Mímir - 01.03.1967, Qupperneq 5

Mímir - 01.03.1967, Qupperneq 5
ÓLAFUR ODDSSON: BREYTT TILHÖGUN LOKAPRÓFA í ÍSLENZKUM FRÆÐUM (ELDRI REGLUGERÐ) VIÐBÓTARÁKVÆÐI VIÐ 55. GR. HÁSKÓLAREGLUGERÐAR, D-LIÐ Heimspekideild getur heimilað stúdent, er les til kandídats- eða meistaraprófs í íslenzkum fræðum skv. 53. gr., I. lið, reglugerðar nr. 76/1958 fyrir Háskóla íslands, að ljúka síðara hluta prófs í þremur áföngum, einni prófgrein í hverjum, enda hljóti stúdentinn tilskilda lág- marksmeðaleinkunn skv. 68. gr. í hverju áfanga- prófi (en auk þess 1. einkunn úr öllum þremur áfangaprófum samanlögðum, skv. 53. gr. I, B, 3. mgr., sé um meistarapróf að ræða). Síðasti áfanginn skal ætíð vera próf í kjör- sviðsgrein, og skal stúdent ljúka því í síðasta lagi á fjórða misseri, talið frá og með því misseri, er hann gengur undir fyrsta áfangapróf. Ef út af bregður, fellur hvort áfangaprófið (þ. e. próf fyrsta og annars áfanga) úr gildi í lok fjórða misseris, talið frá og með því misseri, er stúdent- inn gekk undir það í fyrsta sinn. Stúdent er heimiit að Ijúka prófum fyrsta og annars áfanga, áður en hann skilar kjörsviðsrit- gerð. Á sama hátt getur deildin heimilað stúdent, er les til kandídatsprófs í íslenzku með aukagrein skv. 53. gr. II, að ljúka síðara hluta prófs í tveim- ur áföngum, og skal stúdent þá ljúka síðara á- fanganum (prófi í kjörsviðsgrein) í síðasta lagi á þriðja misseri frá og með fyrra áfanga. Viðbótarákvæðið, sem nú er gilt reglugerðar- ákvæði, breytir mjög aðstöðu þeirra stúdenta, er lesa til kandídats- og meistaraprófa skv. eldri reglugerð (nr. 76/1958). Rétt þykir því að kynna þessa breytingu í blaðinu Mími, svo að hún komi fyrir augu allra þeirra, er hlut eiga að máli. Einnig þykir rétt að fjalla lítillega um að- draganda þessarar breytingar, svo og hin nýju viðhorf, er skapazt hafa með tilkomu hennar. Það er upphaf þessa máls, að stúdentum í ís- lenzkum fræðum hefur lengi staðið nokkur ógn af lokaprófunum, einkum þeirri tilhögun þeirra, að menn hafa orðið að þreyta próf í öllum grein- unum með örstuttu millibili. Höfðu stúdentar um nokkurt skeið rætt um það, að breytinga væri þörf á þessu sviði. í ágúst 1966 sendi Mímir, félag stúdenta í íslenzkum fræðum, bréf til Heimspekideildar og fór þess á leit, að deildin beitti sér fyrir breytingum á tilhögun kandídats- og meistaraprófa, á þann hátt, að heimilt yrði að ljúka þessum prófum í þremur áföngum, einni prófgrein í senn, enda skyldi eigi líða meir en misseri á milli prófa. Bréf þetta var síðan lagt fram á fundi Heimspekideildar og nefnd þriggja prófessora falið að gera tillögur um málið. Til- laga nefndarinnar var lögð fyrir deildarfund 16. des. s. 1. og samþykkt þar óbreytt. Skömmu síð- ar var tillagan einnig samþykkt á fundi Háskóla- ráðs og síðan send Menntamálaráðuneytinu. Staðfesting stjórnvalda var lögð fram í Háskóla- ráði 19. jan. s. 1., og þar með var framangreint viðbótarákvæði orðið að reglugerðarákvæði. Með bréfi Heimspekideildar til Mímis frá 1. febr. s. I. er skýrt frá niðurstöðum málsins. Einn- 5

x

Mímir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.