Víkurfréttir - 23.05.2024, Blaðsíða 6
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319. Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmói 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421-0000. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893-3717, pket@vf.is. Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson, s. 898-2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421-0001, andrea@vf.is. Blaðamenn: Jóhann Páll Kristbjörnsson og Sigurbjörn Daði Dagbjartsson.
Útlit og umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson og Hilmar Bragi Bárðarson. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is
Rétturinn
Ljúengur
heimilismatur
í hádeginu
Opið:
11-13:30
alla virka daga
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Heyrn // Hlíðasmára 19 // Kópavogur // heyrn@heyrn.is //
HEYRNARTÆKI // HEYRNARGREINING // RÁÐGJÖF
Heyrðu umskiptin,
fáðu heyrnartæki
til reynslu
HEYRN.ISvf is
Þú finnur allar
nýjustu fréttirnar
frá Suðurnesjum á
ORÐALEIT Finndu tuttugu vel falin orð
Þú finnur allt það nýjasta í
sjónvarpi frá Suðurnesjum á vf.is
Lumar þú á ábendingu um áhugavert
efni í Suðurnesjamagasín?
Sendu okkur línu á vf@vf.is
Loðnuveiðar hófust frá Sandgerði
Samkvæmt dagatalinu þá á að
vera komið sumar en miðað
við hversu kalt er búið að vera
á Suðurnesjum síðustu daga,
þá fer eitthvað lítið fyrir þessu
blessaða sumri.
Þrátt fyrir kuldann var mikið
um að vera í Sandgerði vikuna
fyrir hvítasunnuhelgina því hátt í
60 bátar voru að landa á hverjum
degi í Sandgerði og af þeim voru
um 50 til 54 strandveiðibátar.
Veiði s trandveiðibátanna
var mjög góð og náðu þeir allir
skammtinum sínum – og smá
auka með því töluvert er að ufsa í
afla bátanna. Bátarnir voru flestir
á veiðum við Garðskagavita og
síðan meðfram ströndinni áleiðis
að Reykjanestá.
Það er kannski oft mikið mál
að fjalla um alla strandveiði-
bátana sem eru að veiða en lítum
á nokkra. Gullfari HF 4,5 tonn í
sex róðrum, Guðrún GK 7,1 tonn
í sjö róðrum, Dýrið GK 6,7 tonn í
átta róðrum, Gola GK 6,5 tonn í
átta róðrum, Margrét SU 5,5 tonn
í sjö róðrum, Hafdalur GK 8,8 tonn
í átta róðrum, Tóki ST 6,9 tonn í
níu róðrum, Giddý GK 6,7 tonn í
sjö róðrum, Dímon GK 6,6 tonn í
átta, Sandvík KE 6,4 tonn í sjö og
Kiddi GK 6,3 tonn í átta róðrum,
allir bátarnir að landa í Sandgerði.
Einn af þeim bátum sem hefur
verið á strandveiðunum er nýr
bátur sem heitir Hadda HF 52.
Skipstjóri og eigandi bátsins er
Þorvaldur Árnason en hann lenti
í því óhappi að 129 metra langt
flutningaskip, sem var á siglingu
utan við Garðskagaflösina, og bát-
urinn Hadda HF lentu í árekstri og
Höddu HF hvolfdi. Sem betur fer
var Arnar Magnússon, skipstjóri,
rétt hjá bátnum og náði Arnar að
bjarga Þorvaldi. Hadda HF var
síðan dregin til hafnar í Sandgerði
og maraði báturinn í kafi alla
leiðina til Sandgerðis.
Nafnið Hadda er Sandgerð-
ingum ansi vel kunnugt því móðir
Þorvalds, Halldóra Þorvaldsdóttir,
var kölluð þessu nafni. Hún bjó
með manni sínum, Árna Árnasyni,
í Landakoti í Sandgerði. Bróðir
Árna var Óskar Árnason sem rak
rækjuverksmiðju í Sandgerði sem
bar nafn hans og rak hann rækju-
verksmiðjuna í hátt í 25 ár. Ég
sjálfur vann meðal annars í rækju-
verksmiðjunni og þá var Hadda
líka að vinna þar.
Hadda og Árni voru saman í út-
gerð og gerðu út eikarbát í mörg
ár sem hét Hjördís GK en sá bátur
sökk utan við Stafnes árið 1990.
Árni Árnason lést árið 1993 og áttu
þau þá plastbát sem hét Hafdís GK
32. Eftir að Árni lést gerði Hadda
út Hafdísi GK til 1997 þegar að
báturinn var seldur. Saga Hafdísar
endaði árið 2008.
Faðir Árna hét Árni Magnússon
en árið 1963 hafði hann verið
skipstjóri á bátum frá Sandgerði
og gekk mjög vel en hann ásamt
bróður sínum, Einar Magnússyni,
og skipstjóranum Hrólfi Gunn-
arssyni fengu glænýjan bát í júní
árið 1963 og fékk hann nafnið Árni
Magnússon GK 5. Hrólfur Gunn-
arsson var mikill aflaskipstjóri og
má geta þess að þessi sami bátur
var einn af fyrstu bátum hérna á
Íslandi til þess að veiða loðnu en
það var í febrúar árið 1964.
Fram að þeim tíma var ekki
litið við loðnu og voru allir bátar
sem voru á nótaveiðum á síld
og enginn var að spá í loðnunni.
Þarna í febrúar árið 1964 fékk
Árni Magnússon GK fullfermi af
loðnu sem voru tæp 160 tonn og
þar sem enginn bræðsla vildi kaupa
loðnuna var henni allri landað og
seld línubátasjómönnum um allt
Suðurland og Vestfirði.
Í veiðiferð númer tvö reyndi
Hrólfur að selja bræðslum loðnuna
en það var ekki fyrr en Guðmundur
Jónsson, sem þá var með loðnu-
verksmiðju í Sandgerði, ákvað að
kaupa fyrsta loðnufarminn og þar
með hófust loðnuveiðar hérna við
land. Þannig að báturinn Hadda
HF og saga fjölskyldu Þorvalds
skipstjóra er ansi merkileg með
tilliti til þess að það var fólk í hans
fjölskyldu sem var fyrst til þess að
hefja loðnuveiðar og heimabærinn
þeirra, Sandgerði, var fyrsti bærinn
á landinu til þess að bræða loðnu.
AFLAFRÉTTIR
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
Áhöfn björgunarskipsins Hannesar Þ.
Hafstein hefur haft í nógu að snúast
síðan strandveiðitímabilið hófst í upphafi
mánaðar. Mis alvarleg útköll hafa borist.
Vélarvana bátar hafa verið sóttir og þá
hafa komið útköll á efsta forgangi, eins
og greint er frá á öðrum stað í blaðinu.
Hér sáum við björgunarskipið koma með
vélarvana bát til Sandgerðis. Á innfelldu
myndinni sést Hannes með gamla vitann
á Garðskaga í forgrunni. VF/Hilmar Bragi
N O R Ð U R L J Ó S
L Ö G R E G L U S T J Ó R I
S T R I K A M E R K I
VAT N S L Ö G N
H I TAV E I TA
B Ú K O L L U R
T Ó M A R Ú M
S A M U R
I N N B R O T
S T U R L U N G A
F L U G U R
S A G N A S T U N D
R J Ó Ð U R
K R Ú S
TA G L
L U M M A
O R Ð A F O R Ð I
A Þ E N A
M U N A Ð U R
U R M U L L
H
N
A
A
N
Ö
S
I
S
G
V
J
T
L
A
V
K
S
S
K
G
O
Ó
B
S
N
T
K
A
J
T
R
R
M
Ú
M
Ú
Ó
E
Ú
H
A
S
M
R
I
M
G
Ú
Ó
G
L
Ð
Ó
G
T
R
K
M
S
R
K
L
Ð
F
Ú
S
F
Æ
R
N
N
E
S
G
Ú
T
T
R
N
G
U
R
A
A
S
K
É
F
G
I
Ð
A
S
L
S
B
L
P
Ú
T
É
G
U
I
E
A
A
T
S
U
L
I
A
R
U
O
M
M
T
A
Ó
U
U
É
L
R
O
S
R
A
N
N
Ó
L
T
S
U
J
G
Æ
G
Ð
S
Ð
A
Ð
A
U
R
A
A
J
U
Ð
U
K
R
D
N
D
Ð
I
M
Ó
T
B
N
R
L
E
U
R
T
É
S
B
A
J
U
A
U
R
Ó
U
P
T
A
L
Ó
G
I
Þ
É
E
S
É
S
A
E
R
D
O
R
U
U
Ó
T
A
Ö
N
U
É
E
L
M
Þ
K
L
R
Æ
F
A
U
L
Gangi þér vel!
6 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum