Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.03.2023, Qupperneq 44

Læknablaðið - 01.03.2023, Qupperneq 44
160 L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 V I Ð T A L „Já, viðurkennum það bara. Við erum svona reddarar. Þegar allt er í steik er kallað á svæfinguna.“ Ástríður segir það stafa af því að svæfingalæknar séu alltaf bundnir í húsi. „Þegar deildarlæknar voru um allt hús vorum við einu sérfræðingarnir og því kölluð til. Þannig skapaðist líklega sú hefð.“ En endalaus vaktavinna. Hver velur það? Ástríður lýsir því hvernig þær hafi mætt á föstudagsmorgni og unnið fram á mánudagsmorgun. „Ég viðurkenni að mér leið eins og ég væri að losna úr prís- und þegar vaktinni lauk.“ Þetta hafi ekki breyst fyrr en Hannes Stephensen vann sleitulaust í 72 klukkustundir og menn sáu að í því var ekkert vit. „Eftir þessa breytingu sætti maður sig við langa daga. Sólarhringur varð ekki neitt neitt því við vorum laus við að vera þrjá,“ segir Ástríður, og Hjördís segir að tímarnir hafi einfaldlega verið aðrir. Álagið verið öðruvísi. „Viðmiðin voru önnur. Sjúklingarnir voru ekki eins aldraðir. Þeir voru ekki eins veikir,“ segir hún og Ingunn bætir við: „Ekki eins mik- ið af tólum og tækjum sem við þurftum að kunna á.“ Það sé því ekki hægt að bera saman vakt í dag og löngu vaktirnar þá. „Fólk dó ef það var veikt,“ segir Hjör- dís. Ingunn bætir við: „Já, og nú er fólk skorið sem hefði aldrei verið það hér áður. Það var einfaldlega ekki hægt að meðhöndla eins mikið og hægt er í dag.“ Þetta séu allt siðferðisspurningar. „Og mér finnst við oft ekki á réttri leið,“ segir Hjördís en bendir um leið á að sjúklingar á gjörgæslu séu þar því þeir eigi lífsvon. Staldra við og endurmeta „Það gerist sjaldan að fólk deyi á gjör- gæslu,“ segir Ingunn. „Því þegar búið er að taka þá ákvörðun að það eigi heima þar viltu gera allt sem mögulegt er.“ Hjördís segir oft einfaldara fyrir lækna að gera allt. „Það er erfiðara að taka ákvörðun um annað.“ Hafa þurfi á hreinu hvað einstaklingurinn sjálfur vill. „Við svæfingalæknar erum sérfræðingar í öllum þessum tækjum og tólum en oft erum það þó við sem stöldrum við og spyrjum hvort vert sé að halda áfram,“ segir hún og að þá sé sjúklingurinn í fyrirrúmi. En hvernig er að ganga út af spítala og hætta að vinna. „Það er bara dásam- legt,“ segir Hjördís. Ástríður segir að hún finni hvað vinnan hafi tekið orðið allan tíma. „Hausinn og allt.“ Gott sé að stöðva hamstrahjólið og eiga tímann fyrir sig. „Við unnum á yndislegum vinnustað en það var komið nóg,“ segir Ingunn. „Þetta var orðið fínt.“ Gott að vera læknir „Spurðu Ástríði hvað önnur dóttir hennar gerir?“ segir Hjördís Smith og hlær. „Jú, önnur er svæfingalæknir,“ segir Ástríður Jóhannesdóttir um Jóhönnu dóttur sína og eiginmannsins Gunnlaugs Björnssonar stjarneðlis- fræðings. Þær hlæja. „Hin er hljóðverkfræðingur og ég er að sjálfsögðu stolt af þeim báðum enda vill maður ekkert frekar en að börnin sín fylgi hjartanu og það hafa þær báðar gert,“ segir hún. Ingunn Vilhjálmsdóttir segir eldri dóttur sína hafa verið með þeim hjón- um meðan þau sérmenntuðu sig í Lundi í Svíþjóð. „Hún var með okkur í gegnum allt námið og sérnámið. Hún sagði alltaf: „Ég ætla ekki að verða læknir.“ Hún, Hildur Björg, er læknir í dag, krabbameinslæknir eins og pabbinn, Helgi Sigurðsson. Hjördís segir dóttur sína hafa kosið annan starfsferil. „Hún minnist æsku sinnar þannig að ég sé að stússa og pabba hennar að tala við sig. Hann var með hana í handarkrikanum að lesa,“ segir hún um mann sinn, Ólaf Þ. Harðarson stjórnmálafræðing, sem hafi unnið sveigjanlega vinnu og því meira á heimilinu. Þær leggja allar áherslu á að auðvitað vilji þær að hver einstaklingur velji það sem hugurinn standi til en Ingunn segir að hún hafi þó hvatt alla sem spyrji að verða læknar. „Þegar ungt fólk spyr mig hvort það eigi að fara í læknisfræði segi ég: Já, hiklaust. Það er svo margt vitlausara sem þú getur gert,“ segir hún. „Þetta opnar svo mikla möguleika. Það vantar alltaf lækna, út um allan heim, og þú getur gert hvað sem er: horft í smásjá eða krufið lík, nú eða notað menntunina í eitthvað allt annað.“ Þá segir Hjördís makavalið skipta miklu fyrir starfsframann. „Ég hef alltaf sagt: Ekki giftast einstaklingi sem er eins og klafi um hálsinn á þér.“

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.