Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2023, Page 42

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2023, Page 42
42 | Sjómannablaðið Víkingur aðeins 250 metra fjarlægð. Eins og iðnir maurar bjástruðu Þjóðverjarnir við gera dekkbyssuna klára og brátt byrjuðu fyrstu sprengjurnar að springa yfir höfðum bresku sjómannanna. Þrátt fyrir markmið breskra stjórnvalda að vopna að minnsta kosti eitt þúsund kaupskip í einum hvelli - það er á innan við þremur mánuðum frá því að stríðið braust út sem tókst reyndar var Uskmouth gjörsamlega varnarlaust. Það var ekki einu sinni létt vélbyssa um borð. Hunter átti því ekki annan kost en að skipa körlunum að búa sig undir að yfirgefa skipið um leið og hann gerði sitt besta til að forðast sprengjuárás kaf- bátsins. Í fyrstu skutu Þjóðverjarnir árangurs- laust á möstrin til að eyðileggja loftnet Uskmouth en lækkuðu svo byssu- miðið og dældu skotum í skrokk skipsins. Hunter stóð enn í brúnni en sá brátt að staðan var vonlaus. Þjóð- verjarnir ætluðu sér að sökkva skip- inu hvað sem það kostaði. Hann sneri því vélsímann á stopp og gaf fyrir- skipun um að yfirgefa skipið. Á bátadekkinu hafði áhöfnin hraðar hendur við að sjó- setja björgunarbát- ana undir stöðugri skothríð frá kafbátn- um. Allt í einu hitti sprengja bátadekkið, s p r e n g j u b r o t u m rigndi yfir Bretana, annar björgunarbát- urinn eyðilagðist og þrír týndu lífi. Þrátt fyrir skothríðina tókst að sjósetja hinn bátinn sem rak hratt fram hjá kafbátnum þaðan sem skothríð- inni linnti ekki fyrr en Uskmouth hvarf í ljósum logum af haf- fletinum. Klukkan var rétt að verða hálf tvö um nóttina.Þjóðverjarnir skiptu sér ekkert frekar af skipbrotsmönnunum sem drógu upp segl. Alla nóttina og daginn eftir sigldu bresku sjómennirn- ir þéttsetnum bátnum í austur- átt. Sem betur fer var ekkert lát á haustblíðunni og seint um kvöldið komu skipverjar á ítalska gufuskipinu Juventus auga á björgunarbátinn. Ítalía hafði þá ekki enn blandað sér í stríðsátökin. Því var það að fjórum dögum síðar skiluðu Ítalirnir Hunter og áhöfn hans á land í ensku hafnarborginni Ramsgate, ekki fjarri sjálfri Lundúnarborg. Endursögn og stytting kafla úr bók Bernards Edward, The Quiet Heroes. British Merchant Seaman at War 1939- 1945, South Yorkshire 2010. Að viðbættum áherslupunktum úr riti Winstons Churchill, The Second World War. The Gathering Storm, 1. bindi, London 1949. U-43 var fyrst sjósettur í maí 1939, tæplega 77 metra langur, gat kafað niður á 230 metra dýpi, náði rúmlega 33 km. hraða á yfirborði sjávar en í kafi aðeins 14 km. Báturinn var í jómfrúarferð sinni þegar hann sökkti Uskmouth. Þegar heim kom var Ambrosius heiðraður með járnkrossinum fyrir góða frammistöðu. Myndin er af U-37, tekin í frönsku borginni Lorient, en U-37 var í alla staði sambærilegur við U-43. Mynd: Deutsches Bundesarchiv Djúpt út af Cape Finisterre eða Finisterrehöfða skárust leiðir Uskmouth og U-43 Þýskur kafbátur í leit að bráð. Heimildum ber ekki saman um fjölda þeirra er týndu lífi í árás U-43 á Uskmouth. Aðalheimildamaður okkar, Bernard Ed- wards, segir þrjá hafa fallið. Aðrir að tveir hafi týnt lífi. Þeim þriðja hafi verið bjargað um borð í franska tundurspillinn L’indomptable. Hitt er óum- deilt að Juventus bjargaði 22 skipverjum af Uskmouth.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.