Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.03.2023, Page 39

Læknablaðið - 01.03.2023, Page 39
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 155 þessu eru bæði á spítala og á stofu. Það passar mjög vel saman,“ segir hann. Ragnar leggur áherslu á hversu hag- kvæmar einkareknar stofur séu. „Ég hef skrifað um það í blöðin. Á einkarekinni stofu nýtist tíminn betur: styttri boð- leiðir, engin yfirbygging,“ segir hann og tekur dæmi af liðspeglun á hné, sem hann þekki frá tímanum þegar hann skar sjálfur upp. „Á spítalanum gat maður gert 4-5 aðgerðir á dag, ekki meira. Allt er svo þungt í vöfum,“ segir hann. „En hjá Orkuhúsinu á Suðurlandsbraut gátum við gert 10-14 smáaðgerðir á dag. Tekið plötur og skrúfur, gert speglanir og aðrar minniháttar aðgerðir.“ Ágúst segir þetta einnig reynslu sína. „Hér geri ég 15-20 smáaðgerðir á dag, fyrir klukkan fjögur. Ég geri aðgerðalýs- inguna sjálfur, skrifa reikninginn sjálfur og rukka sjúklinginn sjálfur — með hjálp einnar manneskju,“ segir hann. „Það er engin yfirbygging.“ En hvað með þá skoðun margra lækna að tími þeirra sé of dýrmætur í aukaverk, eins og að prenta út og stimpla? „Mjög góður punktur,“ segir Ágúst „Í Ameríku ertu með PA, persónulegan aðstoðar- mann, en laun þeirra hér eru svo há að það borgar sig ekki,“ segir hann. Ágúst Birgisson hefur látið draum sinn rætast og sett upp glænýjar skurðstofur við Efstaleiti, Skurðstofur Reykjavíkur. Hann nýtti reynslu sína og hannaði skurðstofur og biðstofur eftir eigin höfði með föður sinn sér við hlið, byggingarverkfræðinginn Birgi Val Ágústs- son. Mynd/gag „Ég er mjög fljótur að gera þetta sjálf- ur.“ Hann stóli þó á aðstoðarmanneskju sína sem hjálpi honum í aðgerðum og sjái um tímapantanir. Hann beri ábyrgð á henni og hún spari honum tíma. „Hún er allt í öllu. Hún er aðstoðarmaður minn.“ Rétti tíminn til einkaframtaks Ágúst er afar ánægður með að sjá draum- inn rætast, en hvað kostar það? „Þetta kostar alveg helling,“ segir hann og hlær. Svarið loðið en hann gefur þó hugmynd þegar hann lýsir því að tilbúin innflutt skurðstofa með öllu kosti um 200 milljón- ir króna. „Bara loftræstingin er eins og mjög góð íbúð í Reykjavík,“ segir hann og Ragnar skýtur að: „Já, eins og Lamborg- hini.“ En hvað áætlar Ágúst að það taki langan tíma að greiða pakkann? „Sko. Ég hugsa ekki svona. Þá myndi ég aldrei fara af stað með neitt. Ég gerði mér verðhugmynd í huganum en vildi ekki setja hana á blað því þá myndi ég ekki fara af stað. Allar fjárfestingar mínar hingað til hafa gengið,“ segir hann ör- uggur og viðurkennir að það liggi líkleg- ast í blóðinu. „Pabbi er byggingarverkfræðingur. Ég hef farið með honum síðan ég var 5-7 ára að mæla fyrir grunnum. Þá hefur hann sett mig á mælingarstöngina. Svo er ég svo forvitinn og hef spurt. Ég hef lesið á teikningar síðan ég var barn,“ segir hann og lýsir því hvernig hann hafi fylgst með föður sínum með bræðrum hans byggja ESSO-nestin, verkstæði og Bílaleigu Ak- ureyrar. „Ég var sendur með og hjálpaði og vann með skóla. Ég hef gert upp húsin mín og finnst mjög gaman að smíða og brasa. Ég þekki þessa vinnu og hef stundað hana sjálfur. Ég veit hvað tekur langan tíma að sparsla og flísaleggja. Þetta er verk sem ég hef gaman af og ég hef verið í einkarekstri lengi, er alvanur rekstri, vanur að vinna og vinn mikið. Ég hef gaman af því,“ segir Ágúst en

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.