 0,39 (0,24)
Líkamsþyngdarstuðull
(kg/m2)
26,4 (5,1)
<25 46 (46) 0,51 (0,33) 0,823
≥25 55 (54) 0,49 (0,37)
Meðgöngulengd við
skráningu (vika)
13,3 (4,1)
Fjöldi fyrri meðgangna
0 46 (46) 0,46 (0,34) 0,413
1+ 55 (54) 0,51 (0,33)
Reykti fyrir meðgöngu
Já 3 (3) 0,50 (0,35) 0,473
Nei 98 (97) 0,35 (0,11)
Húðflúr
Já 52 (51) 0,50 (0,37) 0,903
Nei 49 (49) 0,49 (0,32)
Kvikasilfursfyllingar í tönnum
Já 28 (23) 0,60 (0,36) 0,102
Nei 71 (70) 0,48 (0,35)
Veit ekki 7 (7) 0,29 (0,20)
Litað hár
Já 60 (59) 0,47 (0,34) 0,663
Nei 41 (41) 0,50 (0,36)
1n=120 fyrir aldur og meðgöngulengd því þær upplýsingar voru gefnar upp við skráningu; n=101
fyrir aðrar breytur því það er sá fjöldi sem svaraði spurningalista við upphaf rannsóknar,
2F-próf, 3T-próf.