Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.07.2024, Síða 16

Víkurfréttir - 03.07.2024, Síða 16
Mundi Grindvíkingar í Grindavík héldu brennu í Bótinni „Þessi hugmynd kviknaði um daginn þegar ljóst var að heimilissorp yrði ekki sótt í Grindavík. Í stað þess að keyra með það í ruslagámana ákváðum við að brenna því og timbri úti í Bót, sem er fjaran vestan megin við Grindavík,“ sagði Grindvíkingurinn Magnús Gunnarsson. Grindvíkingar gerðu sér glaðan dag á laugardagskvöld, söfnuðu saman rusli og timbri sem mátti brenna og úr varð hin myndar- legasta brenna á brennustæðinu í Bótinni. Magnús segir að tími hafi verið kominn fyrir Grindvíkinga í Grindavík að hittast og gera sér glaðan dag. Ljóst að leikurinn verði endurtekinn og þá vill hann fá fleiri Grindvíkinga, jafnvel þó þeir séu ekki búsettir í Grindavík eða séu á leiðinni á næstunni. Hafa þessir útlensku ferðamenn aldrei heyrt alvöru prump? Vertu velkomin(n) til okkar! Elmar verslunarstjóri og Bryndís taka vel á móti þér og veita þér faglega ráðgjöf fyrir málningarverkefnið þitt. VÍKURFRÉTTIR KOMA NÆST ÚT MIÐVIKUDAGINN 17. JÚLÍ 17. JÚLÍ Miðvikudagur „Þetta er þér að kenna!“ Í síðustu viku birtust fréttir af inn- ritun nýnema í framhaldsskóla landsins. Ég var ánægð með að sjá að í ár var það Tækniskólinn sem var með flestar nýskráningar (og svo var ég auðvitað líka ánægð með að minn gamli skóli, Kvenna- skólinn í Reykjavík, var með þær næstflestar). Áhugi nemenda á iðn- og tækninámi er gleðilegur fyrir margra hluta sakir. Mikil vinna hefur verið lögð í það um margra ára skeið að efla tækninám og ekki síst að auka áhuga og virðingu fyrir námi í þeim greinum. Sem fyrrverandi iðnaðarráð- herra fagna ég þessu mjög. Mér er mjög minnisstætt þegar ég heim- sótti iðn- og tækniskóla á sínum tíma og ræddi við skólayfirvöld um það hvernig hægt væri að auka þennan áhuga og laða fleiri nem- endur inn í þessar gríðarlega þjóð- hagslega mikilvægu greinar. Við sem þjóð þurfum á iðn- og tækni- menntuðu fólki að halda en á þeim tíma vorum við að glíma við annars vegar lítinn áhuga á tækninámi og hins vegar (sem eigum reyndar enn við að glíma) við mikið brottfall, aðallega drengja, úr hefðbundnu bóknámi í framhaldsskólum. Svar eins skólameistarans við þeirri spurningu hverju væri um að kenna er mér mjög minnis- stætt. Hann sagði hreint út að þetta væri mér að kenna! Mér brá við og svaraði því til að ég væri jú þarna komin sem iðnaðarráðherra til þess einmitt að reyna að finna leiðir til að taka höndum saman með menntamálayfirvöldum að bæta þarna úr. En hann stoppaði mig af og sagði hann að hann væri alls ekki að benda á mig sem ráð- herra, heldur sem móður! Því það væri ekki síst okkur foreldrunum að kenna að ungmennunum okkar væri stýrt inn í bóknámið, hvort sem þeim sjálfum hugnaðist það eða ekki. Áherslan á stúdentsprófið væri slík, við foreldrar hvöttum börnin okkar til að klára það fyrst og fara svo í hvað annað sem þau vildu. Þetta væri röng nálgun að hans mati því bóknám væri ekki upphaf og endir alls og hentar ekki öllum. Með þessu „háttalagi“, eins og hann kallaði það, værum við líka að draga úr verðmætasköpun í þjóðfélaginu og það sem verst væri að letja krakkana okkar að til að læra það sem þau hefðu raun- verulega áhuga á. Ég er svo sammála þessum ágæta skólameistara og vona sannarlega að þetta litla en, í mínum huga, stórmerkilega dæmi um áhuga ný- nema á Tækniskólanum sýni okkur að þarna sé að verða breyting á. Ég hef reynt að hafa þetta í huga hvað mína drengi varðar, hvet þá að sjálfsögðu til þess að stunda nám og leggja sig alla fram. En við verðum að sleppa takinu og leyfa börnunum okkar að elta sína drauma og velja sína framtíð. Það fer líka ljómandi vel saman við ár- angur – áhugi á viðfangsefninu er farsælasta leiðin að árangri. RAGNHEIÐAR ELÍNAR Víkurfréttir munu koma út hálfsmánaðarlega í stað vikulega næstu sex vikurnar. Næstu blöð koma út 17. júlí, 31. júlí og 14. ágúst en eftir það verður útgáfan vikuleg. Víkurfréttir standa samt vaktina á vf.is þar sem hægt er að nálgast nýtt efni og fréttir daglega. Það myndaðist góð stemmning við bálköstinn í Bótinni. Myndir/Steindór Máni Björnsson

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.