Mímir - 01.03.1967, Side 8

Mímir - 01.03.1967, Side 8
hann í neinu. Ég hef aðeins löngun til að auka dálitlu við ummæli hans. Ég styðst þar ekki við eigin rannsóknir, heldur norsk sögurit, sem í þessu tilviki segja talsvert meira um íslenzka sögu en hin íslenzku. II I fjórðu grein samnings Svía og Dana, sem undirritaður var í Kiel 14. janúar 1814, er ákveðið, að Danakonungur skuli fá Svíakonungi í hendur konungsríkið Noreg. Svo að ekkert fari á milli mála, er alllöng og fremur ruglingsleg skýrgreining á konungsríkinu Noregi — og síð- an er skotið inn: „Grænland, Færeyjar og Is- land ekki meðtalin.” Svo lítið lagðist fyrir það ríkjasamband, sem Hákon konungur gamli lagði sig svo fram um að koma á á þrettándu öldinni, að það er hér afnumið í einni innskotssetningu í samningi, sem hvorki Norðmenn né Islendingar eiga nokkurn hlut að. Ef nokkur Danakonungur hefur nokkru sinni verðskuldað það að kallast einvaldur, þá var það Friðrik konungur sjötti á árum Napóleonsstyrj- aldanna. Þó benda líkur til, að það hafi ekki ver- ið hann, sem réði örlögum Islands að þessu sinni, heldur fulltrúi hans við samningana í Kiel, diplómatinn Edmund Bourke. Svo mikið er víst, að í þeim fyrirmælum, sem Bourke hafði með sér frá konungi um samningagerðina, þar sem gert er ráð fyrir að gefa upp allan Noreg, er ekki minnzt á, að reynt skuli að skilja hjálendurnar undan. Danakonungur hefur væntanlega gert ráð fyrir, að fulltrúi Svía myndi heimta, að þessi lönd fylgdu Noregi og ekki ætlað sér að leggja kapp á að koma í veg fyrir það. Síðan hefur Bourke dottið í hug að reyna að bjarga því, sem bjargað yrði, og hafa þessar iítilvægu hjálendur af Svíum. Fulltrúi Svía virðist ekki hafa gert sér grein fyrir, að Noregur ætti neinn sögulegan rétt á þeim, og ef til vill hefur hann ekki talið ómaksins vert að tefja samningana við að kynna sér þetta atriði. Svíum lá ekki svo lítið á að ljúka samningunum við Dani. Þeir áttu mikinn her- styrk tepptan í Holstein til að ógna Dönum, og bandamenn Svía voru orðnir óþolinmóðir að fá hann suður í álfu til baráttunnar gegn Napóle- on. Norskir sagnfræðingar þessarar aldar virðast almennt fallast á það — og þó með nokkurri tregðu — að Danakonungur hafi haft rétt til þess að skilja þessi lönd frá Noregi. Annars er til lítils að tala um rétt í þessu sambandi. Réttind- um einvaldskonunga til þess að ráðstafa löndum sínum voru í rauninni lítil takmörk sett, og þær þjóðréttarkröfur, sem var svo mjög á lofti hald- ið á 19- öld, voru í rauninni aldrei annað en áróðurstæki. Það reyndist unnt að finna réttar- grundvöll fyrir svo að segja hverri kröfu og hverjum verknaði, og þegar til kastanna kom, var það sjaldnast réttarstaðan, sem úrslitum réði. Norðmenn samtímans gátu hins vegar ekki fallizt á, að Danakonungur hefði rétt til að halda skattlöndum Noregs eftir, er hann afsal- aði sér valdi yfir ríkinu sjálfu. Oll uppreisn þeirra árið 1814 var reist á þeirri kenningu, að konungi væri óheimilt að fá vald sitt yfir Nor- egi í hendur konungi annars ríkis. Þeir viður- kenndu því ekki Kielarsamninginn að öðru leyti en því, að Danakonungur hefði lagt niður kon- ungdóm sinn yfir Noregi; meira hafði hann ekki rétt til að gera. En þá töldu Norðmenn, að vald konungs hlyti að renna til norsku þjóðarinnar. Samkvæmt þessari skoðun var rökrétt að neita rétti konungs til þess að skipta norska konungs- ríkinu og skilja skattlönd þess undan. III Aðskilnaður skattlandanna frá Noregi olli talsverðri óánægju þar í landi og varð til þess að magna þá gremju, sem þar ríkti í garð Dana eftir samningagerðina í Kiel. Var talsvert um þetta rætt og ritað meðal almennings, og átti Gísli Johnson, íslenzkur prestur í Noregi, einna mestan þátt í að vekja Norðmenn til umhugs- unar um þetta. En norskir stjórnmálamenn áttu einnig eftir að taka málið upp og krefja Dani þessara landa. Verður nær eingöngu fjallað um þá hlið málsins hér. Krafa Norðmanna til Islands, Grænlands og Færeyja kom þó ekki fram strax. Þann tíma, sem 8

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.