Mímir - 01.03.1967, Síða 33

Mímir - 01.03.1967, Síða 33
ið á ljóðum mjög margra skálda á seinni tímum, einkenni sem nú ryður sér óðfluga til rúms hér. Ljóðið er ekki lengur hugsað sem eins konar samtal við lesandann, heldur eins og bygging sem skáldið reisir á víðavangi, hverfur síðan frá og lætur lesandann um að leita þangað og dvelja þar.''7 Endursköpun ljóðsins, hið innra og ytra, brýzt til ríkis með glæsibrag í fyrstu Ijóðum Stefáns frá Hvítadal og Davíðs Stefánssonar. Þar er öll meðferð ljóðmálsins orðin næsta einföld, kenn- ingum hafnað, og formið gert eins óbrotið og verða má, jafnvel seilzt til formfrjálsra þjóð- kvæða og þulna sem fyrirmynda. Skáldin, sem á eftir koma, (s. s. Tómas Guðmundsson) halda sig á líkum slóðum, og ennfremur Steinn Stein- arr í fyrstu. En Steinn varð síðar frumkvöðull nýs skáldaskóla og helzta fyrirmynd og átrúnað- argoð fjölmargra yngri skálda. I lok skáldferils síns sendi hann frá sér ljóðaflokkinn Tímann og vatnið með mottói Archibald MacLeish: „A poem should not mean, but be". Þar var hefð- bundnum viðhorfum að mestu vikið til hliðar, og ljóðið flytur einungis óskipulegar svipmynd- ir, fremur ætlaðar til skynjunar en skilnings. Þessum kveðskaparstíl hafa yngri skáld mjög líkt eftir við misjafnan orðstír. En Hannes Pét- ursson sker sig úr þeim hópi. Þótt hann sé að- dáandi Steins, eins og fram kemur í formála hans að lausmálssafni Steins, Við opinn glugga (1961), getur Hannes á engan hátt talizt læri- sveinn 'hans. Að vísu á hann það sammerkt við Stein að yrkja stutt ljóð og myndræn, en þar er um að ræða almennt einkenni á ljóðum seinni tíma, og kemur til af þeirri gagngeru breytingu á viðhorfi skálda gagnvart ljóðinu, sem áður var rakin. — En nú mun mál að nefna það skáldið, sem almennt hefur verið álitið læri- faðir Hannesar Péturssonar öðrum fremur, — Snorra Hjartarson. — Þess má geta, að Steinn Steinarr neitar því í blaðaviðtali (Við opinn glugga, bls. 117), að Hannes sé lærisveinn Snorra, en telur hann hins vegar hafa lært af Jóni Helgasyni. Þessu hef ég ekki séð haldið fram annars staðar og tel það hæpið. Sumir hafa látið að því liggja, að skáldskapur Hannesar sé nánast endurskin af glitvefnaði Snorra, ljóðform hans stæling á formi Snorra o. s. frv. Þetta er auðvitað reginfirra; enginn, sem les bækur Hannesar, ætti að ganga þess dulinn, að hann hefur í öndverðu skapað sér eiginn ljóðstíl. Hins vegar má sjá töluverð áhrif frá Snorra, einkum í fyrstu bók Hannesar, Kvæðabók. Slíkt er að sjálfsögðu á engan hátt ámælisvert; öll skáld nema af eldri skáldum, og Snorri Hjartarson er viðurkenndur einn mest- ur fagurkeri íslenzkrar Ijóðlistar á þessari öld og því ekki í kot vísað að nema af honum Ijóð- mál og bragform. — Ég nefni eitt dæmi um á- hrif Snorra á myndsköpun Hannesar og orðfæri, en hér eru þau að vísu óvenju augljós: Snorri: Döggfall á vorgrænum víðum veglausum heiðum, sólroð í svölum og góðum suðrænublæ. Stjarnan við bergtindinn bliknar, brosir og slokknar, óttuljós víðáttan vaknar vonfrjó og ný. (Jónas Hallgrímsson, Kvæði) Hannes: Náttkul af haustbleikum heiðum hljótt yfir engjum. Myrkrödduð muldrar á flúðum Miðfjarðará. Heim fetar hestur þinn lyngmó undir hauststjörnum, kyrrð er í dölum Kormákur skáld. (Kormákur, Kvæðabók) Ekki er hér staður til að ræða skáldskap Snorra Hjartarsonar, en benda má á, að Hannes Pétursson hefur sjálfur gert því efni manna bezt skil í fyrirlestri, sem prentaður er í Félagsbréfi Almenna bókafélagsins (17. hefti, 1960). 33

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.