Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2023, Qupperneq 43

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2023, Qupperneq 43
Sjómannablaðið Víkingur | 43 STRÁFELLDIR FYRIR ENGAN ÁVINNING Kvikmyndin Gallipoli með Mel Gibson og Mark Lee í aðalhlutverkum gerði ódauð- lega árás Ástralíumanna á Russels hæð þann 7. ágúst 1915 í herferðinni gegn Tyrkjum í fyrri heimsstyrjöld. Fimm hundruð menn úr áströlsku létt- riddarasveitinni voru sendir af stað í fjór- um bylgjum til að ráðast á hæðina sem Tyrkir vörðu. Varnarliðið hafði grafið sig niður og var þungvopnað. Stórskotahríð flotans, sem átti að bæla Tyrkina niður fyr- ir árásina, hafði af óskiljanlegum ástæðum hætt sjö mínútum of snemma. Ástralarnir voru hikandi og vissu ekki hvort þeir ættu að gera árás þegar í stað eða bíða. Þeir ótt- uðust að ef þeir færu of snemma af stað myndu herskipafallbyssurnar byrja aftur að spúa eldi og eimyrju og þeir lenda í miðri hríðinni. Ástralarnir biðu því í sjö mínútur og gáfu Tyrkjum þannig tíma til að ná áttum. Þegar fyrsta 150 manna bylgjan flæddi upp úr skotgröfunum varð hún fyrir kúlnaregni af aðeins 60 metra færi. Árásarliðið átti sér ekki viðreisnar von og stráfell. Innan tveggja mínútna var önnur bylgja tilbúin að hlaupa af stað enda þótt lík 150 hermanna lægju í veginum. En allt kom fyrir ekki. Þeim var skipað til árásar og stráféllu allir sem einn á aðeins örfáum sekúndum. Þriðja bylgjan, undir stjórn Todds majórs, bjó sig nú undir að fylgja á eftir. Todd benti á að árásin væri tilgangslaus sóun á mannslífum. Athugasemd hans var komið til Johns M. Antill ofursta. En Antill stóð í þeirri trú að ástralski fáninn hefði þegar verið dregin að hún yfir skotgröfum Tyrkja og skipaði Todd að styðja hina hraustu en ímynduðu Ástralíumenn sem að sögn áttu að hafa brotist í gegn um víglínu Tyrkja. Enn þustu áströlsku hermennirnir upp úr skotgröfunum til þess eins að falla eins og flugur fyrir óvæginni skothríð varnarliðsins. Antill var þó ekki á því að gefast upp. Áfram skyldi haldið. Í fjórða skiptið var blásið til árásar og líkin héldu áfram að hrúgast upp aðeins steinsnar frá skotgröf- um bandamanna. Alls höfðu 500 hermenn tekið þátt í áhlaupinu, af þeim féllu 234 og 138 voru sárir. LJÓSBLETTUR Á SKJÁ Árás Japana á Pearl Harbour 7. desember 1941 kom svo gersamlega á óvart að um það hefur verið deilt í löngu máli hvort Roosevelt forseti hafi hreinlega leyft Japönum að gera árás til að fá ástæðu og afsökun til að hleypa Bandaríkjunum í stríðið gegn Þýskalandi og Japan. Enginn þungavigtar-sagnfræðingur hefur þó tekið undir slíkar bollaleggingar. Hitt er alveg víst að amerísku foringjarnir á Hawaii voru gjörsamlega grunlausir um þau ósköp sem voru um það bil að skella á þeim. Þrátt fyrir vaxandi spennu á milli Bandaríkjanna og Japan flutu hernaðaryf- irvöld í Pearl Harbour steinsofandi að feigðarósi. Ráðstafanir þeirra til að verjast skyndiárásum – sérgrein Japana – voru hvorki fugl né fiskur. Japanir hugsuðu hins vegar ráð sitt vand- lega. Þeir lögðu til atlögu á sunnudegi sem var engin tilviljun. Á þessum hvíldardegi myndi kristinn her Bandaríkjanna vera til- tölulega slakur, njóta afslöppunar og dægradvalar. Eflaust hefðu einhverjir kallað þetta mikla bjartsýni. Nýleg Gallup-könnun í Banda- ríkjunum hafði leitt í ljós að rúmlega helmingur þjóðarinnar gerði ráð fyrir að senn brytist út stríð við Japan. Stríðsógnin var því raunveruleg og 96 herskip í höfn- inni hefðu átt að undirstrika nauðsyn þess fyrir sjóherinn í Pearl Harbour að halda vöku sinni. Fyrir fram hefði því mátt ætla það mikla bjartsýni af hálfu Japana að halda að þeir gætu komið á óvart. Svo var þó ekki. Þeir hittu þvert á móti naglann á höfuðið. Um- ræddan dag hafði Husband E. Kimmel að- Russels hæð og Perluhöfn Mistök í hernaði Antill ofursti, skín af honum sjálfbirgingurinn? Antill í vígahug.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.