Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2023, Blaðsíða 16

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2023, Blaðsíða 16
Árni Björn Árnason Svavar Gunnþórsson er fæddur að Jaðri á Látra- strönd 1941, einn sex barna Gunnþórs Hall- grímssonar og Laufeyjar Guðlaugsdóttur sem þar bjuggu. Jaðar er um átta kílómetrum norðan Greni- víkur, kostarýr jörð, byggð út úr landi Svínár- ness. Eftir nokkurra ára búsetu á Jaðri keypti Gunnþór eyðibýlið Hrings- dal sem liggur að Jaðri að sunnan og jókst þá heyfengur af ræktuðu landi um helming. Bú- stofninn varð þó aldrei stærri en um 100 kindur og 5 kýr. Mjólk úr kúnum var flutt á hestakerru ann- an hvern dag þessa átta kílómetra sem til Greni- víkur var að fara og þar komið á mjólkurbíl sem flutti afurðina til Akureyrar. Jaðar fór í eyði 1957 þegar fjölskyldan flutti til Grenivíkur KEYPTIR OG SELDIR BÁTAR Hugur Svavars leitaði snemma til sjávar og sjómennska varð hans ævistarf. Fyrsti þorskurinn kom yfir borðstokkinn þá hann var sex ára gamall. Sá fékkst á fékkst á rauðan öngul sem frændi hans átti í fórum sínum. Farkosturinn var árabátur sem til var á Jaðri og notaður var til haustróðra eftir sláturtíð. Haustróðrana stunduðu Gunnþór, faðir Svavars, og Sigurður bóndi á Svínárnesi. Aflanum var skipt jafn á milli bæja, hann hengdur upp og hertur. Aðstaða til útgerðar frá Jaðri var nánast engin en sjávarhús var þó á sjávarbakk- anum og smá bryggjustertur fram úr fjörunni. Bryggjan var ekki merkilegt mannvirki og oftar en ekki sá brimið um að fjarlæga hana á haustin. Svavar hóf ævistarfið til sjós 1956 með föðurbróður sínum Ingimari Hallgríms- syni, Hrísey sem gerði út frá eynni og stóð vertíðin í þrjá mánuði. Árið 1960 keypti hann trilluna Hörð EA ásamt bróður sínu Viðari. Þarna var um tveggja tonna opna trillu að ræða með 5 til 8 hestafla Sabb vél. Bát þennan gerðu þeir bræður út frá Hrísey á vor- og haustver- tíð en voru á síld yfir sumarið. Árið 1961 eignaðist Svavars gamlan nótabát, smíðaðan í Svíþjóð, sem búið var að vélvæða með Volvo vél. Báturinn fékk nafnið Gullborg ÞH-153. Tíu tonna, eins árs gamlan, þilfarsbát eignaðist Svavar árið 1962 og gekk Gull- borg ÞH-153 upp í kaupin. Báturinn hét Brúni EA-71 þá Svavar fékk hann en Brúni TH-91 í hans eigu. Á þessu fari lenti Svavar og bróðir hans Viðar í mann- skaðaveðrinu 9. apríl 1963. 9. APRÍL 1963 Daginn þann voru þeir bræður í línuróðri undan Fjörðunum austan Eyjafjarðar. Í lok línudráttar var veður og sjólag orðið svo slæmt að með ólíkindum mátti telja. Línubölum ásamt meirihluta afla komu þeir bræður í lest en eitt tonn af fiski var þó í stíu á þilfari. Lestarlúgur negldu þeir fasta við lúgukarm. Til að forðast versta sjólagið og jafnvel grunnbrot fór Svavar djúpt fyrir Gjögur áður en beygt var inn í Eyjafjörðinn. Mesta veðurhæðin og versta sjólagið var frá Gjögurtánni og inn fyrir Kjálkanesið. Þarna undan ströndinni fékk báturinn á sig brot sem lagði hann á hliðina. Stíu- borð á þilfari brotnuðu og fiskurinn, sem í stíunni var, hreinsaðist fyrir borð. Sennilega hefði báturinn farist þarna ef Svafar hefði ekki sýnt þá fyrirhyggju þegar hann keypti bátinn að ganga frá ballest undir pöllum og negla pallana fasta við lestarbotninn. Ekki sást handa sinna skil fyrir hríð og sjóroki og dýptarmælir var óvirkur vegna þess að sjórinn var ein froða. Svavar áætlaði fjarlægð til lands af öldu- földunum þegar þeir fóru að hryggja sig við ströndina. Litlu munaði þó eitt sinn að of nærri landi væri farið því að aldan sprakk við stefni bátsins en Svavari tókst að bjarga málum með því að reka í bakk- gírinn og bakka svo sem vélin orkaði. Lensað var inn með ströndinni á hæg- ustu ferð þar til rekist var á legufæri bátsins fram af Kelduláginni þar sem Grenivíkurhöfn er nú. Vegna veðurs og sjólags var ekki í land komist fyrri en um hádegi daginn eftir. Sæfarinn Enn dvelst hugurinn við sjóinn. Svavar Gunnþórsson í Sandgerðisbótinni á Akureyri. Brúni EA-71. Á þessu fari lenti Svavar og bróðir hans Viðar í mannskaðaveðrinu 9. apríl 1963. 16 | Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.