Mímir - 01.03.1967, Page 25

Mímir - 01.03.1967, Page 25
í þessari gátu er meiri frásögn og rýmra en í ljóðaháttargátunum. Lýsingin er því rækilegri og myndin margbrotnari, en vel er á öllu haldið. Skemmtilega er lýst sambandi fuglanna. Þær eru ambáttir herra síns, og við sjáum þær kjaga til hreiðursins álútar, en svanurinn er á sveimi utan við eyjarnar, hnarreistur og tígulegur. Myndin er skýr og lífi gædd. Sérstakan sess skipa fjórar undurfagrar gát- ur um öldur. Þær bregða upp mynd af dætrum Ægis hverri frá sinni hlið. Eitt dæmi skal látið nægja: Notaleg kímni er einnig í lýsingu kýrinnar. koma þar m. a. fram þeir eiginleikar hennar sem löngum hafa verið kúasmölum og fjósamönn- um mestur þyrnir í augum, seinlæti og sóða- skapur. Gátan er svona: Fjórir hanga, fjórir ganga, tveir veg vísa, tveir hundum varða, einn eftir drallar og jafnan heldur saurugur. Hverjar eru þær brúðir, er ganga í brimserkjum og eiga eftir firði för; harðan beð hafa þær inar hvítfölduðu konur og leika í logni fátt? Hér má sjá hnarreistar bárur flykkjast af hafi. Það brýtur í ölduhryggjum og löðrið hrynur nið- ur í öldudali. Loks brotna þær á klöppum í flæð- armáli. Þetta minnir skáldið á brúðför. Brúðirn- ar klæðast hvítum serk og bera brúðarfald. Þess- ari brúðför lýkur heldur skyndilega, og hljóta þessar brúðir óneitanlega harðan brúðarbeð. Endalok þeirra kalla fram aðra mynd: sá dagur mun koma að konur þessar falda ekki lengur hvítu. I nokkrum gátum kemur fram ósvikin kímni- gáfa. Spaugileg er t. d. lýsing á áhrifum öls á mannkindina: Hafa vildag það í gær hafða, vittu hvað það var: lýða lemill, orða tefill og orða upphefill. „Fái honum mungát, það lemur margra vit; sumir verða margmæltir þar af, en sumum vefst tungan, svo að ekki verður að orði." Margir kannast við þessa gátu eins og hún hef- ur verið höfð á síðari öldum: Fjórir ganga, fimm hanga, einn dinglar aftan við, aldrei kemst hann fram fyrir. Þessi gáta hefur verið kunn svo að segja í hverri sveit í Evrópu og víðar. Langelzta uppskrift hennar er í gátum Gestumblinda. Talin er hún þýzk að uppruna. Yarla er hægt að komast hjá að finna hæðn- isbroddinn í þessari gátu: Sá eg á sumri sólbjörgum í verðung vaka vilgi teita; drukku jarlar öl þegjandi, en æpanda ölker stóð. „Þar drukku grísir gylti, en hún hrein við." Hugmyndin um æpandi ölker er svo sem nógu skemmtileg, en líkingin nær lengra. Skáldið lík- ir grísahópnum við hirð og virðist ekki bera djúpa virðingu fyrir jörlum. Það er ekki laust við manni fljúgi í hug að skáldið hafi einhvern tíma verið við hirð erlends konungs, staðið 25

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.