Víkurfréttir - 03.07.2024, Page 14
Keflvíkingurinn Arnór Sveinsson var á sínum tíma einn allra efni-
legasti íþróttamaður á Íslandi. Hann var bæði efnilegur leikmaður
í fótbolta og körfubolta ásamt því að hafa gífurlegan stökkkraft og
hraða frá unga aldri. Stökkkrafturinn var eitthvað sem vakti athygli
margra en Arnór sló meðal annars óformlegt landsmótsmet í lang-
stökki þrátt fyrir að hafa aldrei æft neinar frjálsar íþróttir og hann
var aðeins fjórtán ára gamall þegar hann keppti í troðslukeppni á
Nettómótinu. Þrátt fyrir að hafa tekið körfuna fram yfir fótboltann
þá var það fótboltinn sem átti hug hans til að byrja með.
„Ég byrjaði ekki í körfubolta fyrr en
um tíu ára aldur. Sem barn hafði ég
miklu meiri áhuga á fótboltanum
og Einar Einars, körfuboltaþjálfari,
hafði enga þolinmæði fyrir mér á
æfingum því ég var alltaf að negla
alla niður. Eftir tíu ára aldur var ég
á fullu í fótbolta og körfubolta og
elskaði að vera í báðum íþróttum,
ég var frekar ofvirkt barn og það
voru íþróttirnar sem hjálpuðu mér
gífurlega að losna við þá orku sem
ég þurfti að losa mig við.“
Fann snemma fyrir athygli
„Þegar ég fór að taka körfuna al-
varlega var ég mjög bráðþroska og
stækkaði hratt en hafði samt góða
samhæfingu miðað við stærð og
gat skotið boltanum mjög vel enda
kenndi pabbi mér mjög snemma
hvernig ætti að skjóta boltanum.
Ég var því farinn að vekja athygli
þegar ég var í kringum tólf ára,
enda var ég farinn að troða þá og
var stór, sterkur og hittinn. Þó að
athyglin hafi byrjað að koma þá
fann ég í raun ekkert fyrir neinni
pressu fyrr en um átján ára aldur.“
Meiri pressa á að halda
áfram í körfubolta
Arnór var fimmtán ára þegar hann
tók þá ákvörðun að setja takka-
skóna á hilluna til þess einbeita sér
að fullu á að ná langt í körfubolta.
„Þegar ég var fimmtán ára, en
þá var ég kominn í landsliðsúr-
takið í fótbolta, fannst mér meiri
líkur á að ná lengra í körfu og tók
þess vegna körfuna fram yfir en í
dag held ég að ég hefði getað náð
jafnlangt eða mögulega lengra í
fótboltanum. Það voru líka margir
í körfunni að pressa á mig að fók-
usera á hana enda var ég kominn í
yngri landsliðin þar. Fótboltinn var
frábær tími og lærði ég mikið, enda
með góða þjálfara eins og Jóhann
Birni og fleiri meistara. Þegar ég
hætti í fótboltanum var ég kominn
inn í meistaraflokk Keflavíkur í
körfu. Ég man að goðsagnir eins
og Gunni Einars og Maggi Gunn
voru þá í liðinu en ég byrjaði að
æfa á fullu með þeim sextán ára. Ég
fékk þá fyrstu mínúturnar mínar
sem var gífurlega skemmtilegt.
Hjörtur Harðarson var þá þjálfari
og hafði hann mikla trú á mér sem
leikmanni. Síðan ákvað ég að prófa
eitthvað nýtt, fór í Njarðvík og var
á venslasamningi hjá Hamri í eitt
ár. Mér leið vel í Njarðvík og lærði
mjög mikið af mönnum þar, þá sér-
staklega af Loga Gunnars. Logi var
ótrúlega flottur leikmaður og góð
fyrirmynd innan sem utan vallar og
kenndi hann mér margt, bæði sem
þjálfari minn í yngri flokkunum
þar og sem liðsfélagi í meistara-
flokki. Síðan fer ég aftur í Keflavík
en ég hefði þá mögulega átt að fara
annað þar sem mér fannst þeir sem
þjálfuðu liðið ekki hafa nægilega
mikla trú á mér. Ég á þó mörg
eftirminnileg augnablik í Keflavík
og það sem stendur mest upp úr er
líklegast þegar ég rétt strauk nefið
á Drungilas, leikmanni Þórs, í úr-
slitunum á móti þeim og var ég þá
rekinn út úr húsi í fyrsta og eina
skiptið á mínum ferli.“
Áfall leiddi til enda ferilsins
Þrátt fyrir að vera aðeins 24 ára
gamall hefur Arnór átt langan
meistaraflokksferil en er nú hættur
í körfubolta – en hvað varð til þess
að hann ákvað að setja skóna á
hilluna?
„Ég lenti í miklu áfalli í nóv-
ember 2021 sem varð til þess að
ég hef lítið verið í körfu síðan þá.
Ég var mættur á æfingu í íþrótta-
húsinu í Keflavík og var að klæða
mig úr hettupeysunni. Þá segir
Þröstur Leó, liðsfélaginn minn:
„Hvað er að sjá hendina á þér
drengur?“ Þá var hún öll orðin
rauð og þrútin þannig ég fór bein-
ustu leið upp á spítala þar sem mér
var sagt að ég væri með blóðtappa
í öxlinni. Eftir það fór ég í Domus
Medica og tók allskonar próf en
þar segja þau að ég væri rifbeins-
brotinn sem leiddi til þess að æð-
arnar voru klemmdar. Það var
samt ekki talin nákvæm niðurstaða
svo ég var í raun ekki ennþá 100%
viss hvað væri að mér.
Ég fór svo til útlanda tveimur
vikum seinna og þá fékk ég símtal
frá Domus Medica og mér til-
kynnt að ég væri með eitthvað sem
kallast Thoracic Outlet Syndrome.
Það lýsir sér þannig að það er lítið
pláss í öxlinni fyrir bláæðarnar
til að dæla blóði úr hendinni til
hjarta. Fyrst gerði ég mér í raun
ekki grein fyrir alvarleika málsins.
Ég spurði lækninn minn: „Getum
við ekki bara lagað þetta?“ og hann
svaraði mér blákalt á ensku: „No
it is broken.“ Ef ég færi í aðgerð
gæti ég lamast í hendinni þannig
ég ákvað að taka ekki sénsinn og
þarf að lifa við það að vera lélegri
í körfubolta og missa styrk í hend-
inni en ég sætti mig betur við það
heldur en að vera lamaður.
Það var ótrúlega erfitt að kyngja
þessum fréttum enda hafði lífið
snúist um körfubolta frá því ég var
krakki en á þessum degi leið mér
eins og öll mín erfiðisvinna hafi
verið til einskis. Þessi sjúkdómur
er eitthvað sem ég verð alltaf með
og ég þarf að lifa með honum, sem
var mjög erfitt til að byrja með – en
maður aðlagar sig og lærir að lifa
með þessu.“
Fann nýja ástríðu í þjálfun
„Ótrúlegt en satt þá er ég farinn
að dýrka langhlaup sem ég gjör-
samlega þoldi ekki þegar ég var í
körfu og fótbolta. Aðaláhugamál
mitt er hins vegar að þjálfa fólk og
aðstoða það við að koma sér í betra
líkamlegt ástand en sú nýja ástríða
hefur gripið mig eftir að ég missti
körfuna. Eftir að hafa hætt í körfu
vissi ég ekkert hvað ég ætti að gera
í lífinu en sá á netinu auglýsingu
um einkaþjálfaranám og hugsaði:
„Af hverju ekki?“ Ég fór í Keili og
bætti við mig fögum til að komast
aftur í eitthvað frekara nám og
reyna að vekja einhvern neista
sem vantaði hjá mér – og það gerði
námið hjá Keili svo sannarlega.
Ég er nýbúinn að ljúka náminu
og hef sett allan minn áhuga, orku
og metnað í að verða eins góður
þjálfari og ég get. Síðan ég byrjaði
í þessu hef ég ekki verið mikið að
væla yfir því sem kom fyrir mig eða
verið að sakna körfunnar, enda er
hausinn á mér á bólakafi í þjálfun
og að koma sjálfum mér einnig í
betra stand, bæði líkamlega og
andlega. Mitt markmið í fram-
tíðinni er að verða þjálfari í fullu
starfi og að hafa góðan hóp af fólki
sem treystir mér fyrir sinni heilsu
– því í raun er ekkert mikilvægara
en heilsan okkar.“
Viðtal: Jón Ragnar Magnússon
Fann nýja ástríðu
eftir að hafa þurft
að hætta í körfubolta
Mitt markmið í
framtíðinni er að verða
þjálfari í fullu starfi
og að hafa góðan hóp
af fólki sem treystir
mér fyrir sinni heilsu
– því í raun er ekkert
mikilvægara en
heilsan okkar ... Útskrift í einkaþjálfaranámi frá Keili.
Langhlaup er nýja ástríðan.
Arnór í leik með yngra
landsliði Íslands.
Ekkert mikilvægara en heilsan okkar, segir Arnór.Troðið í íþróttahúsinu í Keflavík.
sport