Mímir - 01.03.1967, Side 9

Mímir - 01.03.1967, Side 9
Norðmenn telja sig sjálfstæða og óháða bæði konungi Dana og Svía, er varla minnzt á þetta atriði. Að nokkru leyti er þetta auðskýrt. Sjálf- stæðishreyfingin í Noregi var aðeins að litlu leyti það, sem hún þóttist vera. Fyrirliði hennar, Kristján Friðrik, var krónprins Dana, og hann hefur skiljanlega ekki haft neina löngun til að reisa frekari kröfur gegn danska ríkinu. Ætlun hans var að hindra sameiningu Svíþjóðar og Noregs, taka sjálfur konungdóm í Noregi og sameina síðan Noreg og Danmörku aftur, er hann tæki við konungdæmi í Danmörku við fráfall Friðriks sjötta. Þeir Norðmenn, sem mest réðu um stefnuna vorið og sumarið 1814, sjálfstœðismennirnir, eins og þeir kölluðu sig á Eiðsvelli, höfðu flestir nákvæmlega hið sama í huga. Þeir ætluðu sér aldrei að stofna sjálfstætt ríki til frambúðar. Sjálfstæðisflokkurinn á Eiðs- velli greindist ekki fremur frá andstæðingunum vegna ákveðinna sjálfstæðishugmynda en nafni hans á Islandi á vorum dögum. Þessir menn höfðu enga ástæðu til að krefjast hjálendnanna, og fyrir Kristján Friðrik gat það hreinlega orðið skaðlegt. Hann hlýtur alltaf að hafa átt von á, að fyrirætlun sín mistækist, að hann yrði að sjá af Noregi í hendur Svíakonungs. En sameining hjá- lendnanna við Noreg jafngilti þá því, að hann afsalaði sér þessum löndum sem væntanlegur konungur Danaveldis. En það voru fleiri en sjálfstæðismenn, sem létu til sín heyra í norsku stjórnmálalífi árið 1814. Á Eiðsvallaþinginu var einnig svonefnd- ur sambandsflokkur. sem vildi viðurkenna sam- bandið við Svía og vinna að því að tryggja sem bezt stöðu Norðmanna innan þess. Oneitanlega lítur svo út, sem það hefði verið skynsamlegt af þessum flokki að gera kröfu til skattlandanna. Það hefði veitt þeim tækifæri til þess að sýna meiri þjóðernisstefnu á einu sviði en sjálfstæðis- mönnum var unnt að fylgja og hefði komið Kristjáni Friðrik og fylgismönnum hans í dálít- inn vanda. En það gerðu þeir ekki, hvað sem því olli. Sú hugmynd, að norska ríkið ætti rétt á Is- landi, Grænlandi og Færeyjum, var til í herbúð- um sambandsmanna. Einn af fyrirliðum þeirra, Nicolai Wergeland, presmr á Kristjánssandi, hafði með sér til Eiðsvallar frumdrög að stjórn- arskrá, þar sem segir: Riget skal ingen Besiddelser have udenfor sine Grændser. Sine ældgamle Besiddelser forbeholder det sig Ret til at abaliere.3 Skýringar á þessu ákvæði er að leita í Kielar- samningnum. Þar er kveðið svo á, að hluti af ríkisskuldum hins dansk-norska ríkis fylgi Nor- egi yfir í sambandið við Svíþjóð. Wergeland hefur séð fram á, að yrðu sambandsslit Dan- merkur og Noregs til frambúðar, gæti verið heppilegt að halda uppi kröfu til skattlandanna til þess að láta af henni gegn eftirgjöf í skulda- skipmnum. Hugmynd hans er því ekki að tryggja, að þessi lönd haldist undir veldi Nor- egskonungs, heldur vill hann reisa kröfu til þeirra til þess að geta selt Dönum hana. Og í rauninni sá hann þar fram á aðstæður, sem áttu eftir að skapast. En hugmynd Wergelands hverf- ur hljóðalaust í meðförum þingsins. Sambandsmenn voru í miklum minnihluta á Eiðsvallaþinginu, og þeir hafa vitað, að hver til- laga, sem gerði ráð fyrir rétti Noregs til skatt- landanna, yrði umsvifalaust felld af sjálfstæðis- mönnum. Má láta sér detta í hug, að þeir hafi fremur kosið að láta þetta mál liggja á milli hluta en að kalla fram yfirlýsingu meirihluta þingsins, sem gerði erfiðara að koma fram með kröfu til skattlandanna síðar. Umræður um þetta efni hefðu líka auðveldlega getað leitt til þess, að skuldaskiptin við Dani kæmust til umræðu, og það kærðu sambandsmenn sig ekki um. Þeir vildu ekki vekja athygli á þeim erfiðleikum, sem sambandsslit við Dani höfðu í för með sér. Eftir að samband Noregs og Svíþjóðar er komið á haustið 1814, og endursameining við Danmörku er úr sögunni, kemur krafan um hjálendurnar í nýtt ljós, enda sjást brátt merki þess í gerðum stórþingsins norska. I nóv- 3 Historiske samlinger udgivne af Den Norske Histor- iske Kildeskriftkommission III (Christiania 1914), 250. Abaliere ritv. f. abalienere: „láta af hendi". 9

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.