Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2023, Blaðsíða 22
22 | Sjómannablaðið Víkingur
1
Norð-vestur íshafsleið
milli Atlantshafs og Kyrrahafs
– Þriðji og seinasti hluti –
Heiðar Kristinsson
INÚÍTAR STÖÐVUÐU SKIPIÐ
Eins og komið er fram lagði Manhattan af
stað í siglinguna 24. ágúst 1969 Skipið
var hlaðið vatni til þess að það yrði lestað
með djúpristu eins og um farm væri að
ræða.
Skipið hafði stutta viðkomu í Halifax fyrir
kurteisis sakir þaðan sem skipið fékk
fylgd ísbrjótsins John A. Macdonald sem
þá var öflugasti ísbrjótur í flota Kanada.
Skipin héldu sem leið liggur norður með
strönd Labrador og eftir stutta viðkomu í
flotahöfninni Thule á Grænlandi – til að
friða Dani – var haldið norðan við Baffin-
eyjar þaðan sem haldið var í Lancaster-
sund.
Sem fyrr segir var norð-vesturleiðin um-
deild í alþjóðasamskiptum þar sem
fullveldi þessara hafsvæða er krafist af
Kanada og á einum tímapunkti á ferðinni
stöðvuðu veiðimenn inúíta skipið og
kröfðust þess að skipstjórinn bæði um
leyfi til að fara í gegnum kanadískt yfir-
ráðasvæði, sem hann gerði og þeir veittu.
Heldur var nú ólíkur viðgjörningurinn á
skipum frumherjanna sem leituðu norð-
vestur leiðarinnar þar sem menn börðust
á seglskipum við óblíð náttúruöfl og skyr-
bjúg vegna einhæfs fæðis og fleiri hremm-
ingar.
Þó svo að náttúruöflin væru hin sömu og
margskonar hættur yfirvofandi þá var um
borð í Manhattan allur aðbúnaður og við-
gjörningur leiðangurs-manna með því
besta sem þekktist á þeim tíma. Þrjár
ríkulegar máltíðir bornar á borð hvern
dag, ávextir og grænmeti eins og hver
vildi og um borð var bókasafn og kvik-
myndir sýndar til afþreyingar.
Skipið hélt 5. september vestur Lancaster
sund og þurfti að brjóta sér leið gegnum
lagnaðarís og ísfláka sem sums staðar var
um 14 feta / 4,2 m að þykkt. Ferðin gekk
þó ekki verr en gert var ráð fyrir og með
aðstoð ísbrjótsins John A. Macdonald
seiglaðist þetta áfram eins og áætlað var
þar til komið var um 50 sjómílur inn í
Maclure sund en þá var ísinn orðinn mjög
þykkur allt að 60 fet (18,2 m) og dýpið
sums staðar aðeins 100 fet (30,5m).
Það þótti of áhættusamt að halda áfram
þessa leið og 10. september ákvað skip-
stjóri Manhattan að snúa við, halda sunn-
ar og reyna siglingu í gegnum Prince of
Wales sund milli Banks og Victoríueyja og
í Amundsen sund þar sem ferðin gekk
mun betur. Síðan var haldið vestur úr
Amundsen sundi og komið úr sundinu
14. september. Síðan sem leið liggur án
mikilla tafa vegna íss til hafnarinnar í
Prudhoeflóa þar sem komið var 19. sept-
ember. Siglingaleiðin var nær íslaus síð-
ustu 500 sjómílurnar.
Manhattan á leið í gegnum ísinn.
Manhattan í þoku og ís