Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.2023, Blaðsíða 33

Læknablaðið - 01.03.2023, Blaðsíða 33
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 149 Það er ljóst að almenningur allur gerir ríkulegar kröfur til þekkingar og fag- mennsku lækna. Læknar eru viðstaddir erfiðustu stundir okkar flestra og á slík- um stundum þurfum við að leggja allt okkar traust á að læknirinn veiti raun- verulegt öryggi og sé starfi sínu vaxinn. Að læknirinn verði til staðar og taki rétt- ar ákvarðanir. Læknar eru meðvitaðir um þessa stöðu sína og þá ábyrgð sem henni fylgir. Þeir eru tilbúnir að leggja mikið á sig til að vera örugg höfn í ölduróti heilsubrests og slysa, allan sólarhringinn, alla daga, allan ársins hring. Í störfum lækna er ávallt mikið í húfi og læknar taka dag- lega fjölda ákvarðana sem varða líf okkar og limi. En fleira hangir á spýtunni því ákvarðanir lækna varðandi úrræði, rann- sóknir, lyfjagjöf og inngrip hlaupa einnig á gríðarlegum fjármunum. Á hverjum einasta degi, allan ársins hring. Samfé- lagslegt mikilvægi þess að hæft fólk, með ríkulega samkennd og heilbrigða dóm- greind, veljist til læknisstarfa er því deg- inum ljósara. Til að tryggja að læknirinn sem er við hlið okkar á okkar erfiðustu stundum sé hæfur og traustsins verður þurfa kjör lækna að vera samkeppnishæf. Bæði innan íslensks samfélags, en einnig í samanburði við önnur vestræn ríki, því læknar eru mjög eftirsóttur starfskraftur alþjóðlega. Í dag ríkir skortur á læknum um allan heim og þess skorts gætir svo sannarlega einnig á Íslandi, en um og yfir 400 íslenskir læknar hafa kosið að starfa áfram erlendis að loknu sérnámi. Í COVID-19 faraldrinum kristallaðist ofangreint eðli læknisstarfa á skýrari hátt en oft áður og lyftu læknar, ásamt öðrum heilbrigðisstéttum, grettistaki við gríðarlega krefjandi aðstæður. Í upphafi faraldursins var ekki vitað hversu mikla áhættu læknar og aðrir heilbrigðisstarfs- menn tóku með því að starfa meðal smit- aðra einstaklinga, en fjölmargir læknar létu lífið af völdum veirunnar bæði austan hafs og vestan. Eins var ekki vitað Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A L Í Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta þeir eigin skoðanir en ekki félagsins. Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélagsins hvort taka þyrfti þungbærar ákvarðanir ef ekki yrði hægt að veita öllum full- komnustu heilbrigðisþjónustu vegna fjölda smita, né hve lengi faraldurinn og það gríðarlega álag sem honum fylgdi myndi vara. Samt sem áður gengu lækn- ar og annað heilbrigðisstarfsfólk í verk- efnið og kláraði það með miklum sóma. Nú, þegar það versta virðist um garð gengið og aðstæður eru að færast í hvers- dagslegra horf, blasir við mikil þreyta og langtímaveikindi meðal þeirra sem báru þyngstu byrðarnar. Á sama tíma lengj- ast biðlistar stöðugt og kerfið ræður illa við fjölmörg af grunnverkefnum sínum. Samkvæmt könnun Læknafélags Íslands meðal allra lækna í desember 2022 kom fram að 54% þeirra hafa stundum eða oft íhugað af alvöru að hætta í starfi á liðnu ári vegna starfsumhverfis og/eða vinnu- álags. Það mun taka tíma og margþættar aðgerðir að þoka þessari stöðu í rétta átt og eru úrbætur á kjörum lækna þar veigamikill þáttur. Laun allra hópa lækna hafa dregist aftur úr launum ýmissa samanburðar- stétta1 á árunum 2015 – 2022 (janúar – september), þrátt fyrir heimsfaraldur og síversnandi starfsumhverfi. Á því tímabili hækkuðu meðal heildarlaun allra stétta sem eru tiltækar í gögnum fjármálaráðuneytis um 49,7% en heildar- laun lækna um 34,1%.1 Eins eru greiddar stundir lækna langflestar á mánuði miðað við samanburðarstéttir,2 eða 222 stundir á mánuði árið 2021. Laun lækna hafa því dregist aftur úr á sama tíma og þeir skila gríðarlegu vinnuframlagi og hafa ekki enn fengið að ræða við samn- ingsaðila sinn, fjármála- og efnahagsráð- herra um styttingu vinnuvikunnar, sem flestar ef ekki allar aðrar heilbrigðisstéttir hafa þegar fengið í gegn. Staða almennra lækna er sérstakt áhyggjuefni. Dagvinnulaun þeirra eru lægri en meðaldagvinnulaun viðskipta- fræðinga, lögfræðinga og verkfræðinga á aldrinum 25-39 ára, þrátt fyrir að námið sé lengra og ábyrgðin og álagið ótvíræð. Meðalheildardagvinnulaun almennra lækna fyrir fulla 40 tíma vinnuviku eru um það bil 766.000 kr., en launin hækka í takt við hækkandi starfsaldur.3-5 Ljóst er að betur má ef duga skal þegar kemur að kjörum þessa lykilhóps í íslensku heil- brigðiskerfi. Laun almennra lækna, sem og annarra hópa lækna, verða að vera samkeppn- ishæf til þess að hæft fólk fáist áfram til að sinna læknisstörfum frekar en öðrum störfum sem eins og staðan er nú krefjast minna vinnuframlags á sama tíma og þau gefa oft meira í aðra hönd. Tryggjum íbúum landsins stöðuga, hágæða læknis- þjónustu til framtíðar með leiðréttingu á launakjörum lækna og viðurkenningu á þeirra mikla og mikilvæga vinnuframlagi öllum til heilla. Í neyðarástandi heimsfar- aldurs sem og á eðlilegri tímum. LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS - MAIN LOGO + 100 YEARS ANNIVERSARY LOGOFélag almennra lækna Þórdís Þorkelsdóttir Sólveig Bjarnadóttir Félag íslenskra heimilislækna Margrét Ólafía Tómasdóttir Oddur Steinarsson Félag sjúkrahúslækna Theódór Skúli Sigurðsson Magdalena Ásgeirsdóttir Læknafélag Reykjavíkur Ragnar Freyr Ingvarsson Katrín Ragna Kemp Steinunn Þórðardóttir formaður Stjórn Læknafélags Íslands Hver viltu að mæti þér á þínum erfiðustu augnablikum? Heimildir 1. Fjársýslan. Talnaefni, meðallaun eftir stéttarfélögum. gogn.fjr.is/Report/EmbedReport/4e7d2e68-611d-44c0- 9ba0-7c084722c34c 2. Kennsla á háskólastigi, sérfræðistörf hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra, sérfræðistörf í viðskiptagreinum, dóm- arastörf. 3. Verkfræðingafélags Íslands. Kjarakannanir, febrúarlaun 2022. 4. Launarannsókn VR, september 2022. 5. Fjármála og efnahagsráðuneytið. Launatölfræði.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.