Læknablaðið - 01.03.2023, Page 38
154 L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109
V I Ð T A L
Ágúst Birgisson lýtalæknir hefur sett upp skurðstofur og læknastofur
við Efstaleiti og býður nú allt að 15 læknum aðstöðu þar.
„Þetta er eitthvað sem mig hefur alltaf dreymt um,“ segir hann
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
„Mig langaði að
verða eigin herra“
„Ég vildi ekki fara af stað fyrr en öll leyfi
væru í höfn,“ segir Ágúst Birgisson lýta-
læknir sem festi sér húsnæði við Efstaleiti
27C og 25, beint á móti heilsugæslunni,
í apríl í fyrra. Nú tæpu ári síðar standa
tilbúnar tvær skurðstofur, 6 læknamót-
tökur og snyrtistofa sem er þegar komin
í rekstur.
Ágúst hannaði aðstöðuna eftir eigin
höfði með föður sínum, Birgi Val Ágústs-
syni athafnamanni og byggingarverk-
fræðingi, auk þess sem Guðmundur
Gunnlaugsson arkitekt hjá Teiknistofunni
Archus stílfærði og útfærði. „Er ekki allt
í lagi að ráða sér sjálfur síðustu 10 ár
starfsævinnar?“
Ágúst lærði skurðlækningar í Darth-
mouth í Bandaríkjunum og er með
meistaragráðu þaðan í heilsuvísindum.
Hann lærði bæklunarskurðlækningar
í Noregi og svo lýtalækningar, sem
hann hafði dreymt um frá barnsaldri.
„Ég var 11 ára þegar ég ákvað að verða
læknir. Tólf ára þegar ég ákvað að verða
lýtalæknir,“ segir hann. Bæklunarlækn-
ingarnar hafi einungis verið skref í átt að
markmiðinu.
„Ég man ekki hvað það var sem kom
í hausinn á mér sem fékk mig til að vilja
þetta. Líklega er ég svo þrjóskur að ég hef
staðið við það allar götur síðan.“
Kom óvænt heim eftir nám
Eftir námstímann í Noregi vann hann
við fegrunaraðgerðir í ár í Svíþjóð. „Ég
ílentist næstum því þar,“ segir hann og
lýsir hvernig hann hafi verið hársbreidd
frá því að kaupa helming stofunnar sem
hann starfaði á, en upp komu veikindi í
fjölskyldunni og hann kom því heim árið
2007. „Ég kom korter í kreppu.“
Heimkominn starfaði hann á spítala
þar til hann opnaði Læknastofur Ak-
ureyrar á Glerártorgi með fleirum og
starfaði í Domus Medica. Við flutningana
þaðan hafi hann litið í kringum sig, ætlað
að setja upp starfsemi sína hjá Útlits-
lækningu við Grensásveg, en húsnæðið
ekki hentað þegar á reyndi. „Ég fann að
nú var kominn tími á drauminn; að verða
eigin herra.“
Ágúst vildi ekki fá lækna til liðs við
sig fyrir en leyfin væru í höfn. „Ég hef
gert þetta allt klárt og leita nú að leigj-
endum. Fólki sem getur nýtt aðstöðuna,“
segir hann og að pláss sé fyrir allt að 15.
„Hér geta læknar gert hluti sem ekki
er hægt að gera á spítalanum,“ segir
hann. Skurðstofurnar séu miðaðar við
aðgerðir þar sem ekki þurfi að leggja
sjúkling inn yfir nótt. „Við erum bundin
af því hér,“ segir hann þegar Ragnar
Jónsson, bæklungarskurðlæknir og lög-
fræðingur, gengur inn í glænýja aðstöð-
una. Hvaða hagsmuna á hann að gæta?
„Engra,“ segir Ágúst. „Ég fékk Ragnar
til að koma því hann er sá sem smíðaði
fyrstu staðlana fyrir skurðstofur hér á
landi á 10. áratugnum.“ Ágúst stendur
upp og saman förum við þrjú túr um
starfsmannaaðstöðuna, skurðstofurnar
og biðstofuna.
Skurðstofa eftir ströngum stöðlum
„Kröfur við uppsetningu skurðstofa eru
mjög miklar,“ segir Ragnar. Innanhúss-
rafkerfi og lofthreinsun þurfi að fylgja
ákveðnum stöðlum. „Krafist er sömu
gæða hér og á sjúkrahúsi,“ bætir hann
við. Og þótt mörgum þyki erfitt að fá
iðnaðarmenn, segir Ágúst það einmitt
hafa verið snúnara að fá leyfin.
„Ég hef verið heppinn með iðnaðar-
menn en ég gerði mér ekki grein fyrir
hvað hið opinbera getur verið svifaseint,“
segir hann og rekur hvernig hann hafi
brugðist við nýjum og nýjum kröfum
byggingarfulltrúa, meðal annars þeirri
kröfu að fá vask inn á skurðstofurnar.
„En samkvæmt skurðstofustaðli má
það ekki vegna hættu á bakteríum í
niðurföllum,“ segir hann og Ragnar sam-
sinnir því. Ágúst lýsir því að ein krafan
hafi verið hjólastólalyfta í starfsmanna-
aðstöðu ef þyrfti í framtíðinni. Þá sé ekki
hægt að sækja um leyfi heilbrigðisfull-
trúa fyrr en byggingarfulltrúi hafi gefið
samþykki og hann ekki fengið leyfi land-
læknis fyrr en heilbrigðiseftirlitið hafi
gefið sitt. „Það er mikið mál að fá úttekt á
skurðstofu.“
En hvernig leist Ragnari á þegar Ágúst
sagði honum að hann ætlaði að ráðast í
verkið einn? „Ég hélt ekki að þetta yrði
svona stórt,“ segir hann og hristir haus-
inn. „Ágúst er stórhuga.“
Saman störfuðu þeir á Læknastofum
Akureyrar en Ágúst fer milli höfuðstaðar
Norðurlands og borgarinnar og er þar 2-3
daga aðra hverja viku. „Flestir læknar í