Læknablaðið - 01.03.2023, Page 20
136 L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109
R A N N S Ó K N
nefnarar til stöðlunar. Til samanburðar var prófað að hafa mið-
punkt tímabils sem samfellda breytu. Niðurstöður voru svipaðar
og því eru aðeins sýndar þær niðurstöður þar sem tímabil var
flokkabreyta.
Tíðni og hættuhlutfall (voru reiknuð með öryggisbilum
/100.000 fæðingar fyrir síðasta 10-ára tímabilið 2006-2015 miðað
við fyrsta tímabilið 1976-1985 og 100.000 fæðingar. Hættuhlut-
fall var einnig metið og leitnipróf gerð á sama hátt með viðmiði
í fjölda kvenna á frjósemisaldri á sömu tímabilum samkvæmt
upplýsingum Hagstofu Íslands (miðað við 1. desember hvers árs
til 1997, en 1. júlí eftir það). Tölfræðiúrvinnsla var gerð í forritinu
R, útgáfu 4.2.1.
Rannsóknin hafði leyfi vísindasiðanefndar (VSNb 20101 20002/
03.7 og VSNb2017050017/03.03) og Persónuverndar, auk heimilda
frá Embætti landlæknis og forsvarsmanna sjúkra stofnana þang-
að sem leitað var eftir upplýsingum.
Niðurstöður
Alls létust 1600 konur á frjósemisaldri, 15-49 ára, á árunum 1976-
2015. Af þeim dóu samtals 48 konur í tengslum við meðgöngu og
allt að 365 dögum frá lokum þungunar, en einungis 26 af þeim
töldust bein eða óbeint tengd mæðradauðatilvik. Ekki var vitað
um dauðsföll kvenna innan 15 ára aldurs eða eftir fimmtugt í
tengslum við þungun, þó gögn um það hafi ekki verið fengin sér-
staklega (munnlegar heimildir). Fæðingar voru samtals 172.369
á öllu rannsóknartímabilinu (upplýsingar frá íslensku fæðinga-
skráningunni). Þetta svarar í heildina (48 dauðsföll) til 27,8 dauðs-
falla á 100.000 fæðingar á 40 ára tímabilinu, en síðustu 10 árin var
hlutfallið aðeins 6,7/100.000 fæðingar.
Samkvæmt þrengri skilgreiningu Alþjóðaheilbrigðisstofn-
unarinnar (bein/óbein tilvik ≤42 dagar = maternal mortality
ratio, MMR) varð mæðradauði í 14 tilvikum. Mæðradauðahlut-
fallið fyrir allt tímabilið var því 8,1/100.000. Tíðnin lækkaði úr
16,7 (95% CI 7,9-34,9) í 2,2 (95% CI 0,3-15,8) fyrir hverjar 100.000
Mynd 1. Tíðni mæðradauða í þungun og ≤42
dögum eftir lok þungunar fyrir 5 og 10 ára tímabil
(mynd A og B) og ≤365 dögum eftir lok þungunar
fyrir 5 og 10 ára tímabil (mynd C og D) með einni
staðalskekkju miðað við 100.000 fæðingar og bak-
grunnstölum um heildartölur mæðradauða, fjölda
fæðinga og kvenna á frjósemisaldri (15-49 ára)
árin 1976-2015.
Mynd 2. Mæðradauði á Íslandi 1976-2015 (fjöldi tilvika) samkvæmt skiptingu í bein-
tengd, óbeint tengd og ótengd dauðsföll til og með 365 dögum frá lokum þungunar, á
5-ára tímabilum.
Ár Öll dauðsföll
Dauðsföll
≤42 dagar
Fjöldi fæðinga
Konur
15-49 ára
1976-80 7 6 21.202 53.964
1981-85 3 1 20.834 58.402
1986-90 3 3 21.873 63.168
1991-95 3 1 2226 67.425
1996-00 4 1 20.849 70.151
2001-05 2 1 20.527 72.824
2006-10 1 0 23.398 77.030
2011-15 3 1 21.425 77.328
Alls 26 14 172.369 540.292