Víkurfréttir - 03.07.2024, Qupperneq 9
væri ég búinn að finna framtíðar-
starfið. Körfuboltaliðið vildi síðan
fá mig til að leika með þeim og
mér bauðst samningur hjá málur-
unum sem ég hafði verið að vinna
hjá síðan um sumarið en þetta
voru frábærir aðilar sem ég vann
hjá. Ég sá þarna hvert ég myndi
stefna á starfsferlinum og kláraði
sveinsprófið einhverju seinna. Ég
átti þrjú frábær ár á Sauðárkróki,
frumburður okkar Auðar [Auður
Jónsdóttir, eiginkona Sverris], Jón
Arnór fæddist ‘98 en eftir þrjú ár
leitaði hugurinn heim og ég gekk
þá til liðs við Grindavík í fótbolt-
anum. Milan Stefán Jankovic var
að þjálfa Grindavík og tók ekki í
mál að ég myndi líka stunda körfu-
knattleik og því fóru þeir skór upp
í hillu í tvö ár. Eftir tvö góð ár með
Grindvíkingum, þar sem við urðum
m.a. deildarbikarmeistarar, fann
ég hvað Körfubolta-Sverri langaði
aftur að láta ljós sitt skína og ég
gekk til liðs við uppeldisklúbbinn
og spilaði með þeim til 2010, þrír
Íslandsmeistara- og tveir bikar-
meistaratitlar komu í hús og þetta
var yfir höfuð frábær tími. Knatt-
spyrnuskórnir voru samt áfram
reimaðir á mig á sumrin. Ég gekk
til liðs við Njarðvík frá Grindavík
fyrir tímabilið 2002, komst upp
úr 2. deildinni sem er þriðja efsta
deildin og spilaði með þeim fjögur
tímabil, þar af þrjú í fyrstu deild
undir stjórn Helga Bogasonar sem
hafði verið aðstoðarþjálfari þegar
ég spilaði með Grindavík. Árið
2005 tók ég við kvennaliði Kefla-
víkur í körfu og vildi þá aðeins
draga saman seglin í fótboltanum
og skipti yfir til Reynis í Sandgerði,
spilaði eitt tímabil með þeim og
skipti svo aftur yfir í Njarðvík og
kláraði knattspyrnuferilinn þar.
Hætti að spila haustið 2010 en þá
um vorið höfðu körfuboltaskórnir
farið upp í hillu,“ segir Sverrir.
Engin meiðsli
Það er kannski ótrúleg stað-
reynd en á öllum keppnisferlinum
lenti Sverrir aldrei í alvarlegum
meiðslum. Hann fékk mörg tæki-
færi því þá voru miklu færri út-
lendingar og hann hefur gaman
af því að spá í hversu langt hann
hefði getað náð í viðkomandi grein,
ef hann hefði valið á milli.
„Ég man eftir að hafa snúið mig
á æfingu á laugardegi og var ekki
orðinn alveg nógu góður daginn
eftir til að spila körfuboltaleik,
annars lenti ég bara aldrei í neinu.
Ég hugsaði alltaf vel um skrokkinn
á mér en auðvitað hlýtur heppni að
spila þarna inn í líka. Það hjálpaði
mér líka held ég að hafa alltaf
unnið líkamlega vinnu, ég var því
alltaf í góðu formi og þetta ein-
hvern veginn bara mallaði enda-
laust hjá mér. Ég er mjög stoltur
yfir keppnisferlinum mínum, ég
veit ekki um marga sem léku báðar
greinar til 35 ára aldurs án þess að
meiðast nokkuð.
Það er gaman að spá í hvort ég
hefði getað komist lengra í ann-
arri hvorri greininni ef ég hefði
valið á milli. Ég æfði aldrei fótbolta
nema bara frá apríl til september,
kannski í f imm mánuði, hina
mánuðina var ég að æfa körfu-
bolta. Hlýtur ekki að vera að ef ég
hefði æft fótbolta eins og æft er í
dag, allan ársins hring, að þá hefði
ég orðið betri í þeirri grein? Eins
með körfuna, sumrin nota leik-
menn til að bæta sig í hinum og
þessum þáttum leiksins, þá var ég
einfaldlega að pota inn mörkum í
fótboltanum. Ég myndi hins vegar
ekki vilja breyta neinu, þetta var
mjög skemmtilegur tími og það
var gaman að keppa á háu getu-
stigi allan ársins hring. Þegar ég
var að byrja var umhverfið líka
allt öðruvísi, þá var bara einn út-
lendingur í körfunni og enginn í
fótboltanum. Svo fóru Júgóslav-
arnir að streyma í fótboltann en
venjulega aldrei fleiri en einn í
hverju liði. Í dag eru liðin í körf-
unni kannski með meirihluta leik-
hópsins af erlendu bergi brotnu,
þá er auðvitað erfiðara fyrir unga
og efnilega leikmenn að fá tæki-
færi. Ef ég fengi að ráða þá væru
bara tveir útlendingar í hverju liði,
það yrði mikið framfaraskref fyrir
körfuboltann ef alltaf þyrftu að
vera þrír Íslendingar hið minnsta
inni á vellinum. Það er bara erfitt
að setja svona reglur sem stangast
á við Evrópulöggjöfina og það er
nóg að eitt lið svíki svona heiðurs-
mannareglu, þá elta hin liðin.
Þetta er ekki góð þróun að mínu
mati og það hefur sýnt sig að það
er ekki uppskriftin að árangri að
vera með sem flesta útlendinga.
Ég var bara með tvo útlendinga
í vetur hjá kvennaliði Keflavíkur
og við unnum alla titla sem voru
í boði. Það eru liðin sem eru með
bestu íslensku kjarnana, helst upp-
alda heimamenn, sem skara fram
úr. Þó svo að karlalið Vals hafi ekki
verið með marga uppalda Valsara
í sínum leikmannahópi, þá voru
þeir með frábæran kjarna íslenskra
leikmanna.“
Óteljandi titlar þjálfarans
Sverrir hafði alltaf þjálfað yngri
flokka í körfubolta, hvar sem hann
var að spila. Eftir að leikmannaferl-
inum lauk árið 2010 tók við meist-
araflokksþjálfun, fyrsta starfið var
hjá kvennaliði Njarðvíkur en þær
höfðu ekki mikið látið til sín taka
á körfuboltavellinum til þessa en
Sverrir var ekki lengi að breyta því.
„Okkur var spáð sjöunda sæti en
enduðum á að komast í lokaúrslit á
móti Keflavík. Við töpuðum fyrsta
leiknum með einu stigi. Keflavík
skoraði sigurkörfuna og leiktíminn
rann út, mjög svekkjandi og hef ég
oft spáð í hvernig þessi sería hefði
farið ef við hefðum unnið fyrsta
leikinn. Árið eftir fórum við svo
alla leið, urðum bæði Íslands- og
bikarmeistarar og þá kom kall frá
karlaliði Grindavíkur sem hafði
orðið Íslandsmeistari en Helgi
Jónas Guðfinnsson, sem þjálfaði
liðið, þurfti að hætta þjálfun
liðsins. Þetta var of stór áskorun til
að taka ekki og ég fór yfir í karla-
boltann. Þetta var frábært tímabil,
við vorum með mjög sterkt lið,
urðum deildarmeistarar og kom-
umst í bikarúrslit á móti Stjörn-
unni en töpuðum. Lentum svo 1-2
undir á móti þeim í lokaúrslitunum
en náðum að knýja fram oddaleik
með mögnuðum sigri í Garðabæ í
fjórða leiknum. Ég er ekki frá því
að „Ég trúi“ slagorð Grindvíkinga
hafi fæðst fyrir þennan leik, sem
við rúlluðum upp og náðum svo að
sigra oddaleikinn og landa Íslands-
meistaratitlinum. Árið eftir urðum
við bikarmeistarar en töpuðum
fyrir KR í lokaúrslitum og svo tók
ég líka við kvennaliði Grindavíkur
og gerði þær að bikarmeisturum
árið 2015 og þar með lauk frá-
bærum þremur árum í Grindavík.
Þarna var ég orðinn fertugur og
upplifði í fyrsta sinn á ævinni frí frá
íþróttum og mér fannst það æðis-
legt! Pásan var samt ekki löng, ég
tók við kvennaliði Keflavíkur um
áramótin og tók svo næstu tvö
tímabil með þeim. Var þá á leið-
inni í frí aftur en þá kom kallið frá
karlaliði Keflavíkur og ég tók eitt
tímabil með þeim. Fann þá að það
var kominn tími á pásu og ég naut
þessa frís sem varði í þrjú ár, til
hins ítrasta en svo báðu Grindvík-
ingar mig að taka við karlaliðinu á
miðju tímabili ‘21/’22. Mig langaði
til að halda áfram með Grindavík-
urliðið en fannst ég ekki geta sinnt
því sem skyldi og réði mig í staðinn
sem aðstoðarþjálfara Hjalta Vil-
hjálmssonar sem var með karlalið
Keflavíkur en sá fljótlega að það
hlutverk hentaði mér ekki, ég þarf
að vera með stjórnina sjálfur. Mér
bauðst síðan að taka við kvenna-
liði Keflavíkur fyrir þetta tímabil
og landaði öllum titlum sem voru
í boði og er því heldur betur að
hætta á toppnum. Eins og mér
líður núna er ég hættur en vinir
mínir glotta við tönn þegar ég
segi þetta. Þeir hafa margoft heyrt
þessa tuggu mína svo maður skyldi
aldrei segja aldrei en samt, eins og
mér líður núna er ég hættur,“ segir
Sverrir Þór.
SB málun og Liverpool
Sverrir vann með
Brynjari Hólm Sig-
urðssyni, málara,
hjá Íslenskum
aðalverktökum
og úr varð að
þeir stofnuðu
fyrir tækið SB
málun árið 2016.
Sverrir segist sverja
að þeim báðum hafi
þótt SB koma betur út en
BS og ákvað blaðamaður að
inna meðeiganda Sverris ekki eftir
viðbrögðum. Þeir tengdust strax
góðum böndum, höfðu þekkst frá
fornu fari og ekki skemmdi fyrir að
þeir halda með sama liðinu í enska
boltanum, Liverpool. Um svipað
leyti og kennitala SB málunar
var stofnuð tók Jurgen Klopp við
Liverpool-liðinu og upphófst mjög
sigursæll tími Pool-ara eftir mörg
ansi mögur ár þar á undan.
„Ég hef alltaf verið dyggur stuðn-
ingsmaður Liverpool. Það var ekki
erfið ákvörðun í æsku þegar liðið
var það langbesta en frá síðasta
titli, árið 1991, í raun þar til Klopp
tók við var ekki mikið að frétta.
Við unnum einn og einn bikar en
náðum aldrei að blanda okkur al-
mennilega í baráttuna um enska
titilinn, erkifjendurnir í United
voru erfiðir við að eiga en um leið
og Klopp tók við hafði ég góða til-
finningu. Við Brynjar hófum sam-
starf um svipað leyti, festum kaup
á iðnaðarhúsnæði í Grófinni og
gerðum strax aðstöðu til að geta
horft þar á leiki. Svo keyptum við
bilið við hliðina og stækkuðum
Liverpool-bælið en mest hafa verið
um 80 manns hjá okkur að horfa á
einhvern úrslitaleikinn. Þetta hafa
verið frábær ár að undanförnu og
það verður söknuður af Klopp en
að vinna loksins enska titilinn árið
2020 var líklega hápunkturinn en
auðvitað skyggði COVID aðeins á
gleðina, við gátum ekki verið að
horfa saman og síðustu leikirnir
voru spilaðir fyrir tómum leik-
vöngum en það breytir því ekki að
Liverpool varð meistari þá. Klopp
er að skila af sér góðu búi og ég
hef trú á að nýi stjórinn eigi eftir
að standa sig. Hann þarf að kaupa
þrjá góða leikmenn sem passa
inn í skipulagið og ef það tekst
verðum við áfram sterkir. Það er
bara erfitt að eiga við Manchester
City á þessum tímapunkti, þeir
hafa verið ótrúlega stöðugir en
við verðum vonandi áfram sterkir
og er ég ekki í nokkrum vafa um
að við munum eiga margar gleði-
stundir hér í Grófinni áfram.
Eins og ég sagði, mér líður núna
eins og ég sé hættur í þjálfun.
Okkur hjónin dreymir um að geta
skroppið stundum út í sólina yfir
veturinn, ég er búinn að vera árs-
miðahafi hjá Liverpool undan-
farin ár og vil stunda það æðis-
lega áhugamál áfram. Liverpool
er ótrúlega skemmtileg borg, við
höfum oft farið þangað án þess að
vera fara á leiki en það skemmir
auðvitað ekki fyrir að mæta á An-
field Road og syngja „You’ll never
walk alone“ með öðrum Liverpool-
aðdáendum.
Við Auður eigum þrjú yndisleg
börn, á eftir frumburðinum
kom dóttirin Lovísa,
fædd árið 2005, og
yngstur er svo Aron
Franz, fæddur
árið 2014. Jón
Arnór er eins
og ég, spilar
bæði fótbolta
og körfu. Hann
er að spila með
Höfnum núna í
fótboltanum og var
með Þrótti í Vogum í
körfunni á síðasta tíma-
bili. Ég held að hann sé að
spá í að setja meiri kraft í körfuna
núna, hann hefur alla burði til
að verða góður körfuknattleiks-
maður en hvort hann verði föður-
betrungur kemur bara í ljós, ég
vona það. Lovísa var í liðinu hjá
mér í vetur og varð því þrefaldur
meistari, hún á framtíðina fyrir sér
og Aron Franz er mikill íþrótta-
álfur eins og ég var, hvort að hann
muni leggja íþróttir fyrir sig kemur
bara í ljós, ég myndi aldrei setja
neina pressu á hann í þeim efnum.
Það er bara frábært fyrir börn að
vera í íþróttum, þau þroska fé-
lagsanda og eru í góðri hreyfingu
en öll pressa frá foreldrum er fá-
ránleg að mínu mati. Það er ótrú-
legt að sjá suma foreldra á þessum
íþróttamótum barnanna, það er
eins og eigi að gera atvinnumann
úr barninu en öll svona pressa
getur ekki annað en skemmt fyrir
blessuðu barninu. Við Auður
viljum bara styðja börnin okkar í
því sem þau taka sér fyrir hendur.
SB málun er á góðum stað, við
erum venjulega með um tíu manns
í vinnu, allt frábærir málarar og fé-
lagar. Verkefnastaðan er eiginlega
alltaf góð, við erum langmest hér
á Suðurnesjunum en höfum líka
verið í höfuðborginni en okkur
langar ekkert til að stækka meira,
þetta rúllar fínt svona. Ég hlakka
mikið til næstu ára, það verður
gaman að upplifa nýja hluti í
framtíðinni,“ sagði Sverrir Þór að
lokum.
Ég myndi hins vegar
ekki vilja breyta
neinu, þetta var mjög
skemmtilegur tími
og það var gaman að
keppa á háu getustigi
allan ársins hring.
Þegar ég var að byrja
var umhverfið líka allt
öðruvísi, þá var bara
einn útlendingur í
körfunni og enginn í
fótboltanum ...
Sverrir fagnar Íslandsmeistaratitlinum.
Að ofan með Elisa Pinzan og Daniela Wallen,
leikmönnum meistaraflokks Keflavíkur,
en til hliðar er hann með börnum sínum,
Aron Franz og Lovísu, með VÍS-bikarinn.
Íslandsmeistari fimmta flokks karla með Keflavík árið 1987.
Sverrir Þór með bikarinn í fanginu.
Liverpool-bælið í húsakynnum
SB málunar, Litli-Anfield,
er ákaflega glæsilegt athvarf fyrir
stuðningsmenn Liverpool og þar hafa
mest safnast saman um 80 manns til
að horfa á einhvern úrslitaleikinn.
Feðgarnir Sverrir og Jón Arnór.
Jón Arnór er eins og pabbi
sinn, leggur bæði stund
á fótbolta og körfu.
víkurFrÉttir á SuðurNESjuM // 9