Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2023, Blaðsíða 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2023, Blaðsíða 24
24 | Sjómannablaðið Víkingur 1 EIN JARÐOLÍUTUNNA Ekki var talið ráðlegt að lesta í skipið olíufarm til að taka með til baka enda hafði stjórn Kanada lagst gegn því. Til að hægt væri þó að tala um fyrstu olíuflutning- ana þessa leið var tekin ein tunna af jarðolíu og frá henni gengið rammlega í þilfars geymslu skips- ins áður en haldið var til baka. Manhattan sigldi frá Prudhoeflóa 21. september 1969. Í Viscount Melville sundi var skipið í mánað- ar tíma við prófanir og athuganir við margskonar aðstæður, prófanir á vélum og útreikningar á því hversu mikið afl þyrfti til að skip af þessari gerð kæmist leiðina án aðstoðar ísbrjóta. Ferðin gekk ágætlega þó tafir væru vegna íssins og út úr Lancastersundi fór skipið 30. október 1969 og kom til Halifax 8. nóvember 1969. Þaðan var haldið til New York og komið þangað 12. nóv- ember 1969. Eftir ferðina var skipið tekið í þurrkví til skoðunar og komu í ljós nokkrar skemmdir eftir barninginn við ís- inn, þó ekki meiri en svo að þær einar og sér gáfu ekki tilefni til að afskrifa sigl- ingaleiðina til olíuflutninga. ÖNNUR FERÐ SUMARIÐ 1970 Næsta sumar 1970 var enn lagt upp í ferð á Manhattan og átti að sigla sömu leið en nú með olíu til baka. Kanadamenn brugð- ust heldur önuglega við og upphófst margra ára pólitískt þref vegna málsins því að olíuflutninga vildu Kanadamenn alls ekki um þetta svæði. Af ferð Manhattans er það hins vegar að segja að eftir mikla erfiðleika á Baffinsflóa var hætt við 22. maí 1970. Eftir þessar ferðir höfðu menn fengið þá niðurstöðu að til þess að mögulegt væri að halda uppi olíuflutningum þessa leið þyrfti til þess 20 olíuskip af stærð Manhattans eða stærri, sér styrkt til siglinga ís og kostnaður við smíði hvers skips yrði umtals- vert hærri en venjulegra olíuskipa eða 60 til 70 miljón dollara á skip. Þrátt fyrir þennan gíf- urlega kostnað var talið að hann yrði aðeins hluti af kostnaði og rekstri olíuleiðslunnar frá Prudhoeflóa til Valdez sem talið var að yrði tveir milljarðar dollara. Olíuleiðsla var lögð á árunum 1975- 1977 frá Prudhoeflóa til Valdez, 800 mílna leið (1287 km) og tekur 5 ½ sólarhring fyrir olíuna að renna þennan spotta . „SIGLINGALEIÐIN VERÐUR ALDREI FÆR“ Það voru miklar vonir bundnar við siglingu Manhattan þessa leið og fréttir af sigl- ingunni voru fyrir- ferðamiklar á þeim tíma. Auk væntan- legra möguleika á olíuflutningum var um að ræða möguleika á opnun nýrra víð- áttumikilla landsvæða sem áður höfðu verið einangruð af heim- skautaísnum. Þar var um að ræða að því er talið var mikil nátt- úruauðæfi svo sem járn, kopar, silfur, nikkel, blý og fleiri málma. En það fór sem fór á þessum tíma og eftir síðari ferð Manhattan var haft eftir kanadískum prófessor í heimskautafræð- um að norð-vestur leiðin yrði aldrei fær né opin fyrir siglingar kaupskipa þó ís- styrkt væru, áhættan væri slík að siglingar um svæðið væru ekki verjandi. Nú rúmum 50 árum eftir að siglingin var farin eru gjörbreyttar aðstæður með hlýn- un jarðar. Ís er nú miklu mun minni en áður var og skip sigla bæði norð-vestur og norð-austurleið í nokkru mæli þó að ekki sé hægt að tala um mikla skipaumferð. Venta Maersk, ísstyrkt skip fyrir heim- skautasvæði í eigu Maersk skipafélagsins, fór norð-austur leiðina frá austurströnd Rússlands til Bremerhaven í október 2018 Olíulestunarstöð í Valdez. Kanadíski ísbrjóturinn, John A. Macdonald, sem fylgdi og aðstoðaði Manhattan í ferðinni ásamt bandaríska ísbrjótnum North Wind. Hér staddur við Baffineyju.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.