Mímir - 01.05.1984, Side 9
læri ekki mikið á þessu og það gefi ekki heidur
mjög góða mynd af því hvað menn kunna í
málinu. Það er einkum tvennt sem Ieggja ætti
áherslu á í málfræðikennslu í skólum. í fyrsta
lagi eru það þessi helstu hugtök; fall og tala og
svo framvegis, sem gera þyrfti grein fyrir, og
kynna notkun þeirra og merkingu. Eg ímynda
mér að það sé hægt að gera án þess að fara nrjög
mikið út í það sem er afbrigðilegt og sérkenni-
legt. í öðru lagi ætti að fjalla svolítið um eðli
tungumáls og móðurmáls þá sérstaklega og gera
mönnum grein fyrir því að þeir hafa í raun og
veru vald á þessu kerfi mestöllu. Það sé í raun
og veru bara um að ræða Iýsingu á því sem þeir
hafa vald á og leggja því miklu minni áherslu á
að þarna sé eitthvert mál sem þurfi að kenna
þeim á svipaðan hátt og latínu t.d.
Það hefur verið rætt um að það væri þyrjað
alltof snemma á málfræðikennslu og ég held að
það sé alveg rétt. Ég tel að í barnaskólum ætti
að Ieggja mesta áherslu á það að láta menn lesa
meira og skrifa, málþjálfun einhverja sem ekki
væri endilega fólgin í því að beygja einhver orð
án samhengis við eitthvað annað.
En er ekki nauðsynlegt að kenna ein-
hverja málfrœði snemma í sambandi við staf-
setningu?
Ég veit það ekki. Jú menn hafa ímyndað sér
það og þess vegna er byrjað svona snemma á
málfræðikennslunni. Notuð hafa verið hugtök
eins og stofn og greinir og þess háttar og ef ekki
á að byrja svona snemma með þessi fræðilegu
hugtök þá þýðir það auðvitað það að kenna
verður stafsetninguna einhvern veginn öðru
vísi. Ég er ekkert viss um nema það sé rétt að
stafsetningu þurfi að kenna á einhvern annan
hátt, t.d. með því að láta krakkana skrifa meira,
og jafnvel skrifa upp texta, það geti skilað alveg
eins góðum árangri á fyrstu stigum stafsetning-
arkennslu eins og umræða um kennimyndir og
hljóðvörp.
Stafsetning er sem sagt frekar bundin sjón-
minni og skrifþjálfun.
Já, að minnsta kosti hjá mjög mörgum. Hins
vegar veit ég ekki hvort hafa verið gerðar
nokkrar marktækarathuganirá því.
Að þessum orðum mœltum s/áum við botn-
inn í þetta viðtal ogþökkum Höskuldi kærlega
fyrir spjallið.
des83
ÞBH & GMG
9