Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.07.2024, Side 9

Víkurfréttir - 03.07.2024, Side 9
væri ég búinn að finna framtíðar- starfið. Körfuboltaliðið vildi síðan fá mig til að leika með þeim og mér bauðst samningur hjá málur- unum sem ég hafði verið að vinna hjá síðan um sumarið en þetta voru frábærir aðilar sem ég vann hjá. Ég sá þarna hvert ég myndi stefna á starfsferlinum og kláraði sveinsprófið einhverju seinna. Ég átti þrjú frábær ár á Sauðárkróki, frumburður okkar Auðar [Auður Jónsdóttir, eiginkona Sverris], Jón Arnór fæddist ‘98 en eftir þrjú ár leitaði hugurinn heim og ég gekk þá til liðs við Grindavík í fótbolt- anum. Milan Stefán Jankovic var að þjálfa Grindavík og tók ekki í mál að ég myndi líka stunda körfu- knattleik og því fóru þeir skór upp í hillu í tvö ár. Eftir tvö góð ár með Grindvíkingum, þar sem við urðum m.a. deildarbikarmeistarar, fann ég hvað Körfubolta-Sverri langaði aftur að láta ljós sitt skína og ég gekk til liðs við uppeldisklúbbinn og spilaði með þeim til 2010, þrír Íslandsmeistara- og tveir bikar- meistaratitlar komu í hús og þetta var yfir höfuð frábær tími. Knatt- spyrnuskórnir voru samt áfram reimaðir á mig á sumrin. Ég gekk til liðs við Njarðvík frá Grindavík fyrir tímabilið 2002, komst upp úr 2. deildinni sem er þriðja efsta deildin og spilaði með þeim fjögur tímabil, þar af þrjú í fyrstu deild undir stjórn Helga Bogasonar sem hafði verið aðstoðarþjálfari þegar ég spilaði með Grindavík. Árið 2005 tók ég við kvennaliði Kefla- víkur í körfu og vildi þá aðeins draga saman seglin í fótboltanum og skipti yfir til Reynis í Sandgerði, spilaði eitt tímabil með þeim og skipti svo aftur yfir í Njarðvík og kláraði knattspyrnuferilinn þar. Hætti að spila haustið 2010 en þá um vorið höfðu körfuboltaskórnir farið upp í hillu,“ segir Sverrir. Engin meiðsli Það er kannski ótrúleg stað- reynd en á öllum keppnisferlinum lenti Sverrir aldrei í alvarlegum meiðslum. Hann fékk mörg tæki- færi því þá voru miklu færri út- lendingar og hann hefur gaman af því að spá í hversu langt hann hefði getað náð í viðkomandi grein, ef hann hefði valið á milli. „Ég man eftir að hafa snúið mig á æfingu á laugardegi og var ekki orðinn alveg nógu góður daginn eftir til að spila körfuboltaleik, annars lenti ég bara aldrei í neinu. Ég hugsaði alltaf vel um skrokkinn á mér en auðvitað hlýtur heppni að spila þarna inn í líka. Það hjálpaði mér líka held ég að hafa alltaf unnið líkamlega vinnu, ég var því alltaf í góðu formi og þetta ein- hvern veginn bara mallaði enda- laust hjá mér. Ég er mjög stoltur yfir keppnisferlinum mínum, ég veit ekki um marga sem léku báðar greinar til 35 ára aldurs án þess að meiðast nokkuð. Það er gaman að spá í hvort ég hefði getað komist lengra í ann- arri hvorri greininni ef ég hefði valið á milli. Ég æfði aldrei fótbolta nema bara frá apríl til september, kannski í f imm mánuði, hina mánuðina var ég að æfa körfu- bolta. Hlýtur ekki að vera að ef ég hefði æft fótbolta eins og æft er í dag, allan ársins hring, að þá hefði ég orðið betri í þeirri grein? Eins með körfuna, sumrin nota leik- menn til að bæta sig í hinum og þessum þáttum leiksins, þá var ég einfaldlega að pota inn mörkum í fótboltanum. Ég myndi hins vegar ekki vilja breyta neinu, þetta var mjög skemmtilegur tími og það var gaman að keppa á háu getu- stigi allan ársins hring. Þegar ég var að byrja var umhverfið líka allt öðruvísi, þá var bara einn út- lendingur í körfunni og enginn í fótboltanum. Svo fóru Júgóslav- arnir að streyma í fótboltann en venjulega aldrei fleiri en einn í hverju liði. Í dag eru liðin í körf- unni kannski með meirihluta leik- hópsins af erlendu bergi brotnu, þá er auðvitað erfiðara fyrir unga og efnilega leikmenn að fá tæki- færi. Ef ég fengi að ráða þá væru bara tveir útlendingar í hverju liði, það yrði mikið framfaraskref fyrir körfuboltann ef alltaf þyrftu að vera þrír Íslendingar hið minnsta inni á vellinum. Það er bara erfitt að setja svona reglur sem stangast á við Evrópulöggjöfina og það er nóg að eitt lið svíki svona heiðurs- mannareglu, þá elta hin liðin. Þetta er ekki góð þróun að mínu mati og það hefur sýnt sig að það er ekki uppskriftin að árangri að vera með sem flesta útlendinga. Ég var bara með tvo útlendinga í vetur hjá kvennaliði Keflavíkur og við unnum alla titla sem voru í boði. Það eru liðin sem eru með bestu íslensku kjarnana, helst upp- alda heimamenn, sem skara fram úr. Þó svo að karlalið Vals hafi ekki verið með marga uppalda Valsara í sínum leikmannahópi, þá voru þeir með frábæran kjarna íslenskra leikmanna.“ Óteljandi titlar þjálfarans Sverrir hafði alltaf þjálfað yngri flokka í körfubolta, hvar sem hann var að spila. Eftir að leikmannaferl- inum lauk árið 2010 tók við meist- araflokksþjálfun, fyrsta starfið var hjá kvennaliði Njarðvíkur en þær höfðu ekki mikið látið til sín taka á körfuboltavellinum til þessa en Sverrir var ekki lengi að breyta því. „Okkur var spáð sjöunda sæti en enduðum á að komast í lokaúrslit á móti Keflavík. Við töpuðum fyrsta leiknum með einu stigi. Keflavík skoraði sigurkörfuna og leiktíminn rann út, mjög svekkjandi og hef ég oft spáð í hvernig þessi sería hefði farið ef við hefðum unnið fyrsta leikinn. Árið eftir fórum við svo alla leið, urðum bæði Íslands- og bikarmeistarar og þá kom kall frá karlaliði Grindavíkur sem hafði orðið Íslandsmeistari en Helgi Jónas Guðfinnsson, sem þjálfaði liðið, þurfti að hætta þjálfun liðsins. Þetta var of stór áskorun til að taka ekki og ég fór yfir í karla- boltann. Þetta var frábært tímabil, við vorum með mjög sterkt lið, urðum deildarmeistarar og kom- umst í bikarúrslit á móti Stjörn- unni en töpuðum. Lentum svo 1-2 undir á móti þeim í lokaúrslitunum en náðum að knýja fram oddaleik með mögnuðum sigri í Garðabæ í fjórða leiknum. Ég er ekki frá því að „Ég trúi“ slagorð Grindvíkinga hafi fæðst fyrir þennan leik, sem við rúlluðum upp og náðum svo að sigra oddaleikinn og landa Íslands- meistaratitlinum. Árið eftir urðum við bikarmeistarar en töpuðum fyrir KR í lokaúrslitum og svo tók ég líka við kvennaliði Grindavíkur og gerði þær að bikarmeisturum árið 2015 og þar með lauk frá- bærum þremur árum í Grindavík. Þarna var ég orðinn fertugur og upplifði í fyrsta sinn á ævinni frí frá íþróttum og mér fannst það æðis- legt! Pásan var samt ekki löng, ég tók við kvennaliði Keflavíkur um áramótin og tók svo næstu tvö tímabil með þeim. Var þá á leið- inni í frí aftur en þá kom kallið frá karlaliði Keflavíkur og ég tók eitt tímabil með þeim. Fann þá að það var kominn tími á pásu og ég naut þessa frís sem varði í þrjú ár, til hins ítrasta en svo báðu Grindvík- ingar mig að taka við karlaliðinu á miðju tímabili ‘21/’22. Mig langaði til að halda áfram með Grindavík- urliðið en fannst ég ekki geta sinnt því sem skyldi og réði mig í staðinn sem aðstoðarþjálfara Hjalta Vil- hjálmssonar sem var með karlalið Keflavíkur en sá fljótlega að það hlutverk hentaði mér ekki, ég þarf að vera með stjórnina sjálfur. Mér bauðst síðan að taka við kvenna- liði Keflavíkur fyrir þetta tímabil og landaði öllum titlum sem voru í boði og er því heldur betur að hætta á toppnum. Eins og mér líður núna er ég hættur en vinir mínir glotta við tönn þegar ég segi þetta. Þeir hafa margoft heyrt þessa tuggu mína svo maður skyldi aldrei segja aldrei en samt, eins og mér líður núna er ég hættur,“ segir Sverrir Þór. SB málun og Liverpool Sverrir vann með Brynjari Hólm Sig- urðssyni, málara, hjá Íslenskum aðalverktökum og úr varð að þeir stofnuðu fyrir tækið SB málun árið 2016. Sverrir segist sverja að þeim báðum hafi þótt SB koma betur út en BS og ákvað blaðamaður að inna meðeiganda Sverris ekki eftir viðbrögðum. Þeir tengdust strax góðum böndum, höfðu þekkst frá fornu fari og ekki skemmdi fyrir að þeir halda með sama liðinu í enska boltanum, Liverpool. Um svipað leyti og kennitala SB málunar var stofnuð tók Jurgen Klopp við Liverpool-liðinu og upphófst mjög sigursæll tími Pool-ara eftir mörg ansi mögur ár þar á undan. „Ég hef alltaf verið dyggur stuðn- ingsmaður Liverpool. Það var ekki erfið ákvörðun í æsku þegar liðið var það langbesta en frá síðasta titli, árið 1991, í raun þar til Klopp tók við var ekki mikið að frétta. Við unnum einn og einn bikar en náðum aldrei að blanda okkur al- mennilega í baráttuna um enska titilinn, erkifjendurnir í United voru erfiðir við að eiga en um leið og Klopp tók við hafði ég góða til- finningu. Við Brynjar hófum sam- starf um svipað leyti, festum kaup á iðnaðarhúsnæði í Grófinni og gerðum strax aðstöðu til að geta horft þar á leiki. Svo keyptum við bilið við hliðina og stækkuðum Liverpool-bælið en mest hafa verið um 80 manns hjá okkur að horfa á einhvern úrslitaleikinn. Þetta hafa verið frábær ár að undanförnu og það verður söknuður af Klopp en að vinna loksins enska titilinn árið 2020 var líklega hápunkturinn en auðvitað skyggði COVID aðeins á gleðina, við gátum ekki verið að horfa saman og síðustu leikirnir voru spilaðir fyrir tómum leik- vöngum en það breytir því ekki að Liverpool varð meistari þá. Klopp er að skila af sér góðu búi og ég hef trú á að nýi stjórinn eigi eftir að standa sig. Hann þarf að kaupa þrjá góða leikmenn sem passa inn í skipulagið og ef það tekst verðum við áfram sterkir. Það er bara erfitt að eiga við Manchester City á þessum tímapunkti, þeir hafa verið ótrúlega stöðugir en við verðum vonandi áfram sterkir og er ég ekki í nokkrum vafa um að við munum eiga margar gleði- stundir hér í Grófinni áfram. Eins og ég sagði, mér líður núna eins og ég sé hættur í þjálfun. Okkur hjónin dreymir um að geta skroppið stundum út í sólina yfir veturinn, ég er búinn að vera árs- miðahafi hjá Liverpool undan- farin ár og vil stunda það æðis- lega áhugamál áfram. Liverpool er ótrúlega skemmtileg borg, við höfum oft farið þangað án þess að vera fara á leiki en það skemmir auðvitað ekki fyrir að mæta á An- field Road og syngja „You’ll never walk alone“ með öðrum Liverpool- aðdáendum. Við Auður eigum þrjú yndisleg börn, á eftir frumburðinum kom dóttirin Lovísa, fædd árið 2005, og yngstur er svo Aron Franz, fæddur árið 2014. Jón Arnór er eins og ég, spilar bæði fótbolta og körfu. Hann er að spila með Höfnum núna í fótboltanum og var með Þrótti í Vogum í körfunni á síðasta tíma- bili. Ég held að hann sé að spá í að setja meiri kraft í körfuna núna, hann hefur alla burði til að verða góður körfuknattleiks- maður en hvort hann verði föður- betrungur kemur bara í ljós, ég vona það. Lovísa var í liðinu hjá mér í vetur og varð því þrefaldur meistari, hún á framtíðina fyrir sér og Aron Franz er mikill íþrótta- álfur eins og ég var, hvort að hann muni leggja íþróttir fyrir sig kemur bara í ljós, ég myndi aldrei setja neina pressu á hann í þeim efnum. Það er bara frábært fyrir börn að vera í íþróttum, þau þroska fé- lagsanda og eru í góðri hreyfingu en öll pressa frá foreldrum er fá- ránleg að mínu mati. Það er ótrú- legt að sjá suma foreldra á þessum íþróttamótum barnanna, það er eins og eigi að gera atvinnumann úr barninu en öll svona pressa getur ekki annað en skemmt fyrir blessuðu barninu. Við Auður viljum bara styðja börnin okkar í því sem þau taka sér fyrir hendur. SB málun er á góðum stað, við erum venjulega með um tíu manns í vinnu, allt frábærir málarar og fé- lagar. Verkefnastaðan er eiginlega alltaf góð, við erum langmest hér á Suðurnesjunum en höfum líka verið í höfuðborginni en okkur langar ekkert til að stækka meira, þetta rúllar fínt svona. Ég hlakka mikið til næstu ára, það verður gaman að upplifa nýja hluti í framtíðinni,“ sagði Sverrir Þór að lokum. Ég myndi hins vegar ekki vilja breyta neinu, þetta var mjög skemmtilegur tími og það var gaman að keppa á háu getustigi allan ársins hring. Þegar ég var að byrja var umhverfið líka allt öðruvísi, þá var bara einn útlendingur í körfunni og enginn í fótboltanum ... Sverrir fagnar Íslandsmeistaratitlinum. Að ofan með Elisa Pinzan og Daniela Wallen, leikmönnum meistaraflokks Keflavíkur, en til hliðar er hann með börnum sínum, Aron Franz og Lovísu, með VÍS-bikarinn. Íslandsmeistari fimmta flokks karla með Keflavík árið 1987. Sverrir Þór með bikarinn í fanginu. Liverpool-bælið í húsakynnum SB málunar, Litli-Anfield, er ákaflega glæsilegt athvarf fyrir stuðningsmenn Liverpool og þar hafa mest safnast saman um 80 manns til að horfa á einhvern úrslitaleikinn. Feðgarnir Sverrir og Jón Arnór. Jón Arnór er eins og pabbi sinn, leggur bæði stund á fótbolta og körfu. víkurFrÉttir á SuðurNESjuM // 9

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.