Mímir - 01.03.1967, Qupperneq 36

Mímir - 01.03.1967, Qupperneq 36
UM BÆKUR Arnheiður Sigurðardóttir: Híbýlahættir á miðöldum. Bókaútgáfa Menningarsjóðs 1966. Fróðlegt er að veita því athygli, hvaða dóma fræðirit um íslenzk efni fá hjá gagnrýnendum. Stundum er það svo, að vandaðar og vel unnar bækur eru taldar of góðar, en bækur, sem fullar eru af kjaftasögum og alls kyns ótraustum fróð- leik, eru taldar merk fræðirit, þótt nær væri að kalla þær sögulegar skáldsögur en fræðimennsku. Rit það, sem hér verður fjallað lauslega um, er framlag til íslenzkrar menningarsögu. Margt er í þeirri grein lítt rannsakað, en þó virðist áhugi á henni fara vaxandi. Eins og höfundur getur í formála er bók þessi að stofni ritgerð til meistaraprófs í íslenzkum fræðum. Nú er að færast í vöxt, að prófritgerðir séu birtar oft meira og minna endursamdar, fer oft — ekki alltaf — vel á því, að slíkt sé gert, því að efni sumra þeirra er það merkilegt, að rétt og jafnvel þarft er að kynna það almennum lesendum. Bók þessi heitir Híbýlahættir á miðöldum. Að mínum dómi má efninu samkvæmt skipta henni í tvo meginþætti. Fyrri þátturinn fjallar um í- veruhús í þröngri merkingu orðsins, t. d. er ekki greint frá búri og mateldhúsi, eftir að það þró- aðist úr hluta af skálanum. Seinni þáttur bókar- innar fjallar um svefnstaði og innanstokksmuni. 36 Vinnubrögð höfundar eru sagnfræðileg og að nokkru er stuðzt við uppgrefti. Þegar fornrit eru notuð, eru þau einkum tekin sem heimild á rit- unartíma sagnanna. Einnig eru að nokkru við- hafðar „filologiskar" vinnuaðferðir og athuguð tíðni og merking orða. I inngangi er lauslega greint frá híbýlarann- sóknum á Norðurlöndum. Það verður að teljast nauðsynlegur inngangur að síðari köflum ritsins, en er ekki nógu aðgengilegur. Annar kafli heitir Um þróun íslenzkra íveruhúsa fram til Sturl- ungaaldar. Þar eru fyrst raktar niðurstöður rann- sókna Valtýs Guðmundssonar, sem birtust í doktorsriti hans: Privatboligen pá Island i Saga- tiden 1889. Niðurstöður Valtýs voru í stuttu máli, að stofan hefði verið aðalíveruhúsið á söguöld. Studdist hann þar einkum við ritaðar heimildir og miðar einkum við tíðni orðanna stofa og skáli. Arnheiður styðst aftur á móti við ritaðar heimildir og fornleifarannsóknir að auki, en fær út, að skálinn hafi verið aðalhúsið á Is- landi á sama tíma. Matseld á að hafa farið fram í skálanum í fyrstu, en síðan varð þróunin sú, að sérstakt eldhús varð til. I kaflanum Miðaldaskál- inn er gerð grein fyrir heimildum um skálann fram til loka miðalda, og álítur höfundur, að hann hafi alltaf verið aðalsvefnhús, þótt víða hafi einkum á seinni hluta tímabilsins verið sofið í öðrum herbegjum. Seinni hluti annars kafla greinir frá stofunni. Þar telur höfundur, að uppgreftir sanni, að stofur hafi í rauninni ekki þekkzt á fyrstu öldum Is- landsbyggðar. I kaflanum Miðaldastofan er rætt nokkuð áfram um hlutverk stofunnar, sem virð- ist hafa verið mismunandi á ýmsum tímum. I

x

Mímir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.