Læknablaðið - 01.03.2023, Síða 35
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 151
þessa sjúklinga en um ⅔ þeirra séu kon-
ur.
Bergquist er margreyndur. Auk
fyrrnefnds titils hefur hann einnig starf-
að sem dósent í klínískum taugavísind-
um við Sahlgrenska-háskólasjúkrahúsið
og Gautaborgarháskóla í Svíþjóð. Hann
gerðist fræðimaður við háskólann í Upp-
sölum árið 1999 og var skipaður prófessor
í greinandi efnafræði og taugaefnafræði
árið 2005. Hann stýrði Bergquist-hópnum
þar. Frá árinu 2011 hefur hann verið að-
júnkt í meinafræði við háskólann í Utah,
Salt Lake City, Bandaríkjunum, og síðan
2015 prófessor í nákvæmnislæknisfræði
við Binzhou-læknaháskólanum í Yantai,
Kína.
Hann heimsótti Akureyri í ferðinni til
Íslands og hitti þar Friðbjörn Sigurðsson
lækni. Bergquist segir heimildirnar um
Akureyrarveikina, sem sé dæmi um ME/
CFS, mjög merkilegar enda eftirfylgdin
eftir þessa veirusýkingu einstök. „Það
368 einstaklingar voru á árunum 2020-2022 greindir með
þreytuheilkenni eftir veirusýkingu (Post viral fatigue syndrome)
hér á landi. Alls voru þeir 574 á árunum 2005-2022. Þetta er sam-
kvæmt tölum Embættis landlæknis.
Alma D. Möller landlæknir sagði í pallborði eftir málþing um
langvarandi einkenni sýkinga á Læknadögum að stökk hafi orðið
í greiningunum síðustu árin.
„Dropinn holar steininn,“ sagði landlæknir í pallborðinu
þegar hún vísaði til þess að læknar viðurkenni í æ ríkara mæli
vandann. Hún sagði mikilvægt að skoða hvernig rétt sé að
bregðast við og ekki væri nokkur spurning að samþætta þyrfti
nálgun við slíka þreytusjúkdóma.
„Ég myndi vilja sjá heilsugæsluna byrja og síðan verður að
vera hægt að leita til sérfræðinga,“ sagði hún og hugmyndir um
sérstaka Akureyrarklíník ættu vel við vegna þessarar svoköll-
uðu Akureyrarveiki, sem upp kom um miðja 20. öld, sjúkdóm
sem nú sé vísað til sem ME/CFS.
var algjörlega frábært að sjá svæðið, fara
í skólann og inn í eitt herbergjanna þar
sem nemendurnir lágu veikir á sínum
tíma,“ segir hann og horfir þessi rétt
tæpu 75 ár aftur.
„Starfsmenn opnuðu vistarverurnar
og við gátum heimsótt þær. Það var svo
magnað að fá svo að hitta eftirlifanda
frá þessum tíma hér í Hörpu,“ sagði
Bergquist eftir fyrirlestur sinn. Hann
vitnar í Læknablaðið frá því á sjötta ára-
tugnum.
„Fræðigreinin um veikina var mjög
mikilvæg og þá var örugglega þrefað um
hvort þetta væri í raun sjúkdómur, en
Læknablaðið birti rannsóknina og hefur
fylgt eftir rannsóknum byggðum á þess-
um sjúkdómi,“ segir Bergquist. Gaman
hefði verið að sjá sjúkdóminn halda
Akureyrarnafninu: „En þetta er ekki
einsdæmi fyrir Akureyri eða Ísland, svo
það er líklega gott að ME hafi tekið yfir,“
segir hann.
Jonas Bergquist hefur bæði rannsakað ME/CFS síþreytu-
sjúkdóminn og rannsakar nú langtímaáhrif COVID-sýk-
inga. Hér er hann í Hörpu á Læknadögum. Mynd/gag
Margfalt fleiri greinast með þreytuheilkenni