Mímir - 01.03.1967, Síða 29

Mímir - 01.03.1967, Síða 29
GUNNAR STEFÁNSSON: „HRYNJANDI STUNDAR OG STAÐA" Þankar þeir, sem hér fara á eftir, eru að uppruna kaflar úr talsvert lengri ritgerð, sem ég samdi fyrir rúmu ári, um ljóð Hannesar Péturssonar. Ritnefnd Mímis óskaði efdr hluta af ritgerðinni til birtingar. Að vísu var grein þessi alls ekki samin með það í huga, að hún kæmist nokkru sinni á prent, en ég taldi mig þó ekki geta vikizt undan þessum tilmælum, og varð að samkomulagi að velja til birtingar þann hluta, sem fjallar um síðustu bók Hannesar, Stund og staði (1962), svo og lokakafla ritgerðarinnar, um ljóðform Hannesar og stöðu innan íslenzkrar ljóðlistar. Þess er að gæta, að annmarkar eru á að slíta kafla út úr greininni svo að vel fari, en um slíkt er ekki að fást, og hef ég ekki gert breytingar á henni svo neinu nemi. Vona ég, að þetta ófullkomna spjall geti orðið einhverjum til ánægju og kannski nokkurrar glöggv- unar. G. St. Stund og staðir er að mínu áliti á ýmsa lund at- hyglisverðust ljóðabóka Hannesar Péturssonar, þótt hún virðist hafa notið minni vinsælda en hinar bækurnar tvær. Slíkt er að vísu skiljan- legt, hún hefur ekki Ijóðrænan þokka á við I sumardölum né rómantískt skrúð Kvæðabókar; í henni eru hvorki sviptigin söguljóð, fíngerðar stemningar né safarík náttúruljóð. En Stund og staðir er e. t. v. nútímalegust allra bókanna að viðhorfum og sumpart að formi. Hún styrkir þá trú, að Hannes muni enn sem áður leita á ný mið, því að hver bók hefur til þessa orðið nýr og merkur áfangi á ferli hans, þær bera allar eigið svipmót. Það er þessi ferskleiki og stöðuga leit, sem er að mínu viti hvað þýðingar- mest um stöðu Hannesar Péturssonar í íslenzkri ljóðlist. En nú sný ég mér að Stund og stöðum og mun gera í stuttu máli grein fyrir þáttum bókarinnar og þeim eiginleikum hennar, sem ég tel merkasta. Fyrsti kafli nefnist Raddir á daghvörfum, til- brigði við tíu þjóðsögur. Raddirnar, sem tala í ljóðum þessum, eru sem hér segir og í þessari röð. Sigmaðurinn í Drangey; Arni á Hlaðhamri, sem myrti tengdason sinn; Málmeyjarbóndinn, sem fór með séra Hálfdani í Felli að sækja konu sína í tröllahendur; Sveinn skotti, sonur Axlar- Bjarnar, hins alræmda morðingja. Þá er Hlini kóngsson, sem féll í hendur flögðum; maura- púkinn, er leikur að fé sínu í gröfinni; Galdra- Loftur; líkræninginn, sem fór í slóð Reynis- staðabræðra; hellisbúinn, sem dvaldist meðal þursa, og loks griðkona, sem fór með djákn- anum á Myrká. (Allar eru sögur þessar í Þjóð- sögum Jóns Árnasonar). — Um Axlar-Björn orti Hannes áður í Kvæðabók, ennfremur um Galdra-Loft, út af sögunni um Reynisstaða- bræður, svo og djáknann á Myrká. Þótt þannig sé víða sótt til fanga í heimi ís- lenzkra þjóðsagna, er hitt bersýnilegt, að höfund- ur ætlar sér sýnu meiri hlut en endursegja sög- urnar. Efnismeðferðin er að nokkru hliðstæð Kvæðabók, en á hinn bóginn öllu viðhafnar- minni, einfaldari og yfirleitt svipdaufari. T. a. m. orkar Tíunda rödd ekki nándar nærri eins sterkt á lesandann og Djákninn á Myrká í Kvæðabók. En einfaldleiki og óbrotinn kveð- 29

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.