Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.2023, Blaðsíða 42

Læknablaðið - 01.03.2023, Blaðsíða 42
158 L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 V I Ð T A L „Ég held að engin okkar hafi eitthvað sérstaklega pælt í því hvað við þyrftum að vinna mikið. Þrískiptar vaktir — ekkert mál. Sólarhringur eða þrír — ekkert mál. Ungt fólk hugsar ekki svona lengur. Það hefur orðið mikil breyting,“ segir Ingunn Vilhjálmsdóttir sem útskrifaðist úr læknadeild árið 1981 með þeim Hjördísi Smith og Ástríði Jóhannesdóttur. Allar urðu þær gjörgæslu- og svæfingalæknar. Allar hafa nú lagt svæfingarnar í annarra hendur ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir „Við svæfingalæknar erum reddararnir“ „Fólk virkilega spáir í lífsgæði sín: Hvernig er vinnutíminn minn? Hvernig er lífsstíllinn og hvernig get ég varið meiri tíma með fjölskyldunni minni? Þetta hljómar eins og okkur hafi verið alveg sama um fjölskylduna en það var ekki þannig,“ segir Ingunn Vilhjálms- dóttir. Hjördís Smith bætir við: „Eins og Svíar myndu segja: Maður tekur það vonda með því góða.“ Ingunn kinkar kolli. „Já, svona var þetta bara. Ef þú ætlaðir að verða læknir var þetta svona. Og ef þú ætlaðir að verða sérfræðingur fórstu til útlanda.“ Þær eru mættar til að fara yfir sviðið. Segja það ekki hafa verið samantekin ráð að fara allar í svæfinga- og gjörgæslu- lækningar. Þær þekktust heldur ekki áður en þær komu í læknadeild. En þær útskrifuðust sama ár, þrjár af 8 konum í 32 manna árgangi ‘81. Svo vörðu þær lunganum úr starfsferlinum saman eftir sérnámið. Fannst það mjög gaman, enda andinn á deildinni afburðagóður. Skytturnar þrjár Ástríður Jóhannesdóttir hætti á Landspít- ala nú um áramótin en þær Hjördís og Ingunn fyrir árslok 2021. Skytturnar þrjár, eins og Theódór Skúli Sigurðsson samstarfsmaður þeirra lýsir þeim. „Já, á það ekki vel við?“ Samsinna því. Þær segja búið að manna plássin þeirra. „Svæfingadeildin á Hringbraut hefur orð á sér fyrir að vera samstæðasta og skemmtilegasta vinnudeildin á spítalan- um. Þetta hefur alltaf verið fjölskylda,“ segir Ingunn. Þær lýsa því hvernig lækn- ar hafi endað sem svæfingalæknar því það hafi verið svo gaman á deildinni. Þeir geti ekki skilið á milli hvort fagið eða deildin hafi ráðið úrslitum. „Já, okkur tókst að stela mörgum sem ætluðu í aðrar greinar en enduðu sem svæfingalæknar. Ætluðu að verða barna- læknar eða skurðlæknar en fannst svo gaman hjá okkur.“ Návígið hafi verið mikið. „Nú þegar ég lít til baka hefur maður umgengist vinnufélagana meira en fjölskylduna,“ segir Ingunn. Þær hlæja. Samvinna hafi einkennt deildina. „Við höfum alltaf stutt hvert annað.“ En sakna þær spítalans? „Ég sakna þess að vinna með öllu þessu unga fólki sem er að koma heim. Við höfum unnið nógu lengi með gömlu kollegunum. Sá tími er búinn. Hann var góður. En allt þetta unga fólk er fólk sem við höfum alið upp og er að skila sér heim,“ segir Ástríður. Reynslan eykur álagið Þær horfa til baka. Hvernig þekkingin hlóðst upp með óvæntum afleiðingum. „Ég var oft hrædd síðustu árin við að lenda í einhverju klúðri,“ segir Hjördís. „Eftir því sem þú færð meiri reynslu sérðu hvernig hlutirnir geta svo auðveldlega farið úrskeiðis, þrátt fyrir að þú geri þitt besta og gerir allt samkvæmt bókinni. Ég hafði það alltaf í huga. Það gera fleiri kollegar,“ segir hún. Ingunn bætir við: „Já, ég segi alltaf: Ég var langöruggust þegar ég var búin að vera deildarlæknir í þessu starfi í 6 mánuði, því þá hafði ég ekki hugmynd um hvað ég vissi lítið.“ Þær hlæja. „Nei, nei,“ segir Ástríður. „Jú,“ segir Hjördís. „Það slær út á mér svita stundum þegar ég hugsa um allt sem hefði getað gerst.“ Ástríði þykir nóg um: „Við megum ekki vera svo svart- sýnar að við fælum fólk frá faginu,“ segir hún. „Nei, nei,“ bæta þær tvær við. „Það er frábært að hafa verið á svona góðum vinnustað og fengið þann stuðning sem maður þarf,“ segir Hjördís.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.