Allt um íþróttir - 10.06.1968, Síða 3
ALLT UM ÍÞRÓTTIR 3
Keppni á Olympiu-
leikurn ógleymanleg
ÍVAR SIGMUNDSSON:
ívar Sigmundsson hefur
undanfarin ár verið í fremstu
röð íslenzkra skíðamanna, o-g
einn sá bezti i alpagreinum.
Fimm ára gamall byrjaði hann
að iðka skíðaíþróttina og heif-
ur haldið því áfram síðan.
Byrjaði að keppa í drengjai-
flokkum og þóttii sncmma efni-
legur, og tók fyrst þátt í ís-
landsmóti 1958. ívar hefur síð-
an tekið þátt í öllum meiri-
háttar skíðakeppnum hérlend-
is. Einnig hefur hann keppt
á mótum í Frakklandi og í
Austurríki.
ívar þjálfaði um skeið með
Austurríska unglingalandslið-
inu eða fyrir tveim árum.
Frammistada íslenzkra skíða-
manna erlendis hefur farið í
taugarnar á mörgum mannin-
um, þar sem þeim hefur fund-
ist þeir ekki standa sig nægi-
lega vel. Aðspurður um þetta
atriði sagir tvar að aðstöðu-
í V A R
SIGMUNDSSON
Fæddur: 5. maí 1942 á Akur-
eyri. — Helztu íþróttaafrek:
Margfaldur Akureyrarmeist-
ari í alpagreinum. íslands-
meistari í stórsvigi 1966 og
í svigi 1967. Var í sveit Ak-
urcyrar sem sigraði í flokka-
sviki 1968.
Keppti fyrir íslands hönd á
Olympíu'leikunum í Grenoble
1968.
munur hér og erlendis sé slík-
ur, að tómt mál sé um að taila.
„— Erlendis eru menn á
Skíðum mest allt árið, þar er
bezta aðstaða sem völ er á.
Læknar og þjálfarar fylgjast
ívar Sigmundsson
gaumgæflega með þeim sem
þjálfa. Teknar eru kvibmyndir
á æffingum, sem síðan eru
skoðaöar sama kvöldið með
þjálfara sem leiðbeinir og sýn-
ir hvað aflaga hefur farið.
Þó álít ég að aðalmiunurinn
séu brautirnar sem eru geró-
líkar því sem gerist hér heirna,
þ.e. frystar brautir. Mairgt
ainnað mætti tína íiil.
Hafa ekki aðstæður batnað
hér á landi síðan þú byrjaðir
keppni?
— Mjög mikið. Lyftur ag
togbrautir eru víða kornmar og
með tilkomu þeirra er hægt að
æfa miklu betur en áður var.
Þó undarlegt sé hér uppi á Is-
landii er ekki hægt að vera á
skíðum að neinu viti nema
sikamman tíma á hverju ári,
eða frá miðjum janúar fram í
apríl, bæði vegna veðurs og
skammdegis.
Hvernig vai árangur þinn á
þeini mótum, sem þú tókst þátt
í erlendis
— „Rétt í meðallagii, var í
rrV'ðju af um 110 tit 120 kepp-
endum“.
Ætlarðu að keppa lengi eun?
— „Ég hef huigsað mér að
keppa í tvö til þrjú ár emn
a. m. k.“
Og að síðustu. Hvaða keppni
er þér minnisstæðust?
— „Þátttakan og keppnin á
Olympíulaifcunum er mér
minnisstæðust, og ógleyman-
leg. Heilt ævintýri".
H.
Eru frjálsiþróttir á íslandi
algjörlega að lognast átaf?
Tvö frjálisíþróttamót hafa
verið haldin í Reykjavík á
þassu siuimri. Fyrst fór Vormót
IR fram og síðan EÓP-mótið.
1 bæði skiptin voru áhorfend-
ur svo fáir að keppendur og
sbaPfismenn mótsins, sem héldu
siig inn á vellmum sjálfum
voru líklega fleiri að tölu.
Þetta hefur víst verið svona í
fjöldaimörg ár. Fólk hefur ekki
áhuga á því aið koma á frjáls-
íþróttamótin, ekki ein-u sinni
landskeppnir þegar þær fara
fram. Hvað veldur þessu?
Ástæðuna vita vfst flestir en
hún er sú að hreinit út sagt,
að afrek frjálsíþróttaman'na
ökkar eru ekki nóigu góð til
þess að laða fólk á slík
mót. Annað var hér áður fyrr
þegar þúsundir manna komu
jaifnan á frjálsíþróttamótin. 1
dag eigum við ekki nema tvo
til þrjá afreksmcnn í frjáls-
íþróttuim sem eitthvað gætu
látið að sér kveða á erlendum
veltvaingi. Þetba er adlt og
sum.t.
1 öðru lagi er ástæðan fyrir
því að fólk sækir ekki frjáls-
íþróbtaimótin, að þaiu eru venju-
legast illa haldin. Þau gan.ga
seint o. s. frv. Að sjálfsögðu
væri hægt að tína fleira til af-
sökunar, en varast sikyldi að
stiiniga höfðinu í sandinn og
gera ekki neitt.
Það er sannarlega tími til
kominn að eitthvað verði gert
til þess að efla íslenzka
frjálsíþróttir, því þess ber að
gæta, að það verður alltatf eúf-
iðara og erfiðara að vinna upp
þaö sem tapast hefur á undan-
förnum árum, ef látið er drag-
ast að hefjast handa.
Upp með íslenzkar frjáls-
íþróttir! Það er engin fram-
bærileg ástæða til fyrir þeirri
deyfð sem nú ríkir í frjáls-
íþróttunum. Islendingar hafa
margs'innis sýnt þaö og sannað
að þeir geta staðið erlendum
frjálsíþróttamönnum á sporði.
En til þess að svo megi verðia
í framtíðinini verður að niota
öll meðul til þess aö koma
fjöri 1 alla starfsemdina. Þa9
er hægt ef alllir legigjast á eitt.
og ef allir aðdtar sem að þesis-
um málum standa, frjáls-
íþróttasiamíbandið, sérráðin, fé-
lögin og þjálfarar taka sig ti'l
og gcra stórt átak í þessum
málum. Hér verður allur fé-
lagarígur og pukurstarfsemi að
víkja. Félögin í Reykjavík
þurfa að koma sér saman um
að nýta sem bezt krafta sem
á þeirra vegum starfa. Hér
skal bent á aðeins eitt atriði
og það eru þjálflaramir. Miklu
skynsamilegra væri ef þjálfarar
félagam.na störfuðu saman og
skiptu með sér verkum. Einn
þeirra ætti að taka a<ð sér
þjálfun stökkvara, annar þjálf-
un hlaupara o. s. frv. Þjálf-
mál okkar gætu verið í miklu
betra lagi en nú er, ekki bara
í frjáls'íþróttum heldur einnig
í öðrum greinum íþrótta. Bezt
og líklegt til árangurs
væri að öll sérsamböndin
tækju höndum saman og at-
huguðu þjálfmál sín. Þau gætu
myndað þjálfararáð, er skipu-
leggði þjálfun íþróttamanna í
öllum greinum fyrir a/l'lt land-
ið. Þannig myndi þekking og
reynsla þjálfara okkar nýbast
mun betur em nú er, því þjálf-
ari, sem er e nn á báti og þarf
að sinúasit í ölluð fær efcki nöt-
ið sín.
Þelclcing er máttur segir rnált-
taeikið en hún bemur að litlu
gsigni etf hún er eklki hötfð í
öndvegi. Skipuleggjum þjálf-
málin, það er ein undinstaðan
fyrir framförum — einntg í
frjálsíþróttum.
TfU BEZTU
ALLRA TÍMA
Kúluvarp:
18.76 m Tsichova, Sovétr. 1068
18.34 m T. Press, Sovétr. 1963
17.69 m Gummel, A-Þýzkal. 1967
17.61 m Garisch, A-t>ýzkal. 1964
17.50 m Sybina, Sovétr. 1964
17.35 m Lange.A-Þýzkal. 1967
17.26 m Young, Nýja Sjál. 19«4
17.21 m I. Press. Sovétr. 1964
17.08 m Lendvayné-Bohnar, Ungv. 1967
17.06 m Líittge, A-Þýzkal. 1963
Kringdukast:
62.38 m Spielberg, A-Þýzkal. 1968
61.26 m Westerman, V-Þýzkal. 1967
59.70 m T. Press, Sovétr. 1965
59.02 m Hentschel, A-Þýzkal. 1966
57.86 m Kleiberné, Ungverjal. 1965
57.83 m Sjérbakóva, Sovétr. 1965
57.21 m Lotz, A-Þýzkal. 1964
57.19 m Kusnetsova, Sovétr. 1964
57.04 m Dumbadse, Sovétr. 1952
Spjótkast:
62.40 m Gortsjakóva, Sovétr. 1964
61.38 m Osolinaí Sovétr. 1963
60.68 m Penes, Rúmeníu 1967
60.55 m Friedrich, USA 1967
59.82 m Bair. USA 1967
59.70 m Luttge, A-Þýzkal. 1966
58.68 m Javorska, Póllandi 1967
58.36 m Rudasné, Ungverjal. 1965
57.83 m Popova, Sovétr. 1966
57.77 m Figver, Póllandi 1960