Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.07.2024, Page 1

Víkurfréttir - 03.07.2024, Page 1
16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM „Þetta gekk alveg ljómandi vel en auðvitað eru alltaf einhverjir smá hnökrar eða lærdómur sem maður þarf að taka inn þegar verið er að byrja á einhverju. Það helsta sem talað var um að vantaði var meiri upplýsingagjöf fyrir farþega skipsins þegar þeir komu í land. Við munum bæta það áður en næsta skip kemur,“ sagði Halldór Karl Her- mannsson, hafnarstjóri Reykjaneshafnar en síðasta laugardag kom snemma að morgni skemmtiferðaskipið Azamara Quest með um 600 farþega sem lang flestir fór í land í Keflavíkurhöfn. Farþegarnir voru ferjaðir í land með léttabátum frá skipinu sem lagði skammt frá Keflavíkurhöfn. Um þriðjungur þeirra fóru í skipu- lagðar ferðir um svæðið en aðrir fóru sjálfir um bæinn, tóku leigu- bíla eða gengu og einhverjir fengu sér bílaleigubíl til að fara á um svæðið að sögn Halldórs. Reykjaneshöfn í samvinnu við Markaðsstofu Reykjaness hefur frá árinu 2017 unnið markaðsvinnu í þeim tilgangi að fá minni skemmti- ferðaskip til Reykjanesbæjar. Halldór segir að gestirnir hafi verið mjög ánægðir, m.a. hópur sem fór í skipulagða skoðunar- og fræðsluferð undir leiðsögn heima- manneskju eftir strandlengjunni í Keflavík og endaði við Skessuhelli í smábátahöfninni. „Það voru margir hrifnir af skessunni, einni af forn- sögulegum íbúum landsins og ein- hverjir höfðu á orði að hún þyrfti að leita læknishjálpar vegna vind- gangs,“ segir Halldór og svarar því til að það sé margt sem útlendingar hafi áhuga á að skoða þegar þeir koma, t.d. gamli bærinn, húsin, sagan og fleira. Aðilar í verslun og þjónustu og ferðaþjónustu á svæðinu fengu sent fréttabréf áður en skipið kom með upplýsingum um komu þessara farþega. „Við sáum allnokkra gesti með poka með varningi í og við vitum að gestirnir fóru víða um bæinn og nýttu sér þjónustu og veitingastaði. Skipið er búið að bóka heimsókn aftur á næsta ári og svo þurfum við að vinna áfram í markaðsmálum. Það myndi skipta svæðið talsverðu máli að fá fimm til sex skipaheimsóknir á ári. Það myndi skapa helling án þess að yfirkeyra eitthvað. Þetta er von- andi upphafið að einhverju meiru,“ sagði hafnarstjórinn. Farþegar á skipinu voru frá unga aldri upp í eldri borgara og allt þar á milli en þeir komu frá þrjátíu þjóðlöndum. Skipið er í Íslandsferð og kom frá Grundarfirði til Kefla- víkur en kom fyrst til Seyðisfjarðar. Skessan vakti athygli hjá skipagestum n Skemmtiferðaskip með 600 farþega stoppaði í einn dag í Reykjanesbæ. n „Vonandi upphafið að einhverju meiru,“ segir hafnarstjóri Farþegar komu í land með léttabátum og veðurguðirnir brostu sínu blíðasta. VF/Hilmar Bragi Miðvikudagur 3. júlí 2024 // 27. tbl. // 45. árg.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.