Víkurfréttir - 23.05.2024, Qupperneq 13
Atkvæðagreiðsla utan kjör-
fundar vegna forsetakosninga
1. júní 2024
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakosninga er hafin á skrifstofu sýslumannsins
á Suðurnesjum að Vatnsnesvegi 33, Reykjanesbæ.
Unnt er að greiða atkvæði alla virka daga frá klukkan 08:30 til 19:00 og á laugardögum
frá klukkan 10:00 til 14:00.
Á kjördag, 1. júní, verður opið fyrir kosningu hjá sýslumanni frá klukkan 10:00 til 14:00, en
einungis fyrir þá sem eiga lögheimili utan umdæmisins og verða viðkomandi sjálfir að koma
atkvæði sínu til skila.
Einnig má kjósa utan kjörfundar á sveitarstjórnarskrifstofunum í Vogum og í Garði, á af-
greiðslutíma skrifstofanna, sjá nánar á heimasíðum sveitarfélaganna.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar á sjúkrahúsum og hjúkrunar- og dvalarheimilum aldraðra
í umdæminu fer fram dagana 27. til 29. maí nk. skv. neðangreindu:
• Dvalarheimili aldraðra – Nesvöllum, þann 27. maí, frá klukkan 13:00 til 15:00
að Njarðarvöllum 2, 260 Reykjanesbæ.
• Dvalarheimili aldraðra – Hlévangi, þann 28. maí, frá klukkan 13:00 til 15:00
að Faxabraut 13, 230 Reykjanesbæ.
• Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, þann 29. maí, frá klukkan 13:00 til 15:00
að Skólavegi 6, 230 Reykjanesbæ.
Hafi sjúklingi á HSS verið ómögulegt að greiða atkvæði á ofangreindum tíma,
gefst honum kostur á að greiða atkvæði á stofnuninni á kjördag, 1. júní, frá
klukkan 14:00 til l4:30.
Kjósandi, sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar,
getur óskað þess að greiða atkvæði í heimahúsi. Umsókn studd vottorði þarf að hafa borist
sýslumanni eigi síðar en kl. 10:00 þann 30. maí.
Kjósendur skulu framvísa persónuskilríkjum (ökuskírteini,
vegabréfi eða nafnskírteini).
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
17. apríl 2024
Ásdís Ármannsdóttir
Bæði betra að
leika og leikstýra
„Það er auðvitað búið að vera
súrrealískt að fylgjast með þessum
ótrúlegu hlutum sem eru að eiga
sér stað í Grindavík. Þegar rým-
ingin átti sér stað 10. nóvember
var ég í símasambandi við pabba
sem bjó þá í Víðihlíð. Hann skildi
nú ekki hvaða læti þetta væru, það
væri ekkert að í íbúðinni hans og
þetta væri nú óþarfi. Hann komst
sem betur fer inn á Eir, í gestaher-
bergi til bráðabirgða og var hæst-
ánægður, hann þarf ekki mikið
hann pabbi. Svo komst hann í íbúð
í Hlíðarhúsum hjá Eir og unir sér
vel þar.
Ég man eftir því sem gutti
þegar við vorum að leika okkur í
sprungunum og hellunum, það
hefur alltaf verið vitað af þeim og
ég man líka þegar sumir töluðu um
að það myndi einhvern tíma gjósa
í Grindavík. Það var mjög fjarri
manni þá og var alla tíð þar til jarð-
hræringarnar byrjuðu árið 2021
við Fagradalsfjall en mig grunaði
aldrei hvað væri í vændum. Að sjá
bæinn rýmdan og vinir manns og
fjölskyldan þurfa að koma sér fyrir
á nýjum stað, mann óraði aldrei
fyrir þessu. Ég tel að yfirvöld hafi
spilað rétt úr spilunum hingað til,
þeir hljóta að vera gera þetta eftir
sinni bestu vitund og upplýsingum
sem þeir eru með. Hvernig fram-
tíðin verður er erfitt að segja til
um, þetta ástand gæti varað í tugi
ára þess vegna, síðasta svona skeið
var víst í einhver 40 ár. Nú er búið
að byggja varnargarða í kringum
bæinn og vonandi mun bara gjósa
fyrir utan þá og þar með ætti
bærinn að vera öruggur en hvort
fólk vilji flytja aftur heim er annað
mál, ég er ekki viss um að ég myndi
vilja það en ef það er til fólk sem
er tilbúið að lifa með þessu ástandi
þá er það auðvitað frábært, einhver
þarf jú að hafa ljósin kveikt,“ sagði
Bergur að lokum.
NÝR ÞÁTTUR Á FÖSTUDÖGUM
YOUTUBE-RÁS VÍKURFRÉTTA OG VF.IS
Lj
ós
m
yn
di
r ú
r e
in
ka
sa
af
ni
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) veitir íbúum Suðurnesja fyrsta- og
annars stigs heilbrigðisþjónustu. Á HSS eru þrjú svið; heilsugæslusvið,
sjúkrasvið og hjúkrunarsvið. Fram undan er víðtæk uppbygging á stofn-
uninni, endurskoðun á þjónustuferlum sem og stefnu stofnunarinnar
byggðri á Heilbrigðisstefnu til ársins 2030.
Óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðinga til starfa og vera í hópi fagaðila
og styrkja öfluga teymisvinnu sem bætir þjónustu við skjólstæðinga
heilsugæslunnar.
Leitað er eftir áhugasömum einstaklingum með frumkvæði, faglegan
metnað og jákvætt hugarfar til að taka þátt í uppbyggingu stofnunar-
innar. Á HSS er lögð áhersla á góða samvinnu, stuttar boðleiðir og
góðan starfsanda.
Helstu verkefni og ábyrgð
Unnið er á grundvelli þverfaglegs samstarfs sérfræðinga og áhersla
lögð á teymisvinnu og samþætta þjónustu. Hjúkrunarfræðingar starfa
samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn, siða-
reglum og markmiðum hjúkrunar og deildarinnar.
Hjúkrunarfræðingar á heilsugæslu
Viltu slást í hópinn og taka þátt í spennandi uppbyggingu?
Hæfniskröfur
• Íslenskt hjúkrunarleyfi
• Faglegur metnaður
• Framúrskarandi samskiptahæfni
• Sjálfstæði í vinnubrögðum
• Jákvætt og hlýtt viðmót
• Gott vald á íslensku bæði í ræðu og riti.
• Starfsreynsla er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Starfsstöð er í Reykjanesbæ. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sinnir þjónustu
í einu fjölmennasta heilbrigðisumdæmi á landinu, um 30.000 manns.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.06.2024
Nánari upplýsingar veita
Andrea Klara Hauksdóttir - andrea.k.hauksdottir@hss.is - 4220500
Alma María Rögnvaldsdóttir - alma.m.rognvaldsdottir@hss.is – 4220500
Sótt er um á www.hss.is/laus-storf
VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum // 13