Mímir - 01.05.1984, Page 17
hársrætur“ (bls. 496). Honum er eingöngu lýst
utan frá í þessu síðasta atriði sögunnar, en þó er
augljóst að hann á í harðri baráttu við sjálfan
sig. Hann er orðinn gjörólíkur þeim montna og
hégómlega strákling sem birtist í upphafi sög-
unnar. Hann er ómanneskjulegur, heilagur og
hryllilegur í senn og næstum ótrúlega grimmur,
þegar hann hrindir Diljá frá sér.
Steinn Elliði er aðalpersóna sögunnar og
helsta ráðgáta hennar og viðfangsefni. Lýsingin
á honum miðar að því að svara spurningunni:
Hver er hann? Hann spyr sjálfur og um leið
sögumaður og lesendur. Þrátt fyrir glæsileik og
gáfur er Steinn Elliði hetja sem orkar tvímælis.
Takmarkalaus áhugi hans á sjálfum sér og
skeytingarleysi um aðra kemur glöggt fram í
sögunni. Steinn er að leita að lífsviðhorfi sem
hann geti aðhyllst, en hann er einnig að leita að
sjálfum sér. Áberandi þema í lýsingunni á hon-
um er annars vegar það sem hann þykist vera,
hins vegar það sem hann er. Vandi hans er ekki
síst fólginn í því að hann er ófær um að vera
einlægurog sannur.
b) Diljá
Þegar Diljá kemur fyrst til sögunnar er hún ekki
nema sautján ára. í lýsingunni á henni er dregið
fram, hvað hún er ung og fersk og hrein: „Var-
irnar þvalar af æsku og ósnortni, gljúpar og
rauðar. . . Slíkur var líkaminn allur: nýsprott-
inn, ferskur og meyr, líkt og ax á vorakri" (bls.
8). Og hún er barnaleg og saklaus: „En hana
skorti enn hinn síreiðubúna kvikleik tísku-
meyarinnar til að kunna að svara fimlega“ (bls.
28). Eins og í lýsingu á Steini er áhersla lögð á
fallegt útlit og þó einkum á æsku Diljár. Les-
andi er ekki varaður gagngert við þrestum í
skapgerð hennar eins og þegar Steinn var
kynntur til sögunnar. Samt er þetta eins konar
viðvörun: „Þótt augu hennar væru enn úng og
skær, vóru þau samt eigi sneydd þessum höfuga
tíbrárgráma, sem tíðum er einkenni sefaveilla."
(bls. 8). Tilfinningum hennar er lýst ákaflega
vel:
Hann var ekki framar bemskuvinur og leik-
bróðir; það var hið eina sem hún fann. Hann var
annað og meir; hún fann svo greinilega, að hann
var úngur karlmaður. — Það skelfdi hana að
finna á armi sér sterka hönd hans; hún titraði
öll. (bls. 32)
í lýsingunni á Diljá er jafnan lögð áhersla á
kvenlegt aðdráttarafl hennar:
Hún hafði hnept kápunni upp í háls, en sat í
fremur ókæmum stellíngum, eins og frumvaxta
meyum er títt: þandi skaut sitt, svo kápufaldur-
inn nam við hnéskeljamar ofanvert, en sterkir
kálfamir komu gleitt fram undan, og knjáliðirn-
ir, furðu digrir, vóru ekki vitund varir um sig,
enda þótt þeir sýndust fullsterkir til að standa
undir þroskuðum móðurlendum. Þessi frjálsa,
blygðunarlausa stellíng gat ekki um annað vitn-
að en meydóm, sem of er skýlaus og ósnortinn
til að kunna að ugga að sér. (bls. 29—30)
Sögumaður bendir á ögrandi stellingu þessarar
ungu, ástföngnu stúlku, en leggur um leið
áherslu á hreinleika hennar og sakleysi. Hún er
alltof óreynd til að hafa rænu á að leggja snörur
fyrir karlmenn. f lýsingunni á henni er enn-
fremur lögð áhersla á sterk tengsl hennar við
náttúruna: „Og hún lá fyrir framan hann úng og
fögur, grúfði sig niður í gróskuþrúngið vorgres-
ið, sjálf ekki annað en persónugervíng hinnar
frjóu, jarðnesku moldar.“ (bls. 58).
Bréf Diljár til Steins gefa ekki bara lýsingu á
honum sem barni. Þau lýsa Diljá sjálfri og til-
finningum hennar. Bréf þessi eru mjög per-
sónuleg eins og dagbók ungrar stúlku. Hún talar
í fyrstu persónu um þá hluti sem hún mundi
aðeins trúa sínum besta vini fyrir og kannski
ekki einu sinni honum. Bréfin bera þess
glögglega merki að hún er unglingur, sumar
hugmyndir hennar eins og milli svefns og vöku
og þegar hún hugsar um lífið, togast á von og
ótti. Eím bréfin segir hún sjálf:
Það lýsir ekki af þeim nein dýrð. Þau eru ekki
annað en andvökuríngl úngrar stúlku. Ég skrifa
af því, að það liggur svo illa á mér. Mér leiðist
svo mikið. Ég er svo úng, svo óstyrk, svo hrædd,
svo ein.
Einginn skilur mig. (bls. 65)
17