Mímir - 01.03.1967, Síða 27

Mímir - 01.03.1967, Síða 27
ÓLAFUR EINARSSON: SÖGUNÁM við háskólann í osló Stúdent, sem hefur nám í sögu- og heimspeki- deild háskólans í Osló, getur valið milli 40 námsgreina. Tvenns konar |embættisprófi er hægt að Ijúka frá deildinni, lægra stig er cand. mag., en hærra stig cand. philol. I cand. mag. prófi eru þrjár prófgeinar og námstími 4—AV2 ár. Prófstigin í hverri grein eru tvö, „grunnfag", meðaltími 2 misseri, og „mellomfag", sem tékur yfir þrjú misseri (þ. e. eitt misseri umfram „grunnfag"). Til að hljóta cand. mag. próf þarf stúdent að hafa eitt „grunn- fag" og tvö „mellomfag". Við cand. philol. próf er um mun meiri sér- hæfingu að ræða. Að loknu cand. mag. prófi geta stúdentar gert einhverja prófgreinanna að aðalnámsgrein („hovedfag"). Meðalnámstími er 3—4 misseri og er aðalverkið að semja kjör- sviðsritgerð. Sögunámið Stúdent, sem hyggur á sögunám, verður því fyrst að taka tvær aukagreinar og velur þær yfirleitt úr hópi hjálpargreina sagnvísinda þ. e., ef viðkomandi hyggur á kennslustarf, þá velur hann tungumál. Að því loknu hefst sögunámið, „mellom- og hovedfag" í mannkyns- og Norð- urlandasögu. Á fyrstu tveim misserunum í „mellomfagi", á stúdentinn að reyna að öðlast gott yfirlit yfir söguna í heild. Hann getur valið einstölc tímabil, sem hann kynnir sér nákvæmlega, en hraðles önnur. Þó verður hann að kynna sér nákvæm- lega mannkynssöguna eftir 1780, og öll Norður- landasagan er lesin nákvæmlega. Á síðasta misseri í „mellomfagi" sérhæfir hann sig í á- kveðnu tímabili og auk þess rannsakar hann heimildir og atburðarás einhvers ákveðins at- burðar. Mannkynssögunni er skipt þannig í tímabil: I Hellas frá tímum persastyrjaldanna og saga Rómarríkis frá Sulla til falls ríkisins. II Ca. 500—1300 e. Kr. III Ca. 1300—1600 e. Kr. IV Ca. 1600—1780 e. Kr. V Ca. 1780—1870 e. Kr. VI Ca. 1870—1945 e. Kr. Noregssögunni er skipt þannig: I. 400 f. Kr. —1000 e. Kr. II. 900—1319- III. 1300—1600. IV. 1600—1800. V. 1800—1884. VI. 1870 — 1945. I „hovedfagi" velur stúdent einnig eitthvert þessara tímabila, þó annað en hann valdi við „mellomfag". Kjörsviðsritgerðin verður að vera byggð á eigin rannsóknum og sýna, að höfund- ur kann að hagnýta sér heimildir. 27

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.