Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.2023, Síða 43

Læknablaðið - 01.03.2023, Síða 43
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 159 Með allt á hreinu Einhver ráð núna til Ástríðar sem er ný- hætt að vinna? „Nei, ég þarf þau ekki,“ segir hún. „Það er brjálað að gera. Pró- gramm upp á hvern einasta dag. Crossfit tvisvar í viku. Pilates einu sinni í viku og sund þess á milli. Ég er búin að ná skrið- sundinu aftur sem ég var búin að missa niður. Þá golfið og golfhermir tvisvar í viku. Svo eru það barnabörnin. Tvö hér heima og tvö í Svíþjóð.“ „Jesús minn,“ segir Ingunn: „Þetta er allt of mikið pró- gramm.“ Hjördís segir frábært að hafa það rólegt. Nýkomin af skíðum og á leið í mánuð á Tenerife. „Mér finnst ég stund- um ekkert vera að gera. Fæ mér kaffi, les blað og snýst í kringum sjálfa mig.“ Hún stefni á að læra spænsku og fara í frekara frönskunám. „Maður þarf að finna sér rútínu og ég er dugleg að fara í ræktina. Það er bara svo frábær tilfinning að vera laus. Ef ég þarf að neita einhverju er það vegna þess að ég er að gera eitthvað annað skemmti- legt.“ Þær stefna á ferð með útskriftarári sínu nú í vor. Leiðin liggur til Grikklands nú í apríl. Þær hafa lagt á þessi ráð enda hafi þær strax í læknadeild ráðið öllu. „Þetta var einstaklega góður árgang- ur. Það var svo gaman hjá okkur og nú ætlum við einnig góður hópur gamalla kollega á Hringbraut að hittast mánaðar- lega.“ Allar vissu þær á barnsaldri að þær vildu verða heilbrigðisstarfsmenn. „Læknir eða sálfræðingur,“ segir Ástríð- ur. Hjördís lýsir því hvernig hún hafi viljað upplifa draum móður sinnar að verða læknir. „Hún var ein af fáum sem byrjaði í læknadeildinni en svo giftist hún, eign- aðist þrjú börn og dó 33ja ára úr krabba- meini. Hún var ekki búin nema með fyrsta hluta,“ lýsir hún og hvernig námið hafi svo höfðað mjög til hennar, rétt eins og bækur Franks Slaughter og lýsingar hans á uppskurðum sem hún lá yfir sem barn. Ingunn vildi verða hjúkrunarfræðing- ur. „En svo ákvað ég að fara í landspróf með bekknum mínum og fór í mennta- skóla.“ Þar hafi hún eignast vinkonu með Ástríður Jóhannesdóttir, Ingunn Vilhjálmsdóttir og Hjördís Smith útskrifuðust saman úr læknadeild sama ár, völdu allar gjörgæslu- og svæfingalækningar og unnu svo saman á Landspítala. Ingunn og Ástríður stunduðu sérnám í Lundi í Svíþjóð en Hjördís í Michigan í Bandaríkjunum. Þær hafa nú sett tækin í hendur eftirmanna. Mynd/gag aðra drauma. „Hún sagði: Þú átt að koma með mér í læknisfræði. Svo hætti hún og gerðist þýðandi.“ Vakt ekki sama og vakt Hjördís segir svæfingar sambland af huga og verki. „Þetta er fullkomin blanda.“ Inni á spítalanum séu svæfinga- læknar svolítið eins og heimilislæknar spítalans. „Í þeim skilningi að við erum út um allan spítala, erum alhliða,“ segir hún og Ingunn bætir við:

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.