Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.2023, Síða 22

Læknablaðið - 01.03.2023, Síða 22
138 L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 R A N N S Ó K N fall. Síðasta dauðsfall vegna meðgönguháþrýstings og fæðingar- krampa var árið 2001. Síðustu 10 ár rannsóknartímans lést aðeins ein kona í þungun eða ≤42ja daga frá lokum þungunar. Engin kona lést á þessum 40 árum vegna asablæðinga eða utanlegs- þykktar, né heldur vegna atburða sem tengdust svæfingu eða deyfingu. Óbeint tengd dauðsföll voru 20 og urðu flest vegna undirliggj- andi sjúkdóma (tafla II). Meðal kvenna sem dóu snemmkomið var um að ræða krabbamein, heilablæðingar, hjartasjúkdóm, fyr- irverandi insúlínháða sykursýki og heilaskemmd eftir sykurfall, frumkominn alvarlegan lungnaháþrýsting og tilvik alvarlegs sjúkleika snemma á öðrum þriðjungi meðgöngu sem reyndist vera dreifð berklasýking. Eitt dauðsfall varð vegna undirliggj- andi alvarlegs þunglyndis sem endaði með líklegu sjálfsvígi. Síðkomnari dauðsföll urðu meðal annars eftir lykkjuuppsetn- ingu sem leiddi til sýkingar og sýklaeitrunarlosts (toxic shock syndrome), og morðs seint á öðrum þriðjungi meðgöngu. Meðal óbeint tengdu dauðsfallanna eru sjálfsvíg talin í þessum flokki til samræmis við breska flokkun síðastliðin 7 ár,10 þó þau séu ekki reiknuð inn í mæðradauðahlutfallið MMR hér ofar ef þau voru síðkomin. Ótengd dauðsföll voru 22. Í þessum flokki voru bílslys algeng, einkum á fyrri árunum, og tvær konur létust í flugslysum. Aðrar slysfarir sem leiddu til dauða voru eldsvoðar, ofkæling og fall. Í töflu III er yfirlit yfir þessi tilvik og getið undirliggjandi sjúk- dóma sem leiddu til dauða innan árs frá þungun í nokkrum til- vikum, en voru ekki taldir hafa versnað vegna þungunarinnar. Sjálfsvígum fjölgaði ekki á tímabilinu. Umræður Á Íslandi var mæðradauði algengur í fátæku samfélagi fyrri alda af gamalþekktum ástæðum, það er að segja asablæðingum, fæðingarkrömpum og barnsfarasótt.4,9,16 Veruleg fækkun varð loks eftir miðja 19. öld, eins og greint var frá í yfirlitsgrein um mæðradauða á Íslandi 1911-19753 og yfirlitsriti þeirra Gunnlaugs Snædal, Gunnars Biering og Helga Sigvaldasonar um fæðingar á Íslandi.4,9 Mæðradauði árin 1911-1915 var um 390/100.000 en hafði lækkað í um 110/100.000 árin 1946-1950, mest vegna til- komu sýklalyfja og blóðgjafa. Eftir 1970 var talan komin niður í 20/100.000.3 Tíðnin lækkaði þannig nálægt 50-falt á einni öld fram í lokatíma þessarar rannsóknar. Þó voru fyrri tíma tölur, svo sem í rannsókninni frá 1911-75, ekki nákvæmar, þar sem einungis var stuðst við tölur frá Hagstofu Íslands og að mestu aðeins tekin með dauðsföll sem urðu í langt genginni meðgöngu, í fæðingu eða fljótlega eftir hana. Takmarkaðar upplýsingar voru til um fyrstu 42 dagana eftir fæðingu og engar fram að 365 dögum líkt og í þessari rannsókn. Dauðsföll eftir snemmþunganir eða fylgjuvefskrabbamein voru líklega vantalin. Því byggjast eldri tölur á lágmarkstölum, þó ekki væri þetta öðruvísi en víðast hvar erlendis. Sú breyting sem varð á okkar rannsóknartíma með mark- tækri lækkun mæðradauða frá fyrsta fimm ára tímabilinu til Tafla III. Dauðsföll þungaðra kvenna eða innan 365 daga frá þungun 1976-2015 af annarri og ótengdri megin dánarorsök. Aldur konu Lok þungunar Dagar frá lokum þungunar við dauða Frum- eða fjölbyrja Dánarorsök Flokkun 16 Fæðing* 273 Frumb. Astmi Síðkomið 17 Snemmþungun** 207 Frumb. Slys Síðkomið 18 Fæðing 265 Frumb. Slys Síðkomið 20 Fæðing 266 Fjölb. Slys Síðkomið 20 Snemmþungun 274 Frumb Slys Síðkomið 21 Snemmþungun 317 Frumb. Slys Síðkomið 22 Fæðing 315 Frumb. Slys Síðkomið 27 Fæðing 211 Fjölb. Slys Síðkomið 27 Fæðing 354 Fjölb. Slys Síðkomið 29 Fæðing 0 Fjölb. Slys Snemmkomið 30 Fæðing 275 Fjölb. Krabbamein Síðkomið 30 Snemmþungun 212 Fjölb. Slys Síðkomið 31 Fæðing 205 Fjölb. Krabbamein Síðkomið 32 Fæðing 0 Fjölb. Slys Snemmkomið 32 Fæðing 291 Fjölb. Slys Síðkomið 32 Fæðing 174 Fjölb. Taugasjúkdómur Síðkomið 33 Fæðing 261 Fjölb. Flogaveiki Síðkomið 37 Fæðing 301 Fjölb. Krabbamein Síðkomið 38 Fæðing 254 Fjölb. Slys Síðkomið 40 Snemmþungun 238 Fjölb. Slys Síðkomið 40 Fæðing 359 Fjölb. Slys Síðkomið 44 Fæðing 191 Fjölb. Krabbamein Síðkomið Heildarfjöldi 22 *Sjá skilgreiningar í töflu 1.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.