Læknablaðið - 01.03.2023, Síða 47
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 163
S É R G R E I N I N S E M É G V A L D I
Geðlækningar voru ekki beint það sem
ég sá fyrir mér eftir útskrift úr MA. Ég
komst inn í læknadeild Kaupmanna-
hafnarháskóla og átti þar mjög lærdóms-
rík 6 ár. Áður en ég hélt utan starfaði
ég á skurðdeild kvennadeildar og varð
algjörlega heilluð og harðákveðin í því
að verða kvensjúkdómalæknir. Það voru
því ákveðin vonbrigði þegar það steinleið
yfir mig ítrekað og endurtekið í verknámi
á skurðdeildum, en í eitt sinn vaknaði
ég við hlið sjúklingsins á vöknunardeild
eftir aðgerðina! Að starfa undir heitu og
sterku ljósi með maska var greinilega
ekki fyrir mig eftir allt saman.
Eftir 4. og 5. ár fékk ég sumarstarf á
bráðamóttöku geðsviðs á Landspítala.
Starfið kom mjög ánægjulega á óvart
og gekk þvert á þær hugmyndir sem
ég hafði um fagið. Þessi reynsla kveikti
neista sem fylgdi mér það sem eftir var
í náminu og út kandídatsárið. Ég sá
sjúklinga á öðrum deildum í nýju ljósi,
og fannst þeir sjálfir og andlega hliðin í
veikindum þeirra höfða meira til mín en
líkamlegu veikindin.
Ég tók valmánuð á geðinu á
kandídatsárinu og varð þá alveg viss
um að geðlækningar væru málið. Á
kandídatsárinu stóð ég á tímamótum
í mínu lífi og gat ekki hugsað mér að
fara strax aftur frá Íslandi eftir 6 ára
aðskilnað frá mínum nánustu og sótti því
um í sérnáminu hér heima. Námstíminn
var góður en þá voru um 10 manns í
prógramminu, sem hefur eflst stöðugt
síðan, en í dag eru um 20 manns að
læra geðlækningar á Íslandi. Í sérnám-
Ísafold Helgadóttir
geðlæknir á Landspítala Vegir liggja til allra átta!
inu eignaðist ég dætur mínar tvær með
stuttu millibili og tók því námið á 6
árum í stað 5. Á geðdeildunum kynntist
ég yndislegu samstarfsfólki og eignaðist
góðar fyrirmyndir í mörgum kollegum
mínum. Vel menntað fólk með hugsjón
og ástríðu fyrir því sem það gerir og hríf-
ur mann með.
Virkilega gefandi vera geðlæknir
Þegar maður hefur mikinn áhuga á
fólki og mannlegu eðli, er virkilega
gefandi vera geðlæknir. Að skoða líðan,
tilfinningar, hugsanir, skynjun, atferli,
áföll og seiglu. Hvernig lífssaga hvers og
eins mótar viðhorf og viðbrögð. Maður
fyllist auðmýkt og þykir heiður að því
að vera treyst fyrir djúpstæðum raunum,
hugarflækjum og því mótlæti sem fólk
gengur í gegnum. Meðferðarsambandið
er það sem gefur mér mest og að verða
vitni að bættri líðan, auknum raun-
tengslum og jafnvægi. Það er líka mikil
áskorun þegar innsæisskortur fylgir
veikindunum og fólk hafnar meðferð sem
því er nauðsynleg.
Geðlækningar eru krefjandi fag
sem reynir mikið á innsæi, samskipti,
skilning og klíníska hugsun. Greining
byggist á samtölum við sjúklinginn og
geðskoðun yfir ákveðinn tíma, ásamt
ítarlegum upplýsingum um sögu og bak-
grunn. Einnig þarf að útiloka líkamlegar
orsakir. Alvarlegir geðsjúkdómar geta
haft í för með sér verulega skert lífsgæði,
einangrun og að fólk flosni upp úr námi
og starfi, þess vegna er brýnt að greina
og meðhöndla veikindin snemma og
bæta þannig horfurnar. Ekki má gleyma
því að lífsógnandi ástand getur skapast
í alvarlegum geðsjúkdómum og meðferð
því stundum lífsbjargandi.
Geðlæknum standa margir möguleik-
ar opnir, meðal annars fjölbreyttur starfs-
vettvangur: Á sjúkrahúsum, heilsugæslu,
í samfélagsteymum, á stofum, hjá einka-
fyrirtækjum, í dómskerfinu, svo dæmi
séu nefnd. Sumir geðlæknar hitta ekki
aðeins einstaklinga, heldur líka pör, fjöl-
skyldur og leiða jafnvel hópmeðferðir.
Þá er hægt að sérhæfa sig nánar í hinum
ýmsu undirsérgreinum eins og öldr-
unargeðlækningum, réttargeðlækning-
um, barna- og unglingageðlækningum,
fíknigeðlækningum og fleira. Geðlæknar
vinna mjög oft í teymum með öðrum
fagstéttum, sem er gaman og gefur fleiri
sjónarhorn á vandamálin og úrbæturnar.
Engir tveir dagar eru eins í þessu starfi
og maður er alltaf að sjá og læra eitthvað
nýtt, bæði af skjólstæðingum og sam-
starfsfólki.
Framtíðin í geðlækningum er björt,
en fagið er í stöðugri framþróun og það
eru stundaðar vandaðar rannsóknir sem
munu halda áfram að bæta við þekkingu
okkar á heilanum, geðsjúkdómum og
meðferðum.
Starf á geðdeild er góð og þroskandi
reynsla sem nýtist læknum hvar sem er
og get ég heilshugar mælt með því, enda
var það þannig sem ég sá ljósið og fann
mína sérgrein.