Mímir - 01.03.1967, Side 12

Mímir - 01.03.1967, Side 12
vald Svíakonungs eða hina norsku stjórnarskrá. Þetta var að vísu verjandi, ef litið var á hjálend- urnar sem hluta norska ríkisins, og þótt fulltrúar þeirra væru ekki kvaddir til við samningu stjórn- arskrárinnar, hljóta aðstæðurnar að afsaka það. En sé litið þannig á málin, verður lítið sam- ræmi í að afsala sér kröfunni til skattlandanna gegn eftirgjöf af skuldakröfum frá Dana hálfu. Það verður þá skipting norska ríkisins, sala á hluta þess, án þess að þjóðir þær, er þessa hiuta byggja, séu nokkuð um spurðar. Afstaða Norð- manna gagnvart íbúum Færeyja, Islands og Grænlands er því ekki svo ýkja frábrugðin þeirri afstöðu til Norðmanna, sem lýsir sér í Kielar- samningnum. Einhver kynni að vilja áfellast Norðmenn fyrir fyrir þessa tvöföldu afstöðu. I rauninni er það ástæðulaust. Þetta sýnir aðeins, hve lítils virði hinar réttarfarslegu röksemdir voru, þegar til kastanna kom. Kenningin um fullveldi þjóð- arinnar var Norðmönnum nauðsynleg til þess að réttlæta baráttuna gegn Kielarsamningnum, en ósanngjarnt væri að ætlast til, að þeir héldu henni á lofti, þar sem hún ekki hentaði. Einnig verður að hafa í huga, að skuldamálið var Norðmönnum ekkert grín. Þeir höfðu liðið mjög tilfinnanlegan skaða af styrjöldinni, og efnahagur ríkisins var gjörsamlega í rúst. Þeim var lífsnauðsyn að gera allt til þess að sleppa sem bezt frá skuldaskiptunum, og þá var eðlilegt, að þeir reyndu að nota sér þann rétt, sem þeir þótt- ust hafa til skattlanda sinna, en vissu, að þeir fengju aldrei viðurkenndan til fulls. Norðmenn sluppu líka tiltölulega vel, miðað við það, sem þeim var ætlað í fyrstu, en hvort það hefur að nokkru leyti verið að þakka landvinningastefnu Hákonar konungs gamla, er ekki ljóst. Líklega hefur kröfu þeirra verið of linlega fylgt, til þess að hún hefði veruleg áhrif á málalokin. Það kann að virðast undarlegt, þegar litið er yfir sögu Napóleonsstyrjaldanna í heild og stöðu Dana í þeim, að þeir skyldu ekki missa yfirráð sín yf ir Islandi lengur en eina hundadaga. Hér hafa að nokkru verið rakin tildrög þess, hvað Svíþjóð og Noregi viðkemur. Onnur saga væri svo, hvers vegna við sluppum við að kom- ast undir yfirráð Breta. Þó er freistandi að ætla, að meginorsök þess, að Danir héldu Islandi, sé ein. Landið hefur ekki verið talið þess virði að leggja sig mjög eftir því. Þess vegna hélt það áfram að heyra undir sömu krúnu og áður. Engum ráðandi manna í Svíþjóð hefur þótt ómaksins vert að benda fulltrúa Svíakonungs í Kiel árið 1814 á, að Island tilheyrði hinum norska hluta af veldi Danakonungs. Og af sömu ástæðu urðu síðari kröfur til Islands aldrei veru- legt alvörumál. Danir, sem vissu, hvað Islands- verzlunin gat gefið af sér, hafa ef til vill metið landið meira en aðrir. Það er hugsanlegt, að van- mat annarra á landi og þjóð hafi forðað okkur frá að ganga kaupum og sölum milli þjóðhöfð- ingja álfunnar. HEIMILDIR: Grein þessi styðst við ýmis rit um norska sögu á þessu tímabili, en yfirleitt hefur ekki verið leitað til frum- heimilda. Einkum hef ég haft not af eftirtöldum rit- um: Det norske folks liv og historie gjennem tiilene VII. Tidsrummet 1770 til omkring 1814 av Sverre Steen (Oslo 1933). — VIII. Tidsrummet 1814 til omkring 1840 av Wilhelm Keilhau (Oslo 1929). Sverre Steen, 1814 (Det frie Norge [I]; Oslo 1951). — Krise og avsþenning (Det frie Norge III; Oslo 1954). Vart folks historie VI. Bernt A. Nissen, Det nye Norge grunnlegges (Oslo 1964). 12

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.