Víkurfréttir - 03.07.2024, Qupperneq 16
Mundi
Grindvíkingar í Grindavík
héldu brennu í Bótinni
„Þessi hugmynd kviknaði
um daginn þegar ljóst var að
heimilissorp yrði ekki sótt
í Grindavík. Í stað þess að
keyra með það í ruslagámana
ákváðum við að brenna því og
timbri úti í Bót, sem er fjaran
vestan megin við Grindavík,“
sagði Grindvíkingurinn
Magnús Gunnarsson.
Grindvíkingar gerðu sér glaðan
dag á laugardagskvöld, söfnuðu
saman rusli og timbri sem mátti
brenna og úr varð hin myndar-
legasta brenna á brennustæðinu í
Bótinni. Magnús segir að tími hafi
verið kominn fyrir Grindvíkinga
í Grindavík að hittast og gera sér
glaðan dag. Ljóst að leikurinn verði
endurtekinn og þá vill hann fá
fleiri Grindvíkinga, jafnvel þó þeir
séu ekki búsettir í Grindavík eða
séu á leiðinni á næstunni.
Hafa þessir útlensku ferðamenn
aldrei heyrt alvöru prump?
Vertu velkomin(n) til okkar!
Elmar verslunarstjóri og Bryndís taka vel á móti þér og veita þér
faglega ráðgjöf fyrir málningarverkefnið þitt.
VÍKURFRÉTTIR KOMA
NÆST ÚT MIÐVIKUDAGINN
17. JÚLÍ
17.
JÚLÍ
Miðvikudagur
„Þetta er þér
að kenna!“
Í síðustu viku birtust fréttir af inn-
ritun nýnema í framhaldsskóla
landsins. Ég var ánægð með að
sjá að í ár var það Tækniskólinn
sem var með flestar nýskráningar
(og svo var ég auðvitað líka ánægð
með að minn gamli skóli, Kvenna-
skólinn í Reykjavík, var með þær
næstflestar). Áhugi nemenda á iðn-
og tækninámi er gleðilegur fyrir
margra hluta sakir. Mikil vinna
hefur verið lögð í það um margra
ára skeið að efla tækninám og ekki
síst að auka áhuga og virðingu fyrir
námi í þeim greinum.
Sem fyrrverandi iðnaðarráð-
herra fagna ég þessu mjög. Mér er
mjög minnisstætt þegar ég heim-
sótti iðn- og tækniskóla á sínum
tíma og ræddi við skólayfirvöld
um það hvernig hægt væri að auka
þennan áhuga og laða fleiri nem-
endur inn í þessar gríðarlega þjóð-
hagslega mikilvægu greinar. Við
sem þjóð þurfum á iðn- og tækni-
menntuðu fólki að halda en á þeim
tíma vorum við að glíma við annars
vegar lítinn áhuga á tækninámi og
hins vegar (sem eigum reyndar enn
við að glíma) við mikið brottfall,
aðallega drengja, úr hefðbundnu
bóknámi í framhaldsskólum.
Svar eins skólameistarans við
þeirri spurningu hverju væri um
að kenna er mér mjög minnis-
stætt. Hann sagði hreint út að
þetta væri mér að kenna! Mér brá
við og svaraði því til að ég væri jú
þarna komin sem iðnaðarráðherra
til þess einmitt að reyna að finna
leiðir til að taka höndum saman
með menntamálayfirvöldum að
bæta þarna úr. En hann stoppaði
mig af og sagði hann að hann væri
alls ekki að benda á mig sem ráð-
herra, heldur sem móður! Því það
væri ekki síst okkur foreldrunum
að kenna að ungmennunum okkar
væri stýrt inn í bóknámið, hvort
sem þeim sjálfum hugnaðist það
eða ekki. Áherslan á stúdentsprófið
væri slík, við foreldrar hvöttum
börnin okkar til að klára það fyrst
og fara svo í hvað annað sem þau
vildu. Þetta væri röng nálgun að
hans mati því bóknám væri ekki
upphaf og endir alls og hentar ekki
öllum. Með þessu „háttalagi“, eins
og hann kallaði það, værum við
líka að draga úr verðmætasköpun
í þjóðfélaginu og það sem verst
væri að letja krakkana okkar að til
að læra það sem þau hefðu raun-
verulega áhuga á.
Ég er svo sammála þessum ágæta
skólameistara og vona sannarlega
að þetta litla en, í mínum huga,
stórmerkilega dæmi um áhuga ný-
nema á Tækniskólanum sýni okkur
að þarna sé að verða breyting á.
Ég hef reynt að hafa þetta í huga
hvað mína drengi varðar, hvet þá
að sjálfsögðu til þess að stunda
nám og leggja sig alla fram. En
við verðum að sleppa takinu og
leyfa börnunum okkar að elta sína
drauma og velja sína framtíð. Það
fer líka ljómandi vel saman við ár-
angur – áhugi á viðfangsefninu er
farsælasta leiðin að árangri.
RAGNHEIÐAR ELÍNAR
Víkurfréttir munu koma út hálfsmánaðarlega í stað vikulega næstu sex vikurnar.
Næstu blöð koma út 17. júlí, 31. júlí og 14. ágúst en eftir það verður útgáfan vikuleg.
Víkurfréttir standa samt vaktina á vf.is þar sem hægt er að nálgast nýtt efni og fréttir daglega.
Það myndaðist góð stemmning
við bálköstinn í Bótinni.
Myndir/Steindór Máni Björnsson