Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.05.2024, Qupperneq 6

Víkurfréttir - 23.05.2024, Qupperneq 6
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319. Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmói 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421-0000. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893-3717, pket@vf.is. Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, s. 898-2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421-0001, andrea@vf.is. Blaðamenn: Jóhann Páll Kristbjörnsson og Sigurbjörn Daði Dagbjartsson. Útlit og umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson og Hilmar Bragi Bárðarson. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is Rétturinn Ljúengur heimilismatur í hádeginu Opið: 11-13:30 alla virka daga   Bílaviðgerðir Smurþjónusta    Varahlutir Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík sími 421 7979 www.bilarogpartar.is Heyrn // Hlíðasmára 19 // Kópavogur // heyrn@heyrn.is // HEYRNARTÆKI // HEYRNARGREINING // RÁÐGJÖF Heyrðu umskiptin, fáðu heyrnartæki til reynslu HEYRN.ISvf is Þú finnur allar nýjustu fréttirnar frá Suðurnesjum á ORÐALEIT Finndu tuttugu vel falin orð Þú finnur allt það nýjasta í sjónvarpi frá Suðurnesjum á vf.is Lumar þú á ábendingu um áhugavert efni í Suðurnesjamagasín? Sendu okkur línu á vf@vf.is Loðnuveiðar hófust frá Sandgerði Samkvæmt dagatalinu þá á að vera komið sumar en miðað við hversu kalt er búið að vera á Suðurnesjum síðustu daga, þá fer eitthvað lítið fyrir þessu blessaða sumri. Þrátt fyrir kuldann var mikið um að vera í Sandgerði vikuna fyrir hvítasunnuhelgina því hátt í 60 bátar voru að landa á hverjum degi í Sandgerði og af þeim voru um 50 til 54 strandveiðibátar. Veiði s trandveiðibátanna var mjög góð og náðu þeir allir skammtinum sínum – og smá auka með því töluvert er að ufsa í afla bátanna. Bátarnir voru flestir á veiðum við Garðskagavita og síðan meðfram ströndinni áleiðis að Reykjanestá. Það er kannski oft mikið mál að fjalla um alla strandveiði- bátana sem eru að veiða en lítum á nokkra. Gullfari HF 4,5 tonn í sex róðrum, Guðrún GK 7,1 tonn í sjö róðrum, Dýrið GK 6,7 tonn í átta róðrum, Gola GK 6,5 tonn í átta róðrum, Margrét SU 5,5 tonn í sjö róðrum, Hafdalur GK 8,8 tonn í átta róðrum, Tóki ST 6,9 tonn í níu róðrum, Giddý GK 6,7 tonn í sjö róðrum, Dímon GK 6,6 tonn í átta, Sandvík KE 6,4 tonn í sjö og Kiddi GK 6,3 tonn í átta róðrum, allir bátarnir að landa í Sandgerði. Einn af þeim bátum sem hefur verið á strandveiðunum er nýr bátur sem heitir Hadda HF 52. Skipstjóri og eigandi bátsins er Þorvaldur Árnason en hann lenti í því óhappi að 129 metra langt flutningaskip, sem var á siglingu utan við Garðskagaflösina, og bát- urinn Hadda HF lentu í árekstri og Höddu HF hvolfdi. Sem betur fer var Arnar Magnússon, skipstjóri, rétt hjá bátnum og náði Arnar að bjarga Þorvaldi. Hadda HF var síðan dregin til hafnar í Sandgerði og maraði báturinn í kafi alla leiðina til Sandgerðis. Nafnið Hadda er Sandgerð- ingum ansi vel kunnugt því móðir Þorvalds, Halldóra Þorvaldsdóttir, var kölluð þessu nafni. Hún bjó með manni sínum, Árna Árnasyni, í Landakoti í Sandgerði. Bróðir Árna var Óskar Árnason sem rak rækjuverksmiðju í Sandgerði sem bar nafn hans og rak hann rækju- verksmiðjuna í hátt í 25 ár. Ég sjálfur vann meðal annars í rækju- verksmiðjunni og þá var Hadda líka að vinna þar. Hadda og Árni voru saman í út- gerð og gerðu út eikarbát í mörg ár sem hét Hjördís GK en sá bátur sökk utan við Stafnes árið 1990. Árni Árnason lést árið 1993 og áttu þau þá plastbát sem hét Hafdís GK 32. Eftir að Árni lést gerði Hadda út Hafdísi GK til 1997 þegar að báturinn var seldur. Saga Hafdísar endaði árið 2008. Faðir Árna hét Árni Magnússon en árið 1963 hafði hann verið skipstjóri á bátum frá Sandgerði og gekk mjög vel en hann ásamt bróður sínum, Einar Magnússyni, og skipstjóranum Hrólfi Gunn- arssyni fengu glænýjan bát í júní árið 1963 og fékk hann nafnið Árni Magnússon GK 5. Hrólfur Gunn- arsson var mikill aflaskipstjóri og má geta þess að þessi sami bátur var einn af fyrstu bátum hérna á Íslandi til þess að veiða loðnu en það var í febrúar árið 1964. Fram að þeim tíma var ekki litið við loðnu og voru allir bátar sem voru á nótaveiðum á síld og enginn var að spá í loðnunni. Þarna í febrúar árið 1964 fékk Árni Magnússon GK fullfermi af loðnu sem voru tæp 160 tonn og þar sem enginn bræðsla vildi kaupa loðnuna var henni allri landað og seld línubátasjómönnum um allt Suðurland og Vestfirði. Í veiðiferð númer tvö reyndi Hrólfur að selja bræðslum loðnuna en það var ekki fyrr en Guðmundur Jónsson, sem þá var með loðnu- verksmiðju í Sandgerði, ákvað að kaupa fyrsta loðnufarminn og þar með hófust loðnuveiðar hérna við land. Þannig að báturinn Hadda HF og saga fjölskyldu Þorvalds skipstjóra er ansi merkileg með tilliti til þess að það var fólk í hans fjölskyldu sem var fyrst til þess að hefja loðnuveiðar og heimabærinn þeirra, Sandgerði, var fyrsti bærinn á landinu til þess að bræða loðnu. AFLAFRÉTTIR Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is Áhöfn björgunarskipsins Hannesar Þ. Hafstein hefur haft í nógu að snúast síðan strandveiðitímabilið hófst í upphafi mánaðar. Mis alvarleg útköll hafa borist. Vélarvana bátar hafa verið sóttir og þá hafa komið útköll á efsta forgangi, eins og greint er frá á öðrum stað í blaðinu. Hér sáum við björgunarskipið koma með vélarvana bát til Sandgerðis. Á innfelldu myndinni sést Hannes með gamla vitann á Garðskaga í forgrunni. VF/Hilmar Bragi N O R Ð U R L J Ó S L Ö G R E G L U S T J Ó R I S T R I K A M E R K I VAT N S L Ö G N H I TAV E I TA B Ú K O L L U R T Ó M A R Ú M S A M U R I N N B R O T S T U R L U N G A F L U G U R S A G N A S T U N D R J Ó Ð U R K R Ú S TA G L L U M M A O R Ð A F O R Ð I A Þ E N A M U N A Ð U R U R M U L L H N A A N Ö S I S G V J T L A V K S S K G O Ó B S N T K A J T R R M Ú M Ú Ó E Ú H A S M R I M G Ú Ó G L Ð Ó G T R K M S R K L Ð F Ú S F Æ R N N E S G Ú T T R N G U R A A S K É F G I Ð A S L S B L P Ú T É G U I E A A T S U L I A R U O M M T A Ó U U É L R O S R A N N Ó L T S U J G Æ G Ð S Ð A Ð A U R A A J U Ð U K R D N D Ð I M Ó T B N R L E U R T É S B A J U A U R Ó U P T A L Ó G I Þ É E S É S A E R D O R U U Ó T A Ö N U É E L M Þ K L R Æ F A U L Gangi þér vel! 6 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.