Víkurfréttir - 23.05.2024, Síða 8
Tíu ára farin að safna námsbókum
því hún ætlaði að verða kennari
Lóa Björg Gestsdóttir er nýr skólastjóri Heiðarskóla í Keflavík
Lóa Björg Gestsdóttir, nýráðin skólastjóri Heiðarskóla í Keflavík,
er fædd og uppalin í Keflavík. Hún segist hafa átt góðan vinahóp
og frábæra fjölskyldu þegar hún var að alast upp. Lóa var mikið í
íþróttum á yngri árum og tók þátt í öllum boltaíþróttum sem voru
í boði í Keflavík á þeim tíma. Skiptir þá engu hvort um að að ræða
handbolta, fótbolta eða körfubolta. „Það var mikið lán að fá að alast
upp í því umhverfi,“ segir hún. Lóa var m.a. í gullaldarliðinu þar
sem þær Annar María Sveinsdóttir og Björg Hafsteinsdóttir voru
stóru stjörnurnar og hún rifjar upp að það hafi verið einstakt að sex
æskuvinkonur sem halda mikið hópinn, Anna María Sigurðardóttir,
Ásdís Þorgilsdóttir, Lilja Sæmundsdóttir, María Rut Reynisdóttir og
Sigrún Haraldsdóttir, hafi náð því að verða saman Íslandsmeistarar
í handbolta, fótbolta og körfubolta í yngri flokkum. „Það eru ekki
margir sem geta státað af því saman,“ segir Lóa og brosir þegar hún
rifjar upp þessi gömlu afrek.
Byrjaði í Myllubakkaskóla
Lóa Björg er eiginkona og móðir,
eiginmaður hennar er Guðmundur
Skúlason. Hún á tvo drengi sem eru
orðnir fullorðnir og eru 22 og 26
ára gamlir. Hún hefur starfað víða
en lang mest í skólaumhverfinu.
Hún hóf ferilinn í Myllubakkaskóla
þegar Vilhjálmur heitinn Ketilsson
réði hana þangað. Þar var hún í eitt
ár áður en hún fór í kennaranámið
og kláraði það. Þaðan lá leiðin í
Holtaskóla. Úr Holtaskóla var Lóa
numin yfir heiðina í Sandgerði.
Þar starfaði hún sem deildarstjóri
við Sandgerðisskóla í átta ár með
góðum leiðtoga. Í Sandgerði ákvað
hún að söðla um og horfa á skólann
utan frá og réð sig sem náms-
brautastjóra til Isavia í fimm ár.
Núna er Lóa á fjórða ári í Heiðar-
skóla og orðin skólastjóri þar.
Hvað var það sem dró þig í
skólann? Þú ert komin með víð-
tæka reynslu þar.
„Ég var heppin með kennara
þegar ég var yngri. Ég átti flotta
kennara sem lögðu ekki bara rækt
við námið, heldur einnig hvernig
manneskjur við vorum og ólu
okkur svolítið upp. Ég ákvað mjög
fljótlega að ég ætlaði að verða
kennari. Ég var að ég held tíu ára
þegar ég byrjaði að safna námsbók-
unum. Ég útskrifaðist sem stúdent
á haustönninni og það var þá sem
Vilhjálmur heitinn náði að plata
mig til að vera forfallakennari eina
önn. Þá var ekki aftur snúið, þetta
heillaði mig algjörlega.
Ég fór þá í kennaranámið en
náði ekki að klára það alveg þar
sem ég eignaðist drengina mína
sem voru báðir miklir fyrirburar og
ég þurfti að einbeita mér að því. Ég
hitti svo Jónínu Guðmundsdóttur,
sem þá var aðstoðarskólastjóri í
Holtaskóla. Þá var verið að breyta
skólanum þannig að hann varð
fyrir nemendur í fyrsta til tíunda
bekk en hafði áður verið gagn-
fræðaskóli fyrir eldri nemendur. Ég
var ráðin þangað og lærði mikið af
því fólki sem þar var.“
Búin að vera mikil reynsla
Nú ertu búin að vera í Heiðar-
skóla í fjögur ár. Hvernig er að
vera hér?
„Bara gaman og þetta er búin að
vera ótrúlega mikil reynsla. Ég kem
hingað árið 2020 í kórónuveirufar-
aldrinum. Ég kem inn um haustið
en faraldurinn var búinn að vera
frá því í mars. Fólk var í hólfum hér
og þar og það tók því smá tíma að
komast inn. En hérna er ofboðslega
flott starfsfólk og góður starfsandi
og það sem við gerum vel í Heiðar-
skóla er að taka á móti nýju fólki.
Hér er gott að starfa og fólk búið
að vera hérna lengi. Hér líður bæði
starfsfólki og börnum vel og það er
það sem við horfum helst til. Þess
vegna er gott að vera hér. Ég er að
taka við sprotanum af Bryndísi
Jónu Magnúsdóttur, sem hefur
staðið sig frábærlega vel, og nú er
bara að láta skólann skína skært
áfram, eins og hann hefur verið að
gera.“
Það er talað um að allir skólar
hafi sinn brag. Hvernig er Heið-
arskóli?
„Heiðarskóli er kjarnaskóli. Ég er
að kynnast því núna í Reykjanesbæ
að skólastjórnendasamfélagið er
svo öflugt. Þetta eru sjö grunn-
skólar. Við vinnum mikið saman
og leitum ráða hjá hvort öðru. Það
er gott og heillar mig mikið. Það
sem Heiðarskóli hefur er háttvísi,
hugvit og heilbrigði og það eru lyk-
ilorð skólans. Við vinnum með það.
Við erum heilbrigð og tökum
þátt í Skólahreysti og stefnum alltaf
hátt. Það er hátt hlutfall nemenda
í Heiðarskóla sem stunda íþróttir
eða tómstundir.
Við erum líka skapandi skóli.
Bygging skólans er einföld, það
liggur ein gata í gegnum skólann.
Öðru megin eru bekkjarstofurnar
og beint á móti þeim eru verk-
greinar. Stofurnar eru stórar og við
viljum halda skapandi starfi hátt á
lofti og að geta skilað verkefnum á
margskonar máta.
Í hugvitinu erum við tækni-
skóli. Það er hröð tækniþróun og
vil þurfum að halda okkur á þeim
vagni.
Í háttvísi erum við uppbygg-
ingarstefnuskóli og byggjum á
þeirri stefnu. Það skiptir öllu máli
að börnunum líði vel. Við vitum að
ef okkur líður ekki vel þá vegnar
okkur ekki vel. Börnunum þarf að
líða vel til að vegna vel í námi og
skóla. Það skiptir máli.“
Ekki að taka U-beygju
Ertu að fara að breyta einhverju?
„Ég er ekki að fara að taka
U-beygju, það er alveg á hreinu.
Hérna er flott og gott starf. En
með nýjum stjórnanda koma
nýjar áherslur. Það skiptir mig
máli að hafa gildi sem manneskja.
Ég fylgi mínum gildum í stjórnun
og í lífinu og ég vil efla hvern leið-
toga innan skólans, hvort sem það
er starfsfólk eða nemendur og það
mun ég leggja áherslu á. Það hefur
líka verið gert áður og við höldum
áfram því starfi sem hér hefur
verið og er flott. Svo sái ég mínum
fræjum.
Í dag eru nemendur Heiðar-
skóla 447 talsins og hefur fjölgað
um 40 í vetur en þegar skólastafið
hófst síðasta haust voru nemendur
407 talsins. Það hafa því bæst við
samtals tvær bekkjadeildir í vetur.
Barnafólki í skólahverfinu er að
fjölga, hverfið er að yngjast. Eins
og staðan er núna verða um 460
nemandi sem sækja skólann næsta
haust. Það þýðir að í haust verður
þremur bekkjardeildum meira í
skólanum en síðasta haust. Lóa
segir að skólinn sé núna að glíma
við húsnæðisskort og þá þurfi
að hugsa aðeins út fyrir kassan
og huga vel að nemendum og
starfsfólki. Þá er hluti af fjölgun-
inni börn sem eru að koma frá
Grindavík. Þau koma inn með
allskonar líðan, eðlilega eftir það
sem þau hafa gengið í gegnum. Lóa
segir allt gert til að taka vel á móti
þeim og öllum nýjum nemendum
Heiðarskóla.
Skólahreysti hluti af
skólastarfinu
Úrslitin í Skólahreysti eiga eftir að
fara fram og það var saga til næsta
bæjar að Heiðarskóli komst ekki
í úrslit að þessu sinni. Hvernig
brugðust nemendur við því?
„Það voru alls konar tilfinningar
en við erum staðráðin í að vera í
úrslitum á næsta ári. Skólahreysti
er líka orðin hluti af skólastarfinu.
Þetta er valgrein hjá okkur og að
velja þetta ótrúlega margir. Svo
er alltaf undankeppni í skólanum
þar sem nemendur keppast um
að komast í keppnislið skólans.
„Keppnin er hörð og það er mikill
metnaður hjá íþróttakennurum
okkar fyrir þessu. Það er súrt að
vera ekki með núna í úrslitum
en Holtaskóli heldur uppi heiðri
Reykjanesbæjar. Við höldum öll
með Holtaskóla að þessu sinni.“
Nú er sumarið að koma og
skólinn að klárast á næstu dögum.
Lóa segir braginn breytast í maí.
Nemendur vilja komast út úr húsi
og allir eru farnir að vaka lengur.
Hún segir að núna þurfi að hugsa
út fyrir boxið og breyta skóla-
starfinu síðustu vikurnar. „Það má
líka læra stærðfræði úti. Það þarf
ekki að sitja inni í stofu til þess.
Það er búið að vera gaman síð-
ustu vikur að horfa á starfsfólkið
að breyta skólastarfinu í takti við
vorið,“ segir Lóa Björg Gestsdóttir,
nýr skólastjóri Heiðarskóla.
Lóa Björg Gestsdóttir var á dögunum
ráðin skólastjóri Heiðarskóla í Keflavík.
Viðtal og mynd: Hilmar Bragi Bárðarson
8 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum