Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.07.2024, Page 2

Víkurfréttir - 03.07.2024, Page 2
 FINNDU OKKUR Á FACEBOOK DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K 845 0900 FERÐIR Á DAG ALLTAF PLÁSS Í BÍLNUM HREINSUM RIMLAGARDÍNUR OG MYRKVUNARGARDÍNUR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS „Aftur heim“-hópur Grindvíkinga ánægður eftir fund með ráðherrum „Þetta var mjög gagnlegur fundur, sem þessi hópur hefur beðið nokkuð lengi eftir en það var athyglisvert hve margt af því sem við sögðum Bjarna og Guðrúnu frá, kom þeim á óvart,“ segir Eva Lind Matthíasdóttir, forsprakki hins svokallaða „Aftur heim“- hóps í Grindavík. Segja má að stofnfundur hópsins hafi verið 9. apríl á Papas í Grindavík en lengi er búið að vera í pípunum að hitta íslenskt ráðafólk. Eftir að þingið fór í sumarfrí gafst loksins tími mánudaginn 1. júlí og var hist í húsakynnum Umbru í Skuggasundi. Það voru þrjú mál sem brunnu helst á Grindvíkingum, sem hittust kvöldinu áður á Papas og réðu ráðum sínum. „Þessi fundur er búinn að standa lengi til en það var erfitt að finna tíma sem hentaði ráðherrunum okkar, Bjarna Benediktssyni, for- sætisráðherra, og Guðrúnu Haf- steinsdóttur, dómsmálaráðherra en loksins fannst glufa eftir að þingið fór í frí. Við hittumst í Grindavík á sunnudagskvöld og úr varð að við vildum ræða þrjú málefni; lok- unarpósta, framkvæmdanefnd og málefni Þórkötlu. Flóttaleiðir þurfa vera klárar Okkur skilst að Almannavarnir vilji ekki afnema lokunarpóstana fyrr en allar flóttaleiðir úr Grindavík séu klárar. „Nokkrar götur hafa verið girtar af vegna gruns um holrými undir þeim en blessunarlega væri staðan ekki eins alvarleg eins og áður var talið, menn eru að læra betur á þessar jarðvegsskimunartæki en sums staðar leit út fyrir að væri holrými sem svo reyndist ekki vera. Líklegt er samt að nokkur holrými séu, t.d. við Kvennó en það sögufræga hús liggur við Víkur- brautina, sem er aðalgatan inn og út úr bænum. Stóra sprungan sem opnaði sig 10. nóvember liggur þarna í gegn og ljóst að þarna þarf að skoða betur. Sem betur fer hefur Grindavíkurbær samþykkt fjárveit- ingu í að hefja þessar framkvæmdir og það var mjög gott að heyra frá Bjarna Ben að við þurfum ekki að hafa áhyggjur af því að ekki fáist fjármagn í þessar viðgerðir, ef ríkið eigi að borga brúsann þá verður það ekki vandamál. Við vorum öll sammála um að ráðast í þessar viðgerðir sem fyrst og svo kemur einfaldlega í ljós hver eigi að borga því nokkrir aðilar eiga hagsmuna að gæta, bæði Grindavíkurbær og einkafyrirtæki. Það kom mjög góður punktur fram samhliða þessu, Vegagerð ríkisins hefur staðið sig mjög vel í viðgerðum og var mælt með því að hún sjái um þessar viðgerðir. Við höfum haft áhyggjur af því að Framkvæmdanefndin hafi ekki fjárveitingu en Bjarni var fljótur að slá á allar slíkar áhyggjur, það mun verða til peningur og hann eins og við, væntum mikils af starfi Fram- kvæmdanefndar Grindavíkur.“ Dagsetning ákvörðunar um sölu Málefni Þórkötlu brenna á flestum ef ekki öllum Grindvíkingum og segir Evar að dagsetning ákvörð- unar um sölu á eignum hafi verið eitt af þeim. „Það sem brennur á þeim Grind- víkingum sem ekki hafa enn og ætla hugsanlega ekki að selja eignir sínar til Þórkötlu er af hverju taka þurfi ákvörðun um það fyrir 31. desember. Dagsetning sem átti að vera á mánudaginn (1. júlí). Bjarni var búinn að heyra af þessu og var búinn að ýta þessum bolta af stað, hann sér ekki nein haldbær rök fyrir þessari dagsetningu. Ég hafði líka orð á því að Grind- víkingar þurfi að tæma alla hús- eignirnar en flestir ef ekki allir eru að flytja í minna húsnæði og koma því ekki búslóð sinni allri fyrir. Það er sorglegt að sjá alla ruslagáma fulla af fullkomlega heilum hús- gögnum, mig grunar að verðmætið hlaupi á hundruðum milljóna. Bjarna var bent á að það er ekki eins og þetta séu venjuleg fast- eignaviðskipti þar sem seljandinn vill selja, það er verið að neyða Grindvíkinga í þessa aðgerð. Bjarni sagði að þetta yrði svo sannarlega skoðað betur. Svo hefur margt verið á huldu varðandi leigusamning við Þór- kötlu. Sumir Grindvíkingar ætla sér að selja fasteign sína til að enda kannski ekki uppi með verð- lausa eign eftir nokkur ár, en ætla sér að búa áfram í húsinu og leigja af Þórkötlu. Það eina sem er fast í hendi er viðmiðunarverðið 625 kr. pr. fermetra en það verð gildir bara til áramóta, eftir það hafa verið sögusagnir um að verð í næsta ná- grenni verði haft til viðmiðunar. Í raun er kannski mikilvæg spurning til eigenda og stjórnenda Þórkötlu, er félagið hagnaðardrifið eða á það verða það? Við Grindvíkingar neitum að trúa því en þessar upp- lýsingar verða að koma fram. Ráð- herrunum var líka bent á að það geti ekki verið sanngjarnt að Jón og Gunna, sem búa hlið við hlið í eins húsum, borgi sömu leiguna og Jón ætlar að búa í húsinu en Gunna bara að koma af og til, opna glugga, slá garðinn og í raun að taka húsið sitt í fóstur. Ef ein- hver ætlar að halda fram að það sé sanngjarnt að þessir aðilar borgi sömu leigu, væri ég til í að heyra rökin fyrir því. Góður fundur Við Grindvíkingarnar sem sátum þennan fund, fórum hálfpartinn valhoppandi af kæti út af fund- inum, við vorum ofboðslega ánægð. Það var þetta sem þurfti, fólk þurfti að tala saman og það var greini- lega nauðsynlegt fyrir þessa flottu ráðherra okkar að fá að heyra frá fyrstu hendi hvernig þessi mál líta út fyrir okkur í þessum „Aftur heim“ - hópi,“ sagði Eva Lind að lokum. Útför Einars P. Gunnarssonar Einar P. Gunnarsson, fyrrver- andi landsliðsmaður í knatt- spyrnu og liðsmaður gullaldar- liðs Keflavíkur í knattspyrnu, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 22. júní sl. Einar var 74 ára og glímdi við erfið veikindi síðustu árin. Einar fæddist í Njarðvík 22. september 1949, sonur hjónanna Jónu Gunnarsdóttur frá Vina- minni í Sandgerði og Gunnars V. Kristjánssonar frá Sólbakka í Ytri-Njarðvík. Hann starfaði hjá slökkviliðinu á Keflavíkurflugvelli en lengst af í Fríhöfninni á Kefla- víkurflugvelli þar til hann fór á eftirlaun. Einar var einn af burðarásum gullaldarliðs Keflavíkur í knatt- spyrnu og hann var Íslandsmeistari með liðinu í þrígang, 1969, 1971 og 1973. Þá var hann fyrirliði liðsins þegar það hampaði bikar- meistaratitli í fyrsta sinn 1975 og skoraði sigurmark leiksins gegn ÍA á Laugardalsvelli. Einar lék 127 leiki með Keflavík árin 1966 til 1979. Hann var valinn í landslið Íslands og lék tuttugu A-lands- leiki á árunum 1969 til 1974. Þá lék Einar ellefu leiki með Keflavík í Evrópukeppnum gegn stórliðum eins og Everton, Tottenham og Real Madrid. Eftirlifandi eiginkona Einars er Þorbjörg R. Óskarsdóttir og eign- uðust þau tvo syni, Óskar f. 1968 og Gunnar f. 1977. Barnabörnin eru fimm og barnabarnabörnin tvö. Mikið fjölmenni var við útför Einars sem var frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 2. júlí. Synir hans og nánir ættingar báru kistu Einars úr Keflavíkurkirkju. Fyrirtækin í Grindavík verða að fá súrefni „Það var gott að hitta fram- kvæmdanefndina , það er greinilega mikill hugur í þeim að reisa Grindavík við að nýju, ég er bjartsýnn á framtíðina,“ segir Ómar Davíð Ólafsson, einn eigenda Vélsmiðju Grinda- víkur, en hann átti fund ásamt nokkrum öðrum atvinnurek- endum í Grindavík með hinni nýstofnuðu framkvæmdanefnd Grindavíkur. Ómar hefur fulla trú á fram- kvæmdanefndinni. „Þetta var góður fundur, þau þrjú sem skipa framkvæmda- nefndina voru að kynna sig og fyrir hvað þau standa. Þau vildu kynnast okkur og það var gott að heyra hljóðið í þeim. Þau vildu ganga úr skugga um að við værum einhuga um að halda starfsemi gangandi í Grindavík og fundu sannarlega kraftinn og jákvæðnina hjá atvinnurekendum og það er greinilegt að þessi nefnd ætlar sér að hjálpa til við að reisa Grindavík við að nýju. Allir voru sammála um að stefna í sömu átt og ég fór glaður af þessum fundi. Það er mjög mikilvægt fyrir okkur að bærinn verði opnaður og fái súrefni því annars deyja fyrirtækin eitt af öðru. Þegar ég segi súrefni þá á ég við að bærinn verði opnaður fyrir almenningi. Við áttum síðan frábæran fund með Bjarna Benediktssyni, for- sætisráðherra, og Guðrúnu Haf- steinsdóttur, dómsmálaráðherra, þar sem við komum inn á að ef fyrirtækin, og þá sérstaklega þau sem eru í ferðaþjónustu, eiga að lifa af þá verði að afnema lokunar- póstana því annars sjáum við ekki fram á annað en að flest fyrirtæki óski eftir uppkaupum. Við eigum ekki marga kosti í stöðunni, annað hvort er að opna bæinn eða að ríkið fái nánast öll fyrirtækin í fangið. Þá spyr maður sig hvort sé ódýrari lausn fyrir ríkið en hér eru líka nokkuð mörg fyrirtæki sem eru að þjónusta útgerðina, eins og Vélsmiðjan hjá okkur er að gera. Við Grindvíkingar erum bjart- sýnir á meðan útgerðinni er gert kleift að vera hér með vinnslu,“ sagði Ómar Davíð að lokum. GRINDAVÍK Sigurbjörn Daði Dagbjartsson sigurbjorn@vf.is 2 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.