Læknablaðið - 01.03.2023, Side 45
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 161
bauð upp á þjónustu fyrir fólk með litaða
húð. Þó þannig að það voru sér legu-
deildir fyrir hvíta annars vegar og fyrir
þeldökka hins vegar. Hún fékk meðferð
sem bar ekki árangur og lést árið 1951,
einungis 31 árs gömul.
Á þeim tíma var læknir að nafni
George Gey að vinna á Johns Hopkins.
Hann var heltekinn af því að finna leiðir
til að rækta frumur – eitthvað sem eng-
um hafði þá tekist. Hann safnaði vefja-
sýnum frá sjúklingum í þeim tilgangi
en frumurnar dóu allar jafnharðan, allt
þangað til hann fékk vefjasýni úr Hen-
riettu. Krabbameins-
frumurnar úr Henriettu
uxu á ógnarhraða og
Gey nefndi þær HeLa
eftir upphafsstöfum
hennar. Hann sendi
frumurnar til vísinda-
manna um allan heim og
HeLa-frumur hafa síðan
verið notaðar við þróun
á bóluefnum, lyfjum,
við krabbameinsrann-
sóknir og margt fleira.
Sannkölluð bylting.
Hin hliðin á sögunni
er fjölskyldan hennar
Henriettu. Börnin höfðu
misst móður sína og
höfðu lítinn skilning á því hvernig hluti
af henni gæti á einhvern hátt lifað áfram
eftir dauðann. Raunar vissu þau ekki að
frumurnar væru lifandi fyrr en um 25
árum seinna. Þá höfðu birst myndir af
Henriettu í fjölmiðlum undir fullu nafni
– engin persónuvernd í þá daga. Allt
saman ól þetta af sér reiði og tortryggni
hjá fjölskyldunni, sem bjó við fátækt og
hafði engin tækifæri til menntunar eða
Ég vil byrja á að þakka Gerði Gröndal
fyrir áskorunina og fyrir einstaklega vel
skrifaðan pistil í síðasta blaði!
Það óx mér mjög í augum að velja eina
bók til að skrifa um og því ákvað ég að
miða við síðastliðið ár. Ég las mikið sem
barn, tilheyri þeirri kynslóð sem ólst upp
með Harry Potter, en hef lesið minna
eftir að ég byrjaði í læknadeild. Hef svo
nýfundinn tíma eftir að ég útskrifaðist,
sem er kærkomið. Er nú að lesa bókina
Merking eftir Fríðu Ísberg sem kom út
árið 2021. Sagan gerist í Reykjavík fram-
tíðarinnar þar sem verið er að innleiða
sérstakt próf til að
greina samkennd og
siðblindu hjá fólki.
Samfélagið skiptist
svo í tvennt eftir því
hvort fólk hefur náð
prófinu eða ekki og
eftir því hvort fólk sé
fylgjandi því að láta
merkja einstaklinga á
þennan hátt. Virkilega
áhugaverð lesning sem
ég mæli heilshugar
með.
Á síðasta ári las ég
svo bókina The Imm-
ortal Life of Henrietta
Lacks eftir Rebeccu
Skloot. Mögnuð bók um framgang vís-
indanna en jafnframt lífssaga ungrar
konu og fjölskyldu hennar. Henrietta
Lacks fæddist árið 1920 og var komin
af fátækum tóbaksbændum í Clover í
Bandaríkjunum. Þegar hún var 30 ára og
orðin 5 barna móðir greindist hún með
leghálskrabbamein. Hún sótti læknis-
þjónustu á Johns Hopkins sjúkrahúsið,
eina sjúkrahúsið í hennar nágrenni sem
Hvaða bók hefur fylgt þér lengst,
þú hefur lesið oftast eða haft mest áhrif á þig?
Sólveig Bjarnadóttir
almennur læknir
Ég skora á Engilbert Sigurðsson
prófessor í geðlækningum að skrifa
um þá bók sem hefur haft mest áhrif á hann.
Frumulíf eftir dauðann
framdráttar. Var verið að fara illa með
móður þeirra? Var einhver að græða á
henni? Á þeim?
Þetta er marglaga saga um kynþátta-
fordóma, vísindi og siðferði. Við erum
sem betur fer hætt að birta myndir af
þátttakendum í veigamiklum vísinda-
rannsóknum og höfum betri umgjörð
um persónuvernd og vísindasiðanefnd.
Það er þó ekki sjálfsagt að fólk taki þátt
í rannsóknum eða að fólk taki mark á
niðurstöðum þeirra. Til þess þarf að
skapa traust og viðhalda því – hvort sem
viðfangsefnið eru heimsfaraldrar, hlýnun
jarðar eða eitthvað álíka hræðilegt. Það er
heldur ekki vænlegt að innleiða próf sem
skiptir samfélaginu í tvo hópa, raunar af-
leit hugmynd eins og sagan hefur sýnt.
Næsta bók á leslistanum er síðan
Sumarlandið eftir Tove Jansson. Fékk hana
gefins frá góðum kollega sem er á leið
út í sérnám og hugnaðist ekki að taka
bókasafnið með sér.