Mímir - 01.03.1967, Qupperneq 7

Mímir - 01.03.1967, Qupperneq 7
GUNNAR KARISSON: SAMBANDSSLIT ÍSLANDS OG NOREGS ÁRIÐ 1814 i Staða Islands í hinu dansk-norska konungsríki var lengi næsta óljós. Eðlilega var ekki litið á þessa fábyggðu og þýðingarlitlu eyju sem sér- stakt „land" hliðstætt Danmörku og Noregi. Sögulega var ótvírætt, að Island tilheyrði fremur Noregi, enda mun lengstaf hafa verið litið svo á, bæði í Danmörku og Noregi, ef menn á annað borð hugleiddu nokkuð þessa hlið málsins. Eftir að konungseinveldi komst á, varð þessi spurning í rauninni afar þýðingarlítil. Það var fyrst við aðskilnað Danmerkur og Noregs, að taka þurfti afstöðu til þessa máls að nýju, og hefði þá óneit- anlega virzt eðlilegra, að Island fylgdi Noregi út úr ríkjasambandinu aftur. Þá hefðu Islendingar orðið þegnar Kristjáns Friðriks vorið 1814 og komið undir krúnu Karls þrettánda Svíakonungs um haustið. Augljóst er, að staða þjóðarinnar, bæði pólitískt og menningarlega, hefði gjör- breytzt við slík húsbóndaskipti. Má aðeins nefna sem dæmi, hve ólíka viðmælendur forvígismenn sjálfstæðisbaráttu okkar hefðu hlotið, þar sem voru yfirvöld hins norska ríkis. Annars vegar voru Norðmenn, sem sjálfir reism ríki sitt á hug- myndinni um fullveldi þjóðarinnar og bjuggu við eina frjálslegustu stjórnarskrá Evrópu, hins vegar konungur Svía, sem umfram allt vildi halda ríkjasambandinu saman. En að sjálfsögðu er þýðingarlaust að reyna að gera sér í hugarlund, hvað hefði gerzt, ef Is- land hefði fylgt Noregi. Við getum aðeins full- yrt, að sú niðurstaða, að við héldum áfram að vera þegnar Danakonungs, er sögulega mikil- væg fyrir Islendinga og verðskuldar því, að hald- ið sé til haga, því sem menn þekkja um orsakir hennar. I Islandssögu mun þessu ekki hafa verið gef- inn mikill gaumur. I námsefni í íslenzkum fræð- um — sjöunda bindi Sögu Islendinga eftir Þor- kel Jóhannesson — eru þessum atburðum gerð næsta lítil skil, aðeins drepið á stöðu Islands við sambandsslit Danmerkur og Noregs: I ársbyrjun 1814 var friður saminn í Kiel og Danir þar með neyddir til að afhenda Svíum Noreg. Hér var ekki spurt um vilja þjóðarinnar eða rétt Danakonungs til þess að afhenda landið. Hinu gamla Noregsríki var sundrað. Island, Færeyjar og Grænland fylgdu Dan- mörku, eins og ekkert hefði í skorizt.1 Síðan segir frá uppreisn Norðmanna og stofn- un hins sænsk-norska ríkjasambands. Þá er þessu bætt við, varðandi Islandssögu: Og þótt sumum Norðmönnum þætti hart, er þeir tóku að átta sig betur á málunum, að hið gamla Noregsveldi væri svipt hinum fornu skattlöndum sínum, varð ekki horft í slíkt... Atburðirnir 1813—14 höfðu engin bein pólitísk áhrif hér á landi. Stjórnarbylting Norðmanna ... virð- ist ekki hafa hreyft við nokkurri lifandi sál á Islandi.2 Ekki er ætlunin mín að reyna að andmæla því, sem Þorkeli Jóhannesson segir, eða leiðrétta 1 Saga íslendinga VII. Tímabilið 1770—1830. Upp- lýsingaröld. Samið hefir Þorkell Jóhannesson (Reykjavík 1950), 330. 2 Saga íslendingaV 11,331. 7

x

Mímir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.