Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.07.2024, Síða 13

Víkurfréttir - 03.07.2024, Síða 13
Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga óskar nýjum slökkviliðs- stjóra, Eyþóri Rúnari Þórar- inssyni, velfarnaðar í störfum og þakkar Jóni Guðlaugssyni fyrir vel unnin störf. Ráðning nýs slökkviliðsstjóra hjá Bruna- v ö r n u m Suðurnesja var til um- f j ö l l u n a r á s íðasta fundi bæj- arráðs. Heilsugæsla í heimabyggð og hvernig öldungaráð geti komið að því máli var til umræðu á síðasta fundi öldungaráðs Suðurnesjabæjar og Sveitar- félagsins Voga. Ráðið leggur til að eftirfarandi ályktun verði send framkvæmdastjórn Heil- brigðisstofnunar Suðurnesja, bæjarstjórum Suðurnesjabæjar/ Sveitarfélagsins Voga og heil- brigðisráðherra: „Öldungaráð Suðurnesjabæjar og Sveitarfélagsins Voga leggur áherslu á mikilvægi heilsuverndar og eru það ákveðin mannréttindi að hafa aðgang að góðri og traustri heilsugæslu í heimabyggð. Það er löngu tímabært að íbúar í sveitar- félögunum hafi aðgang að heimilis- læknum, sem er hluti af öryggisneti í nærumhverfi okkar. Við hvetjum framkvæmdastjórn HSS, bæjar- stjórnir Suðurnesjabæjar, Sveitar- félagsins Voga og Heilbrigðisráðu- neytið, til að ganga nú þegar til samninga og undirbúnings heilsu- gæslu í okkar bæjarfélögum.“ Sjálfbærniráð Reykjanesbæjar, sem vinnuráð, mun halda áfram að vinna að skýrslugerð í haust þar sem lögð verður áhersla á að gefa út handbók um kosninga- þátttöku og hafin verður vinna við gerð grænnar áætlunar Reykjanesbæjar. Í þeirri vinnu verður umhverfis- og loftslags- stefna Reykjanesbæjar aðlöguð ásamt aðgerðaáætlun og fjölda annarra atriða. Þetta kemur fram í nýjustu fundargerð ráðsins þar sem farið var yfir fjármál sjálfbærniráðs fyrir þetta ár og undirbúningur fyrir árið 2025. Mikilvægt er að miðla upp- lýsingum til íbúa varðandi sjálf- bærni- og umhverfismál og mun sjálfbærniráð koma fram með til- lögur að upplýsingagjöf fyrir íbúa Reykjanesbæjar. Sú vinna hefst í haust, segir í fundargerðinni. Þegar kemur að sjálfbærni- og umhverfismálum vill sjálfbærniráð nýta fjármagn sitt til eflingar þeirra mála og byrja að horfa til úrgangs- mála. Þegar kemur að grenndar- stöðvum hefur verið rætt að fjölga þurfi þeim í sveitarfélaginu en auk þess þurfi að bæta aðgengi að þeim með malbikun, lýsingu og mynda- vélavöktun. Mun sjálfbærniráð ásamt umhverfis- og framkvæmda- sviði fara af stað í þá vinnu strax í sumar. Auk þess mun sjálfbærniráð kaupa endurvinnslutunnur sem settar verða á valda staði í sveitar- félaginu. Drög að fjárhagsáætlun næsta árs voru kynnt fyrir ráðinu en unnið verður áfram að útfærslu áætlunarinnar í haust. Erindi bæjarstjóra Sveitar- félagsins Voga til ÍSOR varðandi varahitaveitu fyrir Voga og Vatns- leysuströnd var lagt fram á síð- asta fundi bæjarráðs í Vogum. Í afgreiðslu bæjarráðs segir að það taki undir þau sjónarmið sem fram koma í erindi sent ÍSOR þann 18. júní sl. að kannað verði til hlítar sá möguleiki að ráðist verði í bor- anir eftir heitu vatni á Vatnsleysu- strönd í því ljósi að koma upp vara- hitaveitu sem myndi þjóna bæði Vogum og Vatnsleysuströnd. Menningar- og þjónusturáð Reykjanesbæjar leggur til að á meðan ekki hafi verið teknar ákvarðanir um framtíðarnýtingu Svarta pakk- hússins verði það nýtt sem aðstaða fyrir menningar- og handverks- hópa í sveitarfélaginu eins og aðstæður leyfa með lágmarkslagfær- ingum til að standast brunakröfur. Ráðið leggur til, að því gefnu að öryggiskröfum verði fullnægt, að gerðir verði samningar við félögin til eins árs í senn frá og með næsta starfsári og felur Guðlaugu Maríu Lewis menningarfulltrúa að vinna málið áfram. Á fundi stjórnar Sambands sveit- arfélaga á Suðurnesjum, sem haldinn var þann 15. maí 2024, var innleiðing svæðisbundinna farsældarráða á dagskrá. Eftir- farandi var fært til bókar: Mennta- og barnamálaráðu- neytið hefur verið að vinna að út- færslu á starfsemi farsældarráða barna, samkvæmt 5 gr. farsældar- laga. Hugmyndin er að stofnað verði farsældarráð í hverjum lands- hluta. Í tengslum við þetta hefur ráðu- neytið lýst yfir vilja sínum til þess að gerður verði viðaukasamningur við sóknaráætlanir landshluta um að landshlutasamtökin fái stuðning til þess að ráða verkefnastjóra í tvö ár til þess að útfæra starfsemi far- sældarráða. Samningurinn felur ekki í sér fjárhagslegar kvaðir fyrir sveitar- félögin en er fyrst og fremst yfir- lýsing um að þau vilji eiga með sér samstarf um útfærslu á Far- sældarráði Suðurnesja og skoðuð verði tækifæri til samstarfs í þessu verkefni. M.a. hefur mikið samstarf átt sér stað í gegnum Velferðarnet Suðurnesja og mætti skoða það vel að samtvinna þessi tvö verkefni.“ Framkvæmdastjóra SSS var falið að senda sveitarstjórnum á Suður- nesjum erindið frá ráðuneytinu ásamt gögnum til umsagnar. Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga og bæjarstjórn hafa afgreitt málið með eftirfarandi bókun: „Bæjarráð tekur undir bókun stjórnar SSS og leggur til við bæjar- stjórn að sveitarfélagið taki þátt í verkefninu á ofangreindum for- sendum og með þeim fyrirvara að landshlutasamtökin fái stuðning til að ráða verkefnastjóra til að sinna verkefninu.“ Samþykkt samhljóða með sjö atkvæðum. Málið var einnig kynnt nýlega í Reykjanesbæ þar sem Hera Ósk Einarsdóttir, sviðsstjóri velferðar- sviðs, gerði grein fyrir verkefninu um innleiðingu farsældar barna hjá Reykjanesbæ. Slökkvilið Brunavarna Suður- nesja var kallað út um miðjan dag næstsíðasta föstudag í það sem talið var vera eldur í húsi í Hvassahrauni á Vatnsleysu- strönd. Slökkvibíll með fjórum mönnum var sendur á fyrsta forgangi frá slökkviliðsstöðinni í Reykjanesbæ á vettvang. Tilkynning til Neyðarlínunnar var um mikinn reyk frá húsi á svæðinu. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang gekk þeim í fyrstu erfiðlega að finna brunastað, enda var tilkynningin óljós. Í ljós kom að eldur logaði í rusli sem hafði verið safnað fyrir í gröfuskóflu inn á milli gáma á svæðinu. Landeigandi hafði safnað ruslinu í skófluna og hellt yfir eldsneyti og borið eld að. Þar sem einnig var eitthvað af vatni í skóflunni myndaðist mikill reykur sem steig til himins. Vegfarendur um Reykja- nesbraut héldu því að eldur logaði í húsi á svæðinu. Slökkviliðsmenn ræddu við aðila á staðnum en aðhöfðust ekkert frekar. Tilkynnt um eld í húsi í Hvassahrauni Varahitaveita fyrir Voga og Vatns- leysuströnd til skoðunar Óska nýjum slökkviliðsstjóra velfarnaðar Fjölga þarf grenndarstöðvum Leggur áherslu á mikilvægi heilsu- verndar í Suðurnesjabæ og Vogum Svarta pakkhúsið verði áfram nýtt fyrir menningar- og handverkshópa Vogar samþykkja samstarfssamn- ing um farsældarráð barna Hvítbók í málefnum innflytj- enda fagnað í Reykjanesbæ Reykjanesbæ hefur borist til umsagnar drög að hvítbók í mál- efnum innflytjenda, Samfélag okkar allra: Framtíð og stefna Íslands í málefnum innflytjenda – drög að stefnu til ársins 2038. Á síðasta fundi velferðarráðs Reykjanesbæjar var lögð fram um- sögn sviðsstjóra velferðarsviðs fyrir hönd Reykjanesbæjar. „Reykjanesbær fagnar sérstak- lega markmiðum hvítbókar um árangursríka og fjölbreytta upplýs- ingaþjónustu til nýrra íbúa og inn- gildandi nálgunar í þeim efnum. Sveitarfélögin á Suðurnesjum og starfandi ríkisstofnanir á því land- svæði hafa í sameiningu sett sér markmið um að þjálfa starfsfólk þjónustustofnana og sveitarfélaga til þess að þjónusta og upplýsa íbúa, óháð aðstæðum þeirra eða uppruna, um þjónustu og afþrey- ingu á svæðinu undir formerkjum Velferðarnets Suðurnesja sem hefur unnið verkefnið Velkomin til Suðurnesja, sem aðgengilegt er á vefsíðunni Suðurnes.is,“ segir í af- greiðslu velferðarráðs. Ferðalangar nýttu sér kofa sem eru grassvæðinu neðan Hafnargötu og ofan Strandleiðarinnar í Reykja- nesbæ til næturgistingar. Kofarnir voru ein af mörgum hugmyndum sem urðu til í heimsfaraldri og eru hugsaðir fyrir gesti og gangandi en ekki sem svefnbústaðir. Víkurfréttir fengu þessar myndir sendar og þá mátti sjá sambærilegar myndir frá fólki á samfélagsmiðlum þar sem það var að undra sig á uppátæki ferðalanganna sem tjölduðu óvana- lega til einnar nætur í birtunni. Óvæntir næturgestir víkurFrÉttir á SuðurNESjuM // 13

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.