Mímir - 01.05.1984, Side 18

Mímir - 01.05.1984, Side 18
Slíkt trúnaðartraust einnar sögupersónu vekur ósjálfrátt meðlíðun lesandans. Hér er engin til- gerð, engir stælar. í fyrstu bók er orðaflaumur Steins Elliða geysimikill, en Diljá segir fátt. I annarri bók skrifar hún: Orðin segja aldrei hjarta manns. Orðin eru vit- ur, nákvæm og straung eins og kennarar, og ég er hrædd við þau, en hjarta manns er ekkert af þessu. — Mig lángar að tala alt öðru máli en því, sem orðin ná yfir. (bls. 67) Fjórða bók Vefarans gerist á íslandi og segir þar helst frá Diljá og Örnólfi. Það hefur auð- vitað áhrif á afstöðu lesanda, að nú veit hann hvað býr innra með Diljá, þekkir hana betur en þeir sem standa henni næst. Þetta atriði þarfn- ast t.d. engrar skýringar. Þá leit Diljá aftur upp og spurði: — Bað hann ekki að heilsa? — Nei, það var nú eitthvað annað. svaraði for- stjórinn [Örnólfur] og hló við, og það var eitt- hvað kalt í hlátrinum. (bls. 210) Hann hefur ennfremur þær fréttir að færa, að Steinn sé orðinn bolsi og sá Örnólfur að það var tilgangslaust að tala við hann. „Barnið er brjál- að, sagði gamla frúin“ (bls. 211). Lesandi getur nú sagt sér sjálfur, hvernig Diljá.er innanbrjósts. Engan þarf því að undra, þótt málin snúist á þann veg, að hún giftist Örnólfi. í þessum kafla er gerð grein fyrir tilfinningum Diljár til Öm- ólfs. Það er auðskilið að hún lítur upp til hans og þykir vænt um hann eins og stóra bróður. Öll frásögnin beinist að því að skýra afstöðu Diljár og gerðir hennar, engin leið er að ásaka hana fyrir að hafa gleymt Steini né heldur áfell- ast hana fyrir að svíkja loforðið um að lifa skír- lífi. í 50. kafla er á nærfærinn og skilningsríkan hátt lýst draumum og þrám ungrar stúlku, sem er um það bil gjafvaxta: Og hún spurði: Til hvers er verið að geyma mig hér? Hún var orðin of þroskuð kona til að geta framar setið við gluggann á vorin og látið sig dreyma eitthvað blátt, eilíft og óáþreifanlegt. Hana þyrsti ekki framar í það, sem einginn veit hvað er. Hana þyrsti í fyllíng lífsins. (bls. 220) Þannig er henni lýst, þar sem hún situr and- spænis Örnólfi við morgunverðarborðið: Hún var sem forkláruð eftir tveggja daga rúm- vist; hún var eins og skart nýtekið úr tröfum og þó öllum kjörgripum kostulegri: kona í meyar- blóma sínum, persónugervíng yndisþokkans. Töfrarnir drupu af fíngurgómum hennar; hún segulmagnaði alt, sem hún snerti; kvenleikinn bylgjaði um líkama hennar við andardráttinn, ljómaði í þángslikju augnanna, titraði um munninn; líkami hennar og sál var eitt. (bls. 232) Af slíkri nákvæmni og hrifningu er Diljá jafnan lýst. Það hefur reyndar orðið nokkur breyting á henni síðan hún kvaddi Stein og var bara sak- laust bam. Nú segir um hana: „Hún var á því reki að vera leikin í þessari list konunnar til að bregða sér í allra kvikinda líki, setti nú upp mesta fáráðlíngssvip og skildi ekki neitt í neinu .. . “ (bls. 236). Diljá er sýnd á þrem skeiðum ævi sinnar. Fyrst sem barn eða réttara sagt þá nótt sem hún vaknaði upp við það að hún var ekki lengur barn. Síðan sem gjafvaxta, ung stúlka og að lok- um fullvaxin kona og þó í hæsta lagi 21 árs, sbr. þessi orð hennar: „Sumarið 1914 varstu tólf ára, en ég tíu“ (bls. 71). Hún á því að vera fædd 1904 og Halldór Laxness lauk við bókina 1925. Þó að þetta sé ekki hár aldur, er hún engu að síður búin að kynnast lífinu og veruleikanum sem henni áður fannst vera svo ijarri. Hún er gift kona, forstjórafrú, hefur alið barn og misst það. Þannig er henni lýst, þegar þau Steinn hitt- ast aftur: Hún var klædd ermalausum kjól bleikijóðum, er féll þétt að barmi og mjöðmum, hár hennar klipt á la garconne. Augu hennar stöfuðu geig- vænlegum andvökuljóma; það var ekki vottur af lífsfögnuði hamíngjusamrar konu í fasi hennar, en í andlitinu mátti glögt sjá marka fyrir elli- dráttum lángt fyrir aldur fram. (bls. 372) I augum Steins er Diljá ákaflega breytt: Hvað var orðið af hinum léttu, hugsunarlausu jómfrúrhlátrum? Þeir gullu aldrei framar við; 18

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.