Víkurfréttir - 23.05.2024, Side 18
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
BORGHILDUR KRISTRÚN
BJÖRNSDÓTTIR,
Faxabraut 18, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstudaginn 3. maí.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju mánudaginn 27. maí klukkan 13.
Unnur Brynja Eiríksdóttir
Jonni
Berglind Eiríksdóttir Arnar Þór Reynisson
Anton Pétur Hallgrímsson
Kristrún Vala Hallgrímsdóttir
Patrekur Hrafn Hallgrímsson
Sara (Jogo) Jónsdóttir
og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð,
vináttu og hlýju vegna andláts og útfarar
ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa, langafa
og langalangafa,
BJARNA ÞÓRS EINARSSONAR,
Pósthússtræti 3, Keflavík,
Sérstakar þakkir til starfsfólks D-deildar HSS fyrir einstaka umönnun
og hlýtt viðmót.
Mekkín Bjarnadóttir Magnús Bergmann Matthíasson
Einar Bjarnason Linda Sveinbjörnsdóttir
Erlingur Bjarnason Ásta Ben Sigurðardóttir
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.
Forsetakosningar
laugardaginn 1. júní 2024
Kjörskrá í Reykjanesbæ, vegna forsetakosninga sem fram fara þann
1. júní 2024, liggur frammi á bæjarskrifstofum Reykjanesbæjar
frá 13. maí fram að kjördegi. Kjósendur eru hvattir til að kynna sér
hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá. Athugasemdum við kjörskrá skal
beint til Þjóðskrár Íslands.
Kosið er í Fjölbrautaskóla Suðurnesja
Sérstök athygli er vakin á því að kjósandi sem ekki hefur meðferðis
persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði.
Kjörstaður opnar kl. 09:00 og lokar kl. 22:00
Á kjördag mun yfirkjörstjórn hafa aðsetur í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja í stofu 221, sími 420 4515.
Yfirkjörstjórn Reykjanesbæjar
Sómi Íslands
Forsetakosningarnar snúast
ekki um pólitík, ekki um stjórn-
málafokka, heldur um „Forseta
Íslands“ mikilvægasta embætti
lýðveldisins. Forseti Íslands tók
við hlutverki danska konungsins
í stjórnskipun Íslands fyrir átta
áratugum, eftir hundrað ára
sjálfstæðisbaráttu. Fólkið velur
forsetann. Forsetaembættið
skiptir máli. Það er ekkert grín
að fíflast með, hvorki lopapeysa
né lamb að leika við, harmón-
ikkuspil eða hagsmunaplott. Við
mátum frambjóðendur við hlut-
verkið og treystum á lýðræðið.
Samtal forsetans við þjóðina á
alltaf við, bæði í gamni og alvöru,
þegar vel gengur, og illa. En fyrst
reynir á forsetann þegar á móti
blæs. Við munum eftir Covid,
hruninu, erum meðvituð um nátt-
úruvá, hamfarir og mögulegar
stjórnarkreppur. Við slíkar að-
stæður þarf forsetinn að hafa bein
í nefinu, ef þannig má segja um
forsetann.
Stundum er sagt að forseti Ís-
lands sé sameiningartákn okkar
Íslendinga. Það er rétt. En er
hann það sameiningarafl, sem við
þurfum svo oft á að halda? Þekkir
hann stjórnskipun Íslands? Er
hann vel heima í pólitíkinni?
Þekkir hann fólkið í landinu,
þarfir þess og aðstæður? Er hann
vel tengdur við leiðtoga annarra
landa? Vinaþjóðirnar? Nýtur hann
virðingar erlendis og hérlendis.
Getum við treyst forsetanum? Er
hann sameiningarafl?
Katrín Jakobsdóttir býr yfir
ómetanlegri reynslu úr íslenskum
stjórnmálum. Það mun koma
að góðu gagni, nái hún kjöri, t.d.
við erfiðar stjórnarmyndanir og
kreppur þó svo embættið sé ekki
flokkspólitískt – ekki gleyma því.
Nú er það Katrín sjálf sem er í
framboði, ekki stjórnmálaflokkur
í kosningaham. Það er annað mál.
Við vitum að Katrín er gædd
þeim hæfileika að geta hlustað
á fólk, sætt ólík sjónarmið. Það
höfum við séð. Oft. Hún tekur af
skarið þegar mikið liggur við. Hún
er skynsöm og afburða greind. Hún
mun gæta ýtrustu hagsmuna lands
og þjóðar, innan lands sem utan,
og verða verðugur fulltrúi Íslands
á erlendum vettvangi, nái hún
kjöri. Hún nýtur virðingar. Henni
er treyst. Það höfum við séð. Oft.
Hún mun standa vörð um það sem
okkur er mikilvægt; sögu, menn-
inguna og íslenska tungu - þar
er hún sterk, með djúpar rætur
í þeirri fortíð sem gerir okkur að
Íslendingum, - að ég tali nú ekki
um það besta sem íslenska þjóðin
stendur fyrir: lýðræði, jafnrétti og
mannúð. Þar er hún fremst í flokki.
Það höfum við líka séð. Oft.
Ung kona spurði: „Hvað höfum
við átt marga leiðtoga sem halla
aldrei orði um aðra, hefja sig aldrei
upp á kostnað annarra, hreykja
sér aldrei af eigin afrekum, eru
aldrei meiðandi í orðavali og alltaf
yfirvegaðir?“ Þannig leiðtogi er
Katrín Jakobsdóttir. „Hún talar
ekki eftir tilbúnu handriti heldur
frá hjartanu og með hjartanu og
þannig leiðtoga vil ég sjá á Bessa-
stöðum,“ sagði þessi unga kona og
ég tek heilshugar undir. Já, ég mun
kjósa Katrínu, færni hennar og ein-
lægni. Hún yrði án efa glæsilegur
forseti, „sómi Íslands, sverð þess
og skjöldur,“ eins og eitt sinn var
sagt um sjálfstæðishetjuna Jón Sig-
urðsson. Fylkjum liði um Katrínu
Jakobsdóttur þann 1. júní í vor.
Skúli Thoroddsen
Katrín sem sameiningartákn
Í störfum mínum sem formaður
Verkalýðsfélags Grindavíkur
hafa leiðir mínar og Katrínar
Jakobsdóttur legið nokkrum
sinnum saman.
Katrín hefur lagt sig fram við
að vera í sambandi við verka-
lýðshreyfinguna í kringum kjara-
samninga og hef ég fundið að
aðkoma hennar hefur oft skipt
miklu máli til að afstýra átökum
á vinnumarkaði.
Þegar ósköpin dundu yf ir
Grindvíkinga setti ég mig strax
í samband við Katrínu, hún tók
strax á móti mér og hefur fundað
ítrekað og haldið góðu sambandi í
gegnum þær hremmingar sem við
Grindvíkingar höfum lent í.
Ég finn kannski best eftir að
Katrín steig til hliðar sem for-
sætisráðherra að tengsl við ríkis-
stjórnina hafa verið miklu minni
og hvernig talsamband við okkur
venjulega fólkið í raun rofnaði.
Ég þakka henni mikið og vel fyrir
sinn þátt í málum okkar Grind-
víkinga.
Það er mín bjargfasta trú á að
Katrín verði sameiningartákn
okkar og ég hef þá trú eftir að hafa
unnið með henni í þeim málum
sem hér eru talin fyrir ofan. Hún
hefur hlustað í þeim málum sem
þarf að hlusta og tekið ákvarðanir
þar sem þarf að taka ákvarðanir.
Fyrir mig skiptir miklu máli að
forseti landsins og sameiningar-
tákn þjóðarinnar hlusti á þjóðina
sína og geti tekið erfiðar ákvarð-
anir þegar það þarf. Því við vitum
að forseti Íslands er öryggis-
ventill fyrir þjóðina og ég treysti
Katrínu til að vera öryggisventill
fyrir okkur. Katrín hefur ávallt
rætt við mig á hreinskiptinn hátt
sem jafningja og verið heiðarleg
í öllum okkar samskiptum - það
kann ég að meta.
Ég kýs Katrínu, vegna góðra
kynna og hvet ykkur hin að gera
það sama í komandi forsetakosn-
ingum.
Hörður Guðbrandsson,
formaður Verkalýðsfélags
Grindavíkur
Blikksmiður óskast til starfa
Óskum eftir einstaklingum með fagmenntun
eða starfsreynslu í blikksmíði.
Lögð er áhersla á að ráða áhugasamt fólk sem axlar ábyrgð og sýnir frumkvæði í starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
3 Almenn blikksmíði
3 Uppsetning loftræstikerfa
3 Önnur tilfallandi verkefni
3 Menntunar- og hæfniskröfur
3 Reynsla í blikksmíði eða
öðru sambærilegu
3 Sveinsbréf eða önnur menntun
sem nýtist í starfi
3 Hæfni í mannlegum samskiptum
og færni til að vinna vel í teymi
Það sem er okkur ofarlega í huga er:
Reglusemi, stundvísi, metnaður
og jákvæðni á vinnustað
Með umsókn skal fylgja ferilskrá.
Óskað er eftir að viðkomandi
geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar: blikk@bls.is
18 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum