Mímir - 01.03.1967, Qupperneq 40

Mímir - 01.03.1967, Qupperneq 40
tók að dvína á hinum síðari. Þeir höfundar sem höfðu borið það uppi héldu að vísu áfram að rita góð verk, en jafnaldrar þeirra og yngri menn voru aðeins svo sem dauft bergmál af hinum stóru verkum. Ekki örlaði fyrir nýjum kröftum sem gætu endurnýjað skáldsöguformið, heldur streittust menn áfram við að semja kiljanskar sögur í hefðbundnum stíl, flestir hverjir. Sumir gerðu það að vísu þokkalega og ber engan veginn að lasta það. En óneitanlega gerðist sagnaskáld- skapur vor í daufara lagi og lítt áhugaverður á hinum síðustu árum. Helgafellsádeilurnar þrjár og þeir flokkadrættir sem af þeim leiddu voru einungis talandi tákn hins ömurlega ástands. Gagnvart þessari lognmollu stóð Guðbergur Bergsson. Svar hans opinberaðist mönnum fyrir næstliðin jól: Metsölubók Tómasar Jónssonar. Þar lýsti hann frati á hefðina á eftirminnilegan hátt. Ymsir valinkunnir menn hafa þegar lyst því yfir að bókin sé tímamótaverk. Það mun tíminn leiða í Ijós. Tómas Jónsson er torlesin bók með köflum, en eigi að síður hinn mesti skemmtilestur þeim sem úthald hefur til að pæla í gegnum hana. A yfirborðinu er hún saga gamals bankamanns, Tómasar Jónssonar, sem hann ritar í 17 stíla- bækur, karlægur og að dauða kominn í kjallara- íbúð sinni í Hlíðunum; hann liggur þarna, karl- sauðurinn, í félagsskap kattarins Títu, kvenver- unnar Onnu (eða Katrínar) og súrefniskúts og bunar upp úr sér hugarórum sínum. Við kynn- umst náið ýmsum þáttum ævi hans, en sam- hengislaust. Krónólógiskri söguaðferð er varpað fyrir róða, endurminningarnar streyma upp úr karlinum án röklegs samhengis að mestu, en að lokinni sögu má gera sér nokkurn veginn ljósa grein fyrir æviferli Tómasar. Nokkurn veginn, því að ýmislegt er á huldu, t. d. hinn hroðalegi kynferðisglæpur sem ásækir Tómas, en lesandinn fær aldrei komizt til botns í (þetta minnti mig dálítið á viðlíka glæp H. G Earwickers í Finne- gans Wake sem sætir svipaðri meðferð. Kven- persónur sögunnar eiga vanda til að renna sam- an, sömuleiðis karlpersónur; eitthvert samband virðist milli Tómasar og Ásmundar sem át íbúð sína, og í lokin virðist Hermann (eða Svanur) og Tómas renna saman í eitt. En tvískinnungurinn nær víðar. Það er fylli- lega gefið í skyn að bókin sé ekki rituð af Tóm- asi heldur leigjandanum Hermanni (eða Svani), sem hlerar mas karlsins gegnum vatnsglas er hann heldur að veggnum. Af þessu má ljóst vera að bygging sögunnar er býsna flókin, flest orkar þar tvímælis og margt er að líkindum endanlega óskiljanlegt. Skal þó ekkert um það fullyrt að svo komnu máli, því að margt á vafalaust eftir að skýrast við nákvæmari lestur. En hér hefur aðeins verið drepið á annan þátt bókarinnar. Hinn þáttur hennar er satíran, sem birtist á svo að segja hverri blaðsíðu, ýmist í lýsingum atriða úr ævi Tómasar eða í skopstæl- ingum bókmennta, sagnastíls og fræðimennsku. Og hér birtist höfuðeinkenni Guðbergs, hin ofurskarpa athyglisgáfa og hæfileiki til að festa myndir hluta og atburða í orð. Svið sögunnar, umhverfi hennar, verður þannig áþreifanlegt og hlutkennt, og þetta vegur upp á móti huglægum frásagnarhættinum. Sú mynd sem dregin er upp af umhverfi oklcar, af íslenzkri þjóð, er að vísu afskræmd, satírísk. En hún er engu að síður nákvæm og sönn í smáatriðum; það er aðeins úrvalið sem er gróteskt. Guðbergur hefur djöful- lega næmt auga fyrir því í fari fólks sem gerir það lítilmótlegt og hlægilegt. Hann hefur sömu- leiðis hárnæmt skyn á klissjur og notar það óspart. Guðbergur er líklega fyrsti stórmeistari okkar í skopstælingu, sem annars hefur verið lítt stund- uð af Islendingum. Þjóðsögur Tómasar eru skop- færð dæmi alþýðlegs frásagnarstíls og þjóðremb- ings, bókmenntakaflarnir tæta í sundur ymis ein- kenni sagnabókmennta síðari ára, og hin gull- væga grein Um Kimblagarr er dæmalaust hittin skopfærsla á spakvizkustíl ýmissa andans jöfra þjóðarinnar. Það er einn af höfuðkostum þess forms sem bókinni er fengið að það getur rúmað næstum því hvað sem er. Mér er ekki ljós önnur leið tii þess að koma fyrir í einni bók öllu því ógrynni efnis sem hér er að finna. Þetta kostar að vísu 40

x

Mímir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.