Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2023, Blaðsíða 46

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2023, Blaðsíða 46
Á gamla Gullfossi var verið að þrífa lestar eftir flutning á hrossum og síld, sem var mikið verk og vont. Þá gerð- ist það eftir sólahringslotu að hásetar og bátsmaður leituðu á náðir Bakkusar sér til hressingar, en áhrifin urðu al- veg öfug. Sofnuðu sumir, en aðrir slógu slöku við, þannig að ósýnt var hvort lestar yrðu kláraðar áður en lestun átti að hefjast. Þarna brugðust krosstré sem önnur tré og ljúfmennið Sig- urður Pétursson skipstjóri óhuggandi. Kom hann að máli við stýrimann sinn, Kristján Aðalsteinsson, síðar skipstjóra á nýja Gullfossi og fól honum að segja öllum mönnunum upp, svona nokkuð væri óverjandi. Stýri- maður gerði sem skipstjóri bauð og sagði öllum mönnunum upp. Skömmu síðar kom Sigurður skipstjóri aftur til stýrimanns hálfu aumari en fyrr. Sagðist ekki geta misst þennan og ekki hinn og taldi á fingrum sér og áður en Sigurður vissi af var hann bú- inn að nefna nöfn allra og þar með fyrir- gefa þeim. Bað skipstjóri nú stýrimann sinn að ræða við drykkjumenn um áframhaldandi veru á skipinu. Böggull fylgdi skamm- rifi, þeir mættu aldrei láta slíkt henda aftur eða að minnsta kosti láta vita áður og ekki mætti nema helm- ingurinn bregðast í einu. Kristján Aðalsteinsson skipstjóri hló mikið þegar hann sagði þessa sögu. á Englandi (á síðari hluta 19. aldar) var það talið ósiðsam- legt að setja bækur eftir karl- og kvenrithöfunda hlið við hlið í bókahillu, nema ef höf- undarnir voru hjón. * Kvænist um fram allt. Ef þið eignist góða konu verðið þið hamingjusamir en ef þið fáið slæma konu verðið þið heim- spekingar. Sókrates * „Hvaða Sylvíu varstu að tala um upp úr svefninum í nótt?“ spurði eiginkonan manninn sinn við morgunverðarborðið. „Sylvíu? Sylvíu?“ endurtók maðurinn. „Ó, jú, það er veð- hlaupahestur sem ég veðjaði svolítið á í gær, væna mín.“ Þegar maðurinn kom heim um kvöldið, og þau hjón voru sest að kvöldverði, sagði kon- an: „Hesturinn sem þú veðjað- ir á í gær hefur hringt tvisvar í dag og spurt um þig, væni minn.“ * Hjónin voru á listsýningu. Maðurinn var búinn að standa lengi fyrir framan stórt olíu- málverk sem bar nafnið „Vor“. Það var af ungri stúlku, töfr- andi fallegri, og var nekt hennar hulin af nokkrum vor- grænum laufblöðum sem komið var fyrir á hernaðarlega mikilvægum stöðum. Allt í einu gall við húsbóndaleg rödd eiginkonunnar: „Jósef, hvað ætlarðu að standa þarna lengi? Ætlarðu að bíða til hausts - eða hvað?“ * Maður sat við stofugluggann heima hjá sér og horfði út. Allt í einu kallar hann til konu sinnar, sem er í eldhúsinu: „Þarna er konan sem nágranni okkar er svo ástfanginn af.“ Konan fleygir frá sér diskum og bollum og kemur hlaup- andi inn í stofuna og veltir um lampa á leiðinni. „Hvar, hvar er hún?“ spyr hún másandi. „Þarna fyrir framan húsið þeirra.“ „Asninn þinn,“ hvæsir konan. „Þetta er konan hans.“ „Já, auðvitað, en ekki hvað?“ Gullfoss leggur að landi í Kaupmannahöfn. Ljósmynd / Úr safni Holger Petersen. Lestarhreinsunin LAUSN KROSSGÁTUNNAR! 46 | Sjómannablaðið Víkingur Heiðar Kristinsson sendi okkur þessa frásögn.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.