Víkurfréttir - 03.07.2024, Síða 12
Heiðurshjónin Helgi Ragnar Guðmundsson og Júlía Halldóra Gunn-
arsdóttir afhentu Lestrarfélaginu Baldri, og þar með bókasafni
sveitarfélagsins, gestabækur sem þau hafa haldið á Keili síðan 1992.
Bækurnar eru rúmlega þrjátíu talsins og eru skemmtilegur vitnis-
burður um heimsóknir almennings á bæjarfjall Voga á tímum sem
fjallgöngur breyttust úr áhugamáli fárra í almenna og vinsæla útivist.
Áður en þau hjón komu bókum fyrir á Keili höfðu skátarnir í Vogum
haldið úti bókum á Keili á árunum 1976–1981.
Gestabækur Helga og Júlíu og
gestabók skátanna í Vogum verða
varðveittar á bókasafninu um
ókomna tíð og verða þar til sýnis.
Í bókunum eru ekki einungis nöfn
toppfara Keilis heldur einnig ljóð,
sögur, teikningar og margt fleira
forvitnilegt. Bækurnar eru einkar
skemmtileg lesning og jafnvel efni
í frekari rannsóknarvinnu. Margar
bækurnar eru veðraðar enda hefur
mætt á þeim mörgum. Einhverjar
bækur ná yfir nokkur ár en aðrar
aðeins hluta úr ári eftir að ferðir á
fjallið nutu aukinna vinsælda.
Lestrarfélagið Baldur býður alla
áhugasama velkomna á bókasafnið
til að skoða gestabækurnar.
Samantekt: Hilmar Egill Svein-
björnsson.
Keilisbækur Helga og Júlíu
Helgi blaðar í heimildinni yfir
kaffibolla eftir að hafa komið
Keilisbókunum fyrir í bókasafninu.
Helgi og Júlía afhenda bókasafninu dagbækurnar.
Skissa af útilegustemmningu um verslunarmannahelgi
2003 á toppi Keilis. Helgi og Júlía tóku á móti toppförum
með rjúkandi kaffi. Myndirnar tala sínu máli.
Göngufólk í blíðu á toppi Keilis 25. apríl og 8. maí 1976.Upphafssíða úr dagbók skátanna í Vogum, Vogabúa, árið 1976.
Keilir í skýjabólstrum. Mynd úr safni Víkurfrétta
12 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM