Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2023, Blaðsíða 17

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2023, Blaðsíða 17
ÚR TIMBRI Í TREFJAPLAST Fjórða bátinn keypti Svavar ásamt bróð- ur sínum Guðlaugi árið 1971 og var það þilfarsbáturinn Gylfi EA-628. Hjá þeim bræðrum fékk hann nafnið Eyfirðingur ÞH-39. Fimmti bátur Svavars var opin trilla sem hann keypti 1974 frá Húsavík og fékk sá bátur nafnið Hugrún ÞH-240 en í dag- legu tali kallaður Sýsli því af sýslumanni var hann keyptur. Sýsli var með drátt- arspil sem létti vinnuna við netadrátt en fram til þess tíma var það handaflið eitt sem kom netunum inn fyrir borðstokk- inn. Árin 1979 og 1980 var Svavar með síldarnet út af Hringsdalnum og fékk á þessum árum um 400 til 500 tunnur af síld sem að mestu fór til frystingar í beitu. Seinna árið saltaði hann í 154 tunnur þegar nóg var komið af beitu- síldinni. Þessar tunnur seldi Svavar til útlanda og fékk greitt í nýkrónum eftir áramótin. Sjötta bátinn keypti hann 1986 og var þar kominn einn af svonefndum DAS bátum, smíðaður í Bátalóni. Báturinn fékk nafnið Hugrún ÞH-240. Bátur þessi er nú til sýnis á Sjóminjasafni Grenivík- ur. Allir bátar Svavars fram til 1997 höfðu verið af timbri gerðir en sá sjöundi var úr trefjaplasti og af gerðinni Víkingur 700. Báturinn sá fékk nafnið Hugrún ÞH-240. Bát þennan lét Svavar bæði lengja og dekka. Áttundi og síðasti bátur þessa sæfara hét Daney EA-240 og komst í eigu kappans árið 2009. Bátinn seldi Svavar árið 2022 og lagði þar með árar í bát og hætti öllu útgerðarstússi enda Elli kerling farin að minna á sig. Þilfarsbáturinn Gylfi EA-628. Hjá þeim bræðrum, Svavari og Guðlaugi, fékk báturinn nafnið Eyfirð- ingur ÞH-39. Árið 1997 eignaðist Svavar sinn fyrsta plastbát, Hugrúnu ÞH-240, sem var jafnframt sjöundi bátur Svavars.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.